Gríma - 01.09.1933, Qupperneq 30
28
DRAUMKONA VÍSAR TIL KINDA
spurðu, hvað hann hefði fyrir sér um þetta. Þá
svaraði Hermann: »Mig dreymdi í nótt, aö kona
kæmi gangandi framan dalinn. Var hún stór vexti
og fasmikil og fór geyst. Bar hana skjótt til mín
og spurði mig umsvifalaust: ,Hermann! Ætlarðu að
láta hrútana þina drepast hérna frammi í dalnum?
Þeir eru í rimanum fyrir sunnan og ofan selið, eru
kræktir saman á hornunum og báðir komnir að
dauða.’« — Lögðu piltar lítinn trúnað á þetta, en
þó fóru þeir af stað, er Hermann hafði til þess
kvatt.
Að nokkrum tíma liðnum komu piltarnir aftur
með tvo hrúta, sem Hermann átti. Höfðu þeir ver-
ið kræktir saman á hornunum á þeim stað, sem
draumkonan hafði vísað til. Var annar þeirra
lagztur fyrir og kominn að dauða, en hinn var litlu
hressari.
7.
Andlátsboð.
(Eftir handriti Baldvins Jónatanssonar. Sögn Samsonar
Jónssonar).
Seinni maður Álfheiðar Björnsdóttur, móður
Björns Jóhannssonar frá Ljósavatni, hét Samson
Jónsson. Þegar þau hjón voru öldruð orðin, var
Samson staddur á Siglufirði, en Álfheiður var^ á
Ljósavatni hjá Birni syni sínum. Marsibil, dóttir
þeirra hjóna, var þar vinnukona hjá bróður sínurn.
Svo bar við eina nótt, að Samson dreymdi að kona
hans kæmi að rúmi hans, lyti niður að honum og