Ársrit um starfsendurhæfingu - 2013, Qupperneq 15
15www.virk.is
VIRK
þættir verða metnir í framtíðinni þarf að
sjálfsögðu að hafa það í huga að setja
árangur í samhengi við mismunandi stöðu
einstaklinga þegar þeir koma í þjónustu.
Verið er að hefja sérstakt þróunarverkefni
innan VIRK þar sem útbúa á staðlaða
mælikvarða eða vísitölur sem bæði gefa
réttar og raunhæfar upplýsingar og hægt
er að nota til að skoða reglulega árangur
og þróun í þjónustunni.
Allir einstaklingar sem koma í þjónustu til
VIRK eru beðnir um að fylla út þjónustu-
könnun í lok þjónustu. Þessi könnun
gefur mikilvægar upplýsingar um upplifun
einstaklinga af þjónustunni, árangri
hennar og einstökum þáttum hennar.
Þannig er unnt að sjá hvernig einstaklingar
upplifa bæði þjónustuna í heild sinni,
þjónustu hvers og eins ráðgjafa sem og
einstakra úrræða og úrræðaaðila. Á bls.
16 hér á eftir er gerð grein fyrir hluta af
þeim niðurstöðum sem fram hafa komið í
þessari þjónustukönnun.
Til framtíðar
Umfang starfsemi VIRK hefur vaxið
mikið undanfarin fjögur ár og framundan
er áframhaldandi vöxtur með mörgum
stórum og mikilvægum verkefnum. Á
sama tíma er unnið hörðum höndum
að því að bæta vinnuferla og þróa
árangursríkt vinnulag til framtíðar. Nú
í byrjun árs 2013 finnum við fyrir meiri
eftirspurn eftir þjónustu sem skýrist m.a.
af auknu samstarfi við lífeyrissjóði, aukinni
þjónustu við einstaklinga sem hafa verið
lengi án atvinnu í tengslum við verkefnið
„Liðsstyrkur“ og aukið hlutverk og ábyrgð
VIRK á mótun, fjármögnun og samþætt-
ingu á atvinnutengdri starfsendurhæfingu
hér á landi. Þessar breytingar kalla bæði
á aukinn mannafla og endurskoðun á
ýmsum þáttum í starfseminni. Sú vinna
er í fullum gangi þessa dagana. Einnig
er verið að endurskoða ýmsa samninga
við fagaðila á sviði starfsendurhæfingar
s.s. starfsendurhæfingarstöðvar um allt
land með það að markmiði að byggja
upp gott faglegt samstarf við þessa
aðila til framtíðar. Í dag á sér stað mikið
mótunarferli í starfsemi VIRK – ferli þar
sem mikilvægt er að halda öllum þráðum
saman í ört vaxandi starfsemi og byggja
upp rekstur sem er vel rekinn og bæði
faglegur og árangursríkur til framtíðar.
Starfsendurhæfing snýst um samvinnu og
lausnir. Mál einstaklinga eru oft á tíðum
flókin og við búum um margt í flóknu
velferðarkerfi þar sem einstaklingum
reynist erfitt að átta sig á möguleikum
og leiðum í erfiðri stöðu. Innan kerfisins
starfa margir ólíkir aðilar, svo sem fag-
aðilar sem gjarnan horfa á veruleika
einstaklinga út frá sinni eigin þekkingu
og reynsluheimi, framfærsluaðilar sem
leggja áherslu á að tryggja einstaklingum
réttindi og greiðslur í samræmi við lög,
reglur og kjarasamninga, opinberar
stofnanir þar sem hver og ein stofnun
hefur tiltekið ábyrgðarsvið í samræmi við
lög og reglur og atvinnurekendur sem
vilja byggja upp hagkvæman rekstur sem
tryggir starfsfólki góð störf og eigendum
arð af sinni fjárfestingu. Hver og einn
þessara aðila horfir á einstakling með
heilsubrest og skerta starfsgetu frá sínu
sjónarhorni sem mótast af reynsluheimi,
hagsmunum og hlutverkum hvers fyrir
sig. Starfsendurhæfing snýst að hluta til
um að breyta sýn, viðhorfum og stundum
hlutverki þessara aðila og fá þá til að
vinna saman að því að búa til aðstæður
sem aðstoða einstaklinga með skerta
starfsgetu til að verða virkir þátttakendur
á vinnumarkaði á ný. Þessi samhæfing
er ekki einföld en hún er vel möguleg ef
menn taka þátt í verkefninu með það í
huga að leita lausna en ekki vandamála.
Ábyrgð okkar allra er að tryggja að svo sé.