Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Qupperneq 135
D ó m a r u m b æ k u r
TMM 2015 · 4 135
ofbeldinu sem þar er á ferðinni. Ásækn
ari eru myndirnar sem Steinar Bragi
dregur upp af hinu „venjulega“ lífi og
vanköntum þess; áhugaverðari eru lýs
ingarnar á vinnu Kötu á krabbameins
deildinni – sem geta líka kveikt þá hug
mynd að ofbeldi gegn konum sé krabba
mein á þjóðarlíkamanum – og kaflarnir
sem gerast í dúkkuhúsi dótturinnar gefa
tilefni til ýmiss konar vangaveltna um
speglanir á milli raunsæissviðs og fant
asíusviðs frásagnarinnar. Þá vekja
athygli meitlaðar náttúrumyndir sem
flestar tengjast líðan aðalpersónunnar,
eins og eftirfarandi tilvitnanir sýna. Sú
fyrri tengist því að hefndarferlið er farið
að mótast í huganum á Kötu og sú síðari
er lokaorð bókarinnar:
Hún lokaði augunum og slakaði á.
Eftir svolitla stund komu til hennar
vetrarmyndir úr skógi, og af litlum kofa
innan í kúpli sem var hristur til að kalla
fram snjó. Allt í kringum hana var hvítt
og bak við kofann var botnfrosin tjörn:
síli, ormar, pöddur og allt sem lifði hafði
grafið sig ofaní botnleðjuna sem var
ennþá volg eftir sumarið, hægði á hreyf
ingum og efnaskiptum, hægði á öndun
og hjartslætti og hugsun þar til einungis
eitt stóð eftir, bláþráður hugsunar: að
lifa. (330)
Á kvöldin sveipaðist fangelsið mistri sem
kom utan af hafi. […] Trén sveifluðust án
þess að vind hreyfði í skóginum, blómin
drúptu höfði svo að krónublöðin námu
við jörðu og laufblöðin héngu lóðrétt
niður af greinunum. Þykkt ský af frjó
kornum hékk fyrir skóginum og þegar
um hægðist lögðust þau eins og fínlegt
ryk yfir húsin, borgina og heiminn allan.
(515)
Hvort Kata er reyfari í fagurbók
menntaham eða fagurbókmenntir í
reyfaraham skiptir engu máli. Steinari
Braga hefur tekist að skrifa kraftmikla,
breiða samfélagslýsingu sem heldur les
anda föngnum, vekur til umhugsunar
um leið og hún ögrar. Spurt hefur verið
hvort höfundur yfirstígi siðferðileg
mörk í frásögninni. Ekki ætla ég að
svara því en þegar þessi lokaorð eru
skrifuð les ég á forsíðu Fréttablaðsins:
„Íbúð í Hlíðunum var útbúin til nauðg-
ana. Tveir karlar, grunaðir um hrottaleg
kynferðisbrot, ganga lausir. Málið er í
rannsókn: Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum blaðsins fann lögregla í
íbúðinni ýmis tól og tæki sem mennirn
ir eiga að hafa notað við nauðganirnar,
svo sem svipur, reipi og keðjur. Þá voru
hankar í loftinu sem grunur leikur á að
mennirnir hafi notað til að hengja upp
aðra konuna meðan ráðist var á hana.“8
Hafa ekki mörk raunveruleika og skáld
skapar máðst út?
Tilvísanir
1 Sjá frétt um ummæli lögmannsins Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar, í sjónvarpsþættinum
„Hæpið“ á RUV, 28. okt. 2015. Sótt 29. okt.
2015 á vefsíðu Stundarinnar: http://stundin.
is/frett/logmadurosatturmikilumraeda
umkynferdisbrotis/
2 Sjá viðtöl við Steinar Braga: Eiríkur Örn
Norðdal. 27. okt. 2014. „Að útdeila réttlæti.“
Sótt 28. okt. 2015 á vefsíðuna Starafugl:
http://starafugl.is/2014/adutdeilarett
laetividtalvidsteinarbraga/ og Friðrika
Benonýsdóttir. 11. okt. 2014. „Eðlilegt að
vilja drepa gerandann.“ Sótt 28. okt. 2015 á
vefsíðu Vísis: http://www.visir.is/edlilegtad
viljadrepagerandann/article/2014710119983
3 Steinar Bragi Guðmundsson. 2008. „Upprisa
þjóðarinnar.“ Sótt 25. okt. 2015: á vefritið
Nei, http://nei.okeden.com/2008/11/14/upp
risa%C3%BEjo%C3%B0arinnar/
4 Steinar Bragi Guðmundsson. 2008. „Upprisa
þjóðarinnar.“
5 Kristján Hrafn Guðmundsson. 2008. „Hroll
vekja úr íslenska gullæðinu.“ DV 26. des.,
sótt á vefsíðu DV, 25. okt. 2015: http://www.
dv.is/menning/2008/12/26/hrollvekjaur
islenskagullaedinu/
6 Dagný Kristjánsdóttir. 2009. „Listin að pína