Heimsmynd - 01.03.1988, Side 46

Heimsmynd - 01.03.1988, Side 46
LIF I LÆSTRI VEROLD Hann er þrítugur Reykvíkingur, en þó með langan afbrotaferil að baki. Hann hefur gist flest fangelsi landsins; Kvíabryggju, Skólavörðustíg og Litla-Hraun. Er sem stendur ný- kominn úr afplánun sem hann segir að verði sú síðasta. Hann virðist sjálfur sannfærður um að svo sé, kveðst orðinn fullsaddur á refsivist innan fang- elsisveggja, og hefur hug á að fara af landi brott. „Ef menn ætla að losna út úr þeim vítahring sem fangavistin og eftirköst hennar bjóða upp á, verða þeir að skipta um umhverfi,“ segir hann, „því í fangelsinu komast menn í kynni við sérstæðan hóp sakamanna, og eftir að kynni hafa einu sinni tekist, er ekki svo auðvelt að slíta þau tengsl.“ Ég fékk eitt sinn blóðeitrun, var kominn með rauða rönd upp fyrir olnboga, og fangavörðurinn lét sér nægja að draga eitthvað upp úr lyfjakassa sem hann rétti mér. Sagði mér að bíða þar til læknirinn kæmi næst. . . Sjálfur hefur hann aðallega fíkniefnabrot á sinni sakaskrá, en einnig fjársvik og skjala- fals. Hann ber ferilinn þó ekki utan á sér. Andlitið er unglegt, þótt svo- lítið hafi það látið á sjá, hann er snyrti- legur í útliti og stilltur í fasi. Það kemur í ljós að innan fangelsisveggjanna er hins vegar lítið rúm fyrir snyrtimennsku og hreinlæti. „Meðan ég var á Hrauninu, höfðum við einn sturtuhaus, fimmtíu og sex fang- ar, en þegar ég fór voru sturtuhausarnir orðnir þrír. Gólfið í sturtuklefunum var hreinn viðbjóður, allt uppflagnað og gróðrarstía fyrir sýkla. Enda eru fóta- sveppir og allskyns útbrot algengasti kvillinn sem menn verða að fást við þarna innan veggja. Og það er ekki eins og menn geti hlaupið til læknis þegar þeim þóknast, því læknirinn kemur einu sinni í viku, viðtalstíminn er aldrei aug- lýstur, og yfirleitt missti maður af honum út úr húsinu. Á öðrum tímum næst ekki í lækni, þótt mikið liggi við. Sjálfur fékk ég einu sinni blóðeitrun, var kominn með rauða rönd upp fyrir olnboga, og fangavörðurinn lét sér nægja að draga eitthvað upp úr lyfjakassa sem hann rétti mér. Sagði mér að bíða þar til læknirinn kæmi næst. Það vildi mér til happs að ég átti tíma hjá tannlækni daginn eftir og fékk þá að koma við á Slysavarðstof- unni, þar sem gert var að þessu.“ Hann tekur það hins vegar fram, að fyrir marga skipti það ekki máli hvort hreinlætinu sé fyrir að fara. „Þarna eru til að mynda menn sem eiga engan sama-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.