Ársrit um starfsendurhæfingu - 2017, Qupperneq 61
AÐSEND GREIN
Viðbrögð háskólans við
streitu starfsfólks
Skólaárið 2016-2017 hefur verið unnið
úr niðurstöðum rýnihóparannsóknarinnar
og mótaðar tillögur að úrbótum í starfs-
umhverfi háskólans til að draga úr streitu.
Jafnframt hefur verið unnið að gerð
verklagsreglna fyrir skólann í heild til að
bregðast við streituvöldum í vinnuumhverfi
starfsmanna og setja ramma utan um
stuðning við starfsfólk sem upplifa streitu
í starfi sínu. Verklagsreglurnar taka m.a. til
upplýsingaöflunar og mats á aðstæðum,
forvarna, úrræða og eftirfylgni vegna álags
og streitu í starfsumhverfinu. Þær eiga jafnt
við um starfsumhverfi skólans í heild og
stuðning við einstaka starfsmenn eða hópa
starfsmanna. Áður en þessar tillögur verða
lagðar fyrir háskólaráð til umfjöllunar verða
þær sendar til umsagnar hjá þeim sem
hafa sérþekkingu og/eða reynslu á þessum
sviðum innan háskólans.
Tillögum hrint í framkvæmd
Lögð verður áhersla á að tillögur sem varða
breytingar á starfsumhverfi skólans verði
skoðaðar vel, þeim hrint í framkvæmd og
vonast er til að þær hafi tilætluð áhrif, þ.e.
að þær minnki álag og dragi úr streitu meðal
starfsmanna háskólans þegar til lengri tíma
er litið. Öllum er þó ljóst að starfsumhverfi
háskóla er flókið og margþætt og aldrei
verður hægt að koma í veg fyrir alla þá
þætti sem valda álagi. Upplifun og viðbrögð
einstaklinga við álagi er mismunandi og
mikilvægt er að þeir læri að stjórna þeim
þáttum starfsins sem þeir geta, læri að
þekkja inn á eigin viðbrögð við streitu og
þá áhættuþætti vinnuumhverfisins sem
ýta undir streitu í starfi. Í því skyni hefur
starfsfólki háskólans nú á vormisseri
skólaársins 2016-2017 gefist kostur á að
sækja námskeið á vegum starfsmannasviðs
um streitustjórnun. Námskeiðið stuðlar
að því að þátttakendur átti sig m.a. á eðli
vinnustreitu og helstu birtingarmyndum
hennar, áhættuþáttum vinnutengdrar
streitu og fyrstu merkjum um kulnun í starfi.
Jafnframt læra þeir að þekkja eigin viðbrögð
við streitu, fá skilning á hlutverki hugsana og
tilfinninga í streitu og læra leiðir til að minnka
streituvalda.
Stuðningur við unga
akademíska starfsmenn
Sérstakt námskeið, sem er sniðið fyrir
konur sem eru að hefja akademískan
starfsferil sinn, hefur verið mótað. Ákveðið
var að setja slíkt námskeið á laggirnar í ljósi
þess að niðurstöður úr starfsumhverfis-
könnun háskólans sýna að streita er mest
á meðal yngri kvenna í akademískum
störfum. Þessar niðurstöður samræmast
niðurstöðum úr rannsókn Guðbjargar Lindu
Rafnsdóttur og Thamar M. Heijstra (2011) á
því hvernig akademískt starfsfólk samræmir
vinnu og einkalíf. Niðurstöður rannsókn-
arinnar bentu til að sveigjanleiki starfs
akademískra starfsmanna hjálpi þeim að
sameina fjölskyldulíf og starfsskyldur. Þær
benda jafnframt til að konur í akademísku
starfi nýti þennan sveigjanleika í meira
mæli en karlkyns kollegar þeirra til að sinna
þörfum fjölskyldu og heimilis. Það gæti m.a.
skýrt að yngri konur í akademísku starfi
upplifi starfstengda streitu í meira mæli en
karlar í sams konar starfi.
Heilsuefling innan háskólans
Ein leið til að draga úr streitu er að stuðla að
heilbrigðum lífsháttum. Í fjölmörg ár hefur
háskólinn gert ótal margt til heilsueflingar
meðal starfsmanna sinna. Þar er til að mynda
rekið íþróttahús sem opið er nemendum og
starfsfólki skólans gegn vægu gjaldi. Í boði
eru bæði skipulagðir tímar í sal samkvæmt
stundatöflu og aðstaða í tækjasal.
Háskólaborgurum gefst einnig kostur á að
skrá sig í Háfit – háskólaþjálfun en það er
fjarþjálfun þar sem lögð er áhersla á að öll
leiðsögn sé fagleg, vönduð og árangursrík.
Í áratug hefur starfsmannasvið háskólans
staðið fyrir heilsumánuði. Þar hafa
m.a. nemendur í hjúkrunarfræði mælt
blóðþrýsting og blóðsykur, nemendur í
sjúkraþjálfun framkvæmt þolmælingar,
ótalmargir fræðimenn skólans haldið
hádegiserindi sem tengjast heilsueflingu og
boðið hefur verið upp á matreiðslunámskeið,
svo að fátt eitt sé nefnt. Heilsumánuðurinn
nær síðan hámarki í háskólahlaupinu þar
sem starfsfólki og nemendum gefst kostur á
að hlaupa 7 km með tímatöku eða taka þátt
í 3 km skemmtiskokki.
Síðastliðin fjögur ár hefur starfsmannasvið
boðið upp á námskeið í núvitund sem
margir starfsmenn hafa sótt. Þá má nefna
að starfsfólki gefst reglulega kostur á að fá
til sín sjúkraþjálfara sem veitir persónulega
fræðslu um starfsaðstöðu, s.s. hvernig
stilla á stóla, borð og tölvuskjái og hvaða
líkamsbeiting er góð til að koma í veg fyrir
óþægindi í vöðvum og liðum.
Skólinn tekur alvarlega það hlutverk sitt
að hlúa vel að starfsfólki sínu og bjóða
því starfsumhverfi sem stuðlar að velferð,
jafnrétti og heilbrigði. Þess er vænst að
vinnan sem lögð hefur verið í að skoða
streitu og álag meðal starfsmanna háskólans
skili sér í betra starfsumhverfi til lengri og
skemmri tíma.
Þess má geta að verkefnið hefur hlotið styrk
frá VIRK.
Mynd 2. Myndin sýnir niðurstöður úr spurningunni „Finnur þú fyrir streitu í starfi þínu?“ Súlurnar
sýna svarhlutfall þeirra akademísku starfsmanna sem svöruðu alltaf/næstum alltaf og oftast.
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
Konur
Karlar
58%
36%
56%
38%
58%
30%
2016
2014
2012
61virk.is