Ársrit um starfsendurhæfingu - 2013, Page 26

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2013, Page 26
26 www.virk.is VI RK Ég hef alltaf verið mjög félagslynd og ýmislegt gert í lífinu, unnið mikið og „verið dugleg“, eins og það er kallað. Notaði lengstum „íslensku leiðina“ kastaði öllu um öxl jafnóðum án þess að vinna úr því,“ segir Íris Jónsdóttir, 39 ára, sem býr á Ísafirði og hefur starfað þar um langt árabil. Lífgjöfin Íris Jónsdóttir „Einn daginn varð allt í einu mælirinn fullur,“ bætir hún við. „Endapunkturinn var sjálfstæður rekstur sem ég var með en gekk ekki upp. Mér leið mjög illa. Ég fór til læknis að áeggjan vinkonu minnar. Þá var ég orðin þannig að ég komst varla út í búð, átti erfitt með svefn og var mjög þreytt, en gat þó sinnt móðurhlutverkinu og því sem ég þurfti að gera inni á heimilinu. Það sem var utan þess réði ég ekki við. Hjá lækninum var mér bent á að líklega væri ég komin í „yfirkeyrslu“; álagið væri orðið alltof mikið. Ég fór eftir þetta til Akureyrar á sjúkrahús og greindist þar með áfallastreitu, sem var valdur að kvíða mínum, gríðarlegri félagsfælni og ótta við umhverfið. Fólk verður að átta sig á að eftir svona andlegt niðurbrot eru fyrstu skrefin til bata ekki stór, bara það að fara ein út í búð er talsvert verkefni.“

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.