Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Síða 30
Hvers vegna er örorkumat
á undanhaldi?
Hugmyndin um örorku varð til við aðrar
aðstæður, á tímum þegar starfsgeta tak-
markaðist öðru fremur af líkamlegri getu
og talið var að heilsuvandinn væri varanlegt
ástand. Nú á dögum er miklu algengara að
skert starfsgeta stafi af álagstengdum og
geðrænum vanda sem hæpið er að fullyrða
að sé varanlegur. Mönnum er nú ljóst að
sjúkdómurinn sjálfur eða heilsufarsástandið
gefur takmarkaða mynd af getu einstaklings
til virkni og starfa, en getan er í eðli sínu
fjölþætt og ræðst þar að auki af mörgum
öðrum þáttum en heilsu einstaklingsins
í þröngum skilningi. Auk þess er einhver
breytileiki yfirleitt til staðar, því með
endurhæfingu má auka færnina og hún
getur aukist með tímanum vegna bættrar
heilsu eða breyttra aðstæðna. Og til að meta
getu þarf að taka tillit til krafna og kröfur til
starfa eru afar misjafnar og þar með geta
einstaklingsins til að sinna ólíkum störfum.
Það hefur einnig orðið vitundarvakning um
skaðleg áhrif óvirkni og hliðsetningar; vinna,
þátttaka og virkni hefur ótvíræð jákvæð áhrif
á heilsu og lífsgæði einstaklingsins og er um
leið jákvæð fyrir samfélagið allt. (OECD)
Reynsla og lærdómur margra þjóða hefur
því leitt af sér kerfisbreytingu, þar sem lögð
er áhersla á gera kerfið heildstætt með
hámarks atvinnuþátttöku einstaklinganna
að markmiði. Til að bæta íslenska kerfið
er þróun og innleiðing starfsgetumats
mikilvægur þáttur, samhliða þeirri byltingu
í starfsendurhæfingu sem orðið hefur með
tilkomu VIRK. Jafnframt þarf að hvetja
og styðja atvinnulífið til að taka þátt í slíkri
breytingu og bæta möguleika þess til að taka
við starfsmönnum með skerta starfsgetu. En
ekki síður þarf tryggingakerfi sem styður
þessi markmið, t.d. með því að gera fólki
kleift að fá hálfar örorkubætur á móti skertu
vinnuframlagi og þar af leiðandi skertum
launum.
Samþætting endurhæfingar, atvinnustuð-
nings og tryggingakerfis eru leiðir að mark-
miðinu um aukna atvinnuþátttöku og virkni
einstaklinganna, en starfsgetumatið er á
hinn bóginn eitt mikilvægasta tækið til að
gera kerfið heildstætt og árangursríkt.
Heimildir
Halldór Baldursson, Haraldur Jóhannsson.
Nýr staðall fyrir örorkumat á Íslandi.
Læknablaðið 1999:85 bls. 480-483.
OECD. Sickness, Disability and Work:
Breaking the barriers: a synthesis of findings
across OECD countries, Paris: OECD, 2010.
Það hefur
einnig orðið
vitundarvakning um
skaðleg áhrif óvirkni
og hliðsetningar;
vinna, þátttaka og
virkni hefur ótvíræð
jákvæð áhrif á
heilsu og lífsgæði
einstaklingsins og er
um leið jákvæð fyrir
samfélagið allt.“
30 virk.is