Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 28
28 22. nóvember 2019FRÉTTIR
Þ
egar WOW air var sem
stærst þá hafði það vikið
frá mörgum þáttum sem
einkenna lággjaldaflugfé-
lög og var að mörgu leyti farið að
haga sér eins og hefðbundið flug-
félag eða eins og blanda af hefð-
bundnu og lággjaldaflugfélagi.
Icelandair starfar hins vegar mitt
á milli rekstrarforms lággjalda-
flugfélaga og hefðbundinna flug-
félaga sem er í samræmi við þær
skilgreiningar sem forsvarsmenn
þess gefa sjálfir upp. Virkur mark-
aður virðist vera til staðar fyrir
lággjaldaflugfélag á Íslandi.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um Braga Þórs Sigurðssonar en í
tengslum við BS-ritgerð hans við
Viðskiptafræðideild Háskóla Ís-
lands kannaði hann flugmarkað-
inn á Íslandi, eða nánar tiltekið
rekstrarumhverfi og rekstrarform
íslenskra flugfélaga. Fór hann
yfir stöðu á íslenskum flugmark-
aði, sem og framtíðarhorfur flug-
markaðar á Íslandi.
Víða heyrast efasemdir
Aðstæður á alþjóðlegum flug-
markaði eru afar krefjandi um
þessar mundir. Eftir að tilkynnt
var um stofnun Play í byrjun
mánaðarins hafa víða heyrst
áhygggjuraddir um ekki sé pláss
fyrir lággjaldaflugfélag á íslenska
markaðnum.
Í niðurstöðum Braga kemur
fram að athyglisvert sé að skoða
hvernig rekstrarform Icelandair
og WOW air kemur út þegar það
er borið saman við skilgreiningar
um lággjaldaflugfélög og hefð-
bundin flugfélög.
„Icelandair hefur verið að þró
ast meira í áttina að lággjalda
flugfélagi með nýju farrými þar
sem töskur eru ekki innifaldar
en samkvæmt skilgreiningum
eru þeir samt ennþá líkari hefð
bundnu flugfélagi. Vöxtur
lággjaldaflugfélaga hefur hins
vegar gert það verkum að hefð
bundin flugfélög verði að
leita leiða til að bjóða upp á
samkeppnishæf verð.“
Bilið fer minnkandi
Bragi bendir á að athyglistvert
væri að gera könnun á því hvort
farþegar Icelandair haldi að fé-
lagið sé hefðbundið flugfélag
eða lággjaldaflugfélag þar sem
Íslendingar og erlendir ferða-
menn virðast hafa ólíka mynd af
Icelandair.
„Í huga Íslendinga er
Icelandair hefðbundið flugfélag
en í huga annarra virðist það
vera lággjaldaflugfélag. Þegar
WOW air var sem stærst var það
komið langt frá þeirri lággjalda
hugmynd sem það lagði upp með
í byrjun og ljóst að það var búið
að hverfa frá mörgum þeim gild
um sem lággjaldaflugfélög vinna
eftir. WOW air er ekki eina dæm
ið um það en það má segja að
Norwegian hafi farið nákvæm
lega sömu leið, en það fór að bjóða
upp á fría þráðlausa nettengingu
í sínum flugum ásamt því að taka
inn stærri flugvélar og bjóða upp
á Premium farrými. ( Norwegian,
e.d.b) (Norwegian, e.d.c). Það
er því ljóst að bilið hjá mörg
um hefðbundnum og lággjalda
flugfélögum er að minnka, hins
vegar eru ennþá flugfélög á borð
við Emirates sem halda fast í sitt
rekstrar form sem hefðbundið
flugfélag.“
Þá bendir Bragi á að rekstrar-
umhverfi íslenskra flugfélaga
sé krefjandi. Íslenska krónan og
breytilegt gengi hennar getur haft
veruleg áhrif á rekstrarafkomu ís-
lenskra flugfélaga þar sem launa-
kostnaður er yfirleitt í íslenskum
krónum á meðan uppgjör eru
yfir leitt í Bandaríkjadollara.
„Þau flugfélög sem starfa eða
hafa starfað á Íslandi eru ekki
öfundsverð vegna þess gífurlega
launakostnaðar sem því fylgir
að hafa starfsemi hér á landi.
Áhugavert væri að sjá hvort hér
gæti starfað lággjaldaflugfélag
sem væri þó með höfuðstöðv
ar annars staðar en á Íslandi.
Ásamt launakostnaði er elds
neytiskostnaður hæsti gjalda
liður flugfélaga og sú hækkun
sem hefur verið á eldsneytisverði
undanfarin tæp tvö ár hefur gert
rekstrarumhverfi flugfélaga verra
svo um munar. Viðskiptavinir
flugfélaganna hafa fengið að
gjalda fyrir hæga uppbyggingu á
Keflavíkurflugvelli og hefði verið
athyglisvert væri að sjá hvernig
staðan væri í dag ef byggð hefði
verið ný stærri flugstöð í stað þess
að leggja áherslu á uppbyggingu
stæða.“
Lítil ógn af nýliðum
Fram kemur að mikil samkeppni
ríki í flugi yfir Atlantshafið og
þurfa íslensk flugfélög að vera vel
í stakk búin til að takast á við þá
samkeppni.
„Þessi samkeppni sem hefur
aukist mikið undanfarin ár hefur
gert það að verkum að rekstrar
afkoma margra flugfélaga hefur
versnað. Lítil ógn er af nýliðum á
flugmarkaði þar sem yfirleitt tek
ur tíma að byggja upp leiðakerfi
og viðskiptavinahóp. Sú mikla
samkeppni sem hefur verið í flug
heiminum getur leitt til lítillar
arðsemi.“
Þá segir Bragi að miðað við
viðbrögð almennings við falli
WOW air virðist sem íslenskir
neytendur séu sammála um að
hér á landi þurfi að vera starfrækt
lággjaldaflugfélag og hefur verið
athyglisvert að fylgjast með um-
ræðunni undanfarna mánuði.
„Það væri jákvætt fyrir neyt
endur ef það kæmist á laggirnar
flugfélag sem nær að fylgja betur
eftir þeim þáttum sem einkenna
lággjaldaflugfélög en WOW gerði
seinustu árin því það sýndi fyrstu
árin að það er svo sannarlega
markaður fyrir lággjaldaflug
félag á Íslandi.
Flugiðnaður er gífurlega
mikil vægur til að halda uppi
þeirri miklu uppbyggingu og fjár
festingu sem hefur orðið í ferða
þjónustu á Íslandi. Landfræðileg
staðsetning Íslands er sérstaða
og lykilatriði í áframhaldandi
starfsemi flugfélaga á Íslandi og
með fólksfjölgun jarðarinnar og
vænkandi hag jarðarbúa geta
leynst ýmiss konar tækifæri. Ljóst
er að þau flugfélög sem hér á
landi starfa, bæði nú og í fram
tíðinni, þurfa að halda áfram að
markaðssetja sig með áherslu á
góða landfræðilega staðsetningu
sem bjóði flug yfir Atlantshafið
á lágu verði. Vilji fólk gera sér
stopp á leið sinni yfir Atlantshaf
ið skemmir náttúran ekki fyrir.“ n
甀爀爀椀爀 䄀䜀䴀 攀愀 猀يح爀甀
爀愀昀最攀礀洀愀爀 昀礀爀椀爀 琀欀椀 漀最 爀切氀氀甀爀
匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㈀ ∠ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㔀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀
䴀椀欀椀 切爀瘀愀氀 ∠ 吀爀愀甀猀琀 漀最 昀愀最氀攀最 ︀樀渀甀猀琀愀
혀昀氀甀最椀爀 猀琀愀爀琀 爀愀昀最攀礀洀愀爀
洀爀最甀洀 猀琀爀甀洀䠀氀攀猀氀甀琀欀椀
䬀䰀섀刀䤀刀 촀 䈀섀吀䄀一䄀℀
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
„Virkur markaður virðist vera til
staðar fyrir lággjaldaflugfélag“
n Mun Play lifa af? n Bragi skrifaði BS-ritgerð um rekstrarumhverfi og rekstrarform íslenskra flugfélaga
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
Kátir með sig Forsvarsmenn Play.
Ævintýrið búið WOW-ævintýrinu lauk
og nú virðist Play ætla að taka við keflinu.