Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 57
H i n g u l a s t r ö n d S i n b a ð s TMM 2015 · 4 57 Desire.52 Ung álfastúlka hyllir til sín nýgifta brúði án þess að fjölskylda hennar og sóknarpresturinn fái nokkuð að gert. „The Land of Heart’s Desire“ er nú á tímum oftast notað um Sligo eða Yeats Country og þá vísað til hjartans ástar Yeats á átthögunum. En í leikritinu eru það álfheimar sem nefnast landið sem hjartað þráir, „þar sem fegurðin aldrei fjarar, hrörnunin aldrei flæðir, en gleðin er viska, tíminn eilífur söngur.“53 Álfheimar eru því eins konar útópía sem mennirnir þrá og skelfast í senn. Þar er hver dagur söngur, dans, ástir og veisluhöld. Enginn eldist, allir lifa lengi, jafnvel að eilífu, en sú eilífð endar að vísu á dómsdegi. Þetta sældarlíf borga menn dýru verði, með sálu sinni og guðsnáð. Hver sú manneskja sem „góða fólkið“ tekur „býr upp frá því í blóðlausu landi álfanna, vissulega við góðan kost og kátínu, en mun þó gufa upp á dómsdegi, því sálin fær ekki lifað án sorgarinnar.“54 Og aldrei var tónlist svo teit Sligo og álfatrú eru stór hluti þeirra ljóða sem Yeats birti fyrir 1900. Flest þeirra valdi hann í sín heildarverk og eru þau í þremur söfnum, Crossways (1889), The Rose (1893) og The Wind among the Reeds (1899). Fyrstu níu ljóðin í Crossways eru ort fyrir 1886 og í þeim eru grískar mýtur og indversk speki áberandi. Af ljóðunum sjö sem ort eru upp úr 1886, eftir að Yeats kynntist John O’Leary, eru fimm sem tengjast Sligo. The Rose fjallar mest um rósina sem tákn hinnar eilífu fegurðar, með tilvísun í Maud Gonne sem var stóra ástin í lífi Yeats. Þó eru í bókinni þrjú ljóð um Sligo og álfatrú. The Wind among the Reeds hefur tvö megin yrkisefni. Annars vegar er það ástin með tilheyrandi þrautum og sorgum. Hins vegar er það Sligo. Alls eru í þessum þremur bókum sextán ljóð tengd Sligo, sem samsvarar um það bil fimmta hverju ljóði. Svipuð niðurstaða fæst sé litið til allra styttri ljóða Yeats sem birtust í bókum og tímaritum á þessum árum. Við þau má svo bæta bálkinum um Oisin sem að hluta tengist Sligo, löngu ljóði um Melkorku drottningu sem birtist eitt og sér á bók 1903, The Old Age of Queen Maeve, og ljóðið Red Hanrahan’s Song about Ireland í bókinni In the Seven Woods frá 1904. Með nýju yrkisefni tamdi Yeats sér nýjan stíl sem einkenndist af einfaldara og alþýðlegra málfari. Máski hafði hann í huga nýjan lesendahóp, en þó réði mestu að stíllinn samrýmdist efni, anda og kjarna ljóðanna. Yeats kvaðst vilja færa ljóðin nær „landslagi náttúrunnar“ og fjær „lands­ lagi listarinnar“.55 Hann sagði að sér hefði smátt og smátt farið að skiljast að ljóð hans krefðust alþýðlegs málfars.56 Stíll Yeats einkenndist upp frá þessu af nánum tengslum við daglegt talmál Íra, bæði hvað varðar orðafar og setningaskipan. Nær öll ljóðin tengd Sligo fjalla um sveitunga Yeats, ýmist mannfólk eða álfa eða samskipti þessara hópa. Í ljóðinu The Meditation of the Old Fis­ herman (Crossways) minnist gamall sjómaður þess hve allt var betra á hans yngri árum, kátari öldur, heitari sumur, feitari síld og fallegri stelpur. The
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.