Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 119

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 119
Tónlist Misheppnaður brandari Þó að Sinfónían hafi á undanförnum árum sýnt íslenskri nútímatónlist minni áhuga en efni standa til er ætíð gróska á þessum vettvangi í öðrum afkimum íslensks tónlistarlífs og kemur það berlega í ljós á árlegri uppskeruhátíð íslenskra tónskálda, Myrkum músíkdögum, í lok janúar og byrjun febrúar. Á síðasta ári var sérstaklega gaman að tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur sem var stjórnað af Paul Zukovsky. Hann var með allt sitt á hreinu eins og endranær. Ýmsir aðrir tónleikar voru líka góðir, sérstaklega þeir sem Caputhópurinn hélt í Listasafni íslands. Þar stjórnaði Bandaríkjamaðurinn Joel Sachs og ég held að ég hafi aldrei heyrt Caputhópinn spila eins vel. Persónulega eru mér þó minnisstæðari nokkur símtöl sem menningarrit- stjórn Morgunblaðsins þurfti að þola frá bálreiðum lesendum blaðsins vegna athugasemdar sem ég lét falla í dómi um ærslafengna og bráðskemmtilega nýárs- tónleika Tríós Reykjavíkur, en þar sagði ég meðal annars: „... þó keyrði fyrst um þverbak þegar undarleg kona með slöngulokka (Gunnar í dulargervi sýndist mér) truflaði Bergþór [Pálsson söngvara] þegar hann var að tilkynna breytingu á efnisskránni og heimtaði að fá að spila á sellóið. Bergþór leyfði það með sem- ingi og þá upplýsti hún með skrækri röddu að hún ætlaði að flytja verk eftir Hcab Naitsabes Nnahój. Svo útskýrði hún að það væri Jóhann Sebastian Bach afturábak og að verkið héti Vögguvísa fýrir gamla hænu. Það samanstóð af stefnulausu sargi og gaggi, og var ekki ósvipað sumu af því sem maður á örugg- lega eftir að heyra á næstu Myrku músíkdögum." Þetta var að sjálfsögðu grín en margir höfðu ekki húmor fyrir því og töldu óviðeigandi að ég væri að dæma heila tónlistarhátíð fýrirfram. Ég ætti hér kannski að fara að ráði Hitlers í bók Kurts Vonnegut, God Bless You, Dr. Kevorkian. Læknir nokkur kemur Kurt tímabundið yfir móðuna miklu þar sem hann hittir marga fræga menn. Meðal annars á hann samtal við Hitler sem segir við hann að hann vilji að það verði reist stytta af sér á jörðinni. Undir henni eigi að standa: „Ég biðst afsökunar." Nú er ég auðvitað elcki að líkja mér við Hitler og ég er ekki heldur að fara fram á að það verði reist stytta af mér, en stytta af tónlistargagnrýnanda fyrir utan tónlistarhöllina fýrirhuguðu með afsökunarbeiðni fyrir neðan væri þó óneitan- lega smart! Að öllu gamni slepptu (já, þetta var grín) þá biðst ég afsökunar á þessum misheppnaða brandara um Myrka músíkdaga; ég meinti ekkert með honum. Nema auðvitað það að sum músík er einfaldlega leiðinleg. Fleiri tónlistargagnrýnendur Hér fyrir ofan minntist ég á Halldór Hauksson. Halldór kom til starfa sem gagnrýnandi Ríkisútvarpsins s.l. haust og á svipuðum tíma varð Finnur Torfi Stefánsson tónlistargagnrýnandi Fréttablaðsins og Sigurður Guðjónsson tónlist- argagnrýnandi DV. Báðir hafa þeir töluverða reynslu sem gagnrýnendur (við Finnur og Sigurður eigum það sameiginlegt að hafa allir skrifað fyrir DV) og þó TMM 2005 • 1 117
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.