Heimsmynd - 01.03.1988, Side 54

Heimsmynd - 01.03.1988, Side 54
BRAGIJÖSEFSSON Ófrjósemi karla: í helmingi tilfella er kannski hægt að fá hjálp. JU, KANNSKI ERU ÞRÖNGAR GALLABUXUR VARASAMAR Getur verið að ófrjósemi fari vaxandi, til dæmis vegna þröngu gallabuxnanna sem oftast eru í tísku? „Ekki get ég fullyrt um það, ég hef ekki tölur til að sýna hver þróunin er,“ segir Guð- mundur Vikar. „Ég efa að sérstök rann- sókn hafi verið gerð á áhrifum þröngu gallabuxnanna á frjósemi. En þröngar gallabuxur geta valdið því að eistun lyft- ast um of og þá raskast hitastig þeirra, sem er mjög viðkvæmt. Fleira í nútíma þjóðfélagi getur bent til vaxandi ófrjósemi. Aukning á kynsjúk- dómatilfellum er staðreynd. Chlamydiu- sýkingum hefur fjölgað mjög og ófrjó- semi getur fylgt í kjölfar þess sjúkdóms eins og flestra annarra kynsjúkdóma." KARLMENNIRNIR ÚTUNDAN? Hvernig er aðstaðan til með- ferðar við ófrjósemi karla? „Það verður að segjast eins og er að mikið vantar upp á að við getum sinnt karlmönnunum sem skyldi hér á landi,“ segir Guðmundur Vikar þungur á brún. „Þessum vanda- málum hefur ekki verið sýndur nógu mikill áhugi. Við höfum í rauninni hvergi fengið inni fyrir sumar þær að- gerðir sem gera þarf. Ég get gert smærri aðgerðirnar á skurðstofunni okkar í Læknahúsinu, en langir biðlistar eru á sjúkrahúsunum og önnur tilfelli, enn brýnni, eru hreinlega tekin fram fyrir.“ TÆKNIFRJÓVGUN: HVERS VEGNA EKKI MITT SÆÐI? Ameðan einföldustu aðgerðir verða að bíða fleygir tækn- inni fram og orð eins og tæknifrjóvgun og jafnvel glasabörn eru að verða sjálfsagður þáttur í samfélaginu. Lítið mun vanta á að hægt sé að hefja glasabarnameðferð hér á landi, en sú aðferð hentar aðeins hluta barnlausra hjóna. Tæknifrjóvgun hefur verið stunduð hér á landi í allmörg ár og lengst af hefur verið notast við sæði úr dönskum karlmönnum. Sú leið var reyndar lokuð á tímabili af ótta við eyðni. „Karlmenn spyrja mig oft hvers vegna ekki sé hægt að nota þeirra sæði. Tæknifrjóvgun krefst þess að sæðið upp- fylli ákveðin skilyrði og sé sérlega vel fallið til þessarar aðgerðar. Þannig að sæði eiginmannsins er alls ekki endilega besti kosturinn, því menn eru jú að leita eftir árangri." Hver er mannlegi þátturinn í athugun og meðferð vegna ófrjósemi karlmanna? „Ég sé oft mikla angist," segir Guð- mundur Vikar. „Tilfinningahliðin er mikill hluti starfsins. Það er mjög mis- munandi hvað menn opna sig. Oft hefur barnleysi mjög afdrifarík áhrif á sambúð fólks og hjónaband. Þjóðfélagslega pressan er mjög þrúgandi. Menn eru sí- fellt minntir á barnleysið. Þetta er kannski enn erfiðara fyrir konurnar, því víða eru kvennadeildir sjúkrahúsanna við hliðina á meðgöngudeildinni. Það er jafnvel mögulegt að streita hafi neikvæð áhrif á möguleika hjóna til að eignast barn. Ef samfarir eiga að takast vel skiptir máli að sálræni þátturinn sé í lagi.“ HÚN: TILFINNINGIN - HANN: STOLTIÐ Guðmundur réttir að mér ljós- rit af grein sem upphaflega birtist í Los Angeles Times en þvagfæraskurðlæknar í Bandaríkjunum sáu ástæðu til að endur- birta í fagtímariti sínu (Urological Clin- ics of North America, septemberhefti 1987). Þar segir meðal annars: „Þegar hann bað mín spurði hann: „Viltu verða móðir barnanna minna?“ Stephen Lipton fannst orðalagið róman- tískara en vafningalaust bónorð. Arlene Nadleman var djúpt snortin. Hún hafði alist upp við þá tilhugsun að hún myndi eignast sína eigin fjölskyldu. Þau giftu sig 24. júní 1973. Eftir tveggja ára hjónaband ákváðu þau að eignast börn. Þau biðu. . .og biðu. . . mánuð eftir mánuð, rannsókn eftir rann- sókn. Arlene Lipton er nú orðin liðlega þrítug og segir: „Ég glataði tveimur ár- um í þrá eftir að verða móðir og þau skildu ekkert eftir sig nema tómt fangið, ógrædd ör, táraflóð og einmanaleika sem ég hafði aldrei fyrr kynnst.“ „Ég átti dálítið auðveldara með að sætta mig við þetta,“ segir Stephen, „en maður vill gefa barninu nafn sitt og kynnast því sem fylgir því að eiga barn. Mér svíður barnleysið." í þessari grein nota hjónin hvort sína áherslu til að lýsa barnleysinu; henni finnst hana vanta barn í fangið, hann barn til að bera nafn sitt. Hvort hér er um alhæfingu að ræða eða viðhorf sem á við fleiri er vitanlega útilokað að full- yrða. En í bókmenntum eru sömu minni vissulega þekkt. Guðmundur Vikar kannast við að mönnum þyki þeir minni karlmenn ef þeir eigi ekki börn, en telur það fyrst og fremst tengjast ótta þeirra við að vera taldir getulausir. En hann ítrekar að vissulega valdi barnleysið sjálft mörgum mönnum mikilli angist. Þess þá heldur er rétt að ítreka að stundum er hægt að fá hjálp. En þá verð- ur líka að leita hennar. □ 54 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.