Gríma - 01.09.1933, Qupperneq 58
56
DÝRIÍ) í HÓLMLÁTURSTJÖRNINNI
24.
Dírlð í Hólmláturstj ðrninnl.
(Handrit skólastjóra séra Magnúsar Helgasonar).
Hólmlátur heitir innsti bær á Skógarströnd. Bser-
inn stendur spottakorn frá sjó sunnan við Hvamrcs-
fjörð innarlega, vestan undir hæðum nokkrum, er
kenndar oru við bæimi og kallaðar Hólmlátursborg-
ir. Mýrarsuna er að sunnanverðu við borgirnar;
liggur þar leiðin inn að Gunnarsstöðum, yzta bæ x
Hörðudal. í mýrarsundinu eru tjarnir tvær, ekki
stórar; önnur grunn, en hin er sögð djúp rcjög.
Reiðgatan liggur inn með Borgunum, milli þeirra
og tjarnanna. Þegar eg var prestur á Breiðabólstað
á Skógarströnd (1883—85), bjuggu á Hólmlátri
bændur tveir, Jörundur og Daníel. Jörundur var
Guðbrandsson og hafði búið á Hólmlátri eftir föð-
ur sinn; hann var þá við aldur, er eg kom vestur,
vel efnaður, greindur maður og gætinn, óframgjarn,
grandvarasti maður til orða og verka, mikilsvirður
og vinsæll. Á móti honum bjó tengdasonur hans,
Daníel Sigurðsson, góður bóndi, prýðilega gefinn
og vel að séx-, vinsæll og bezti drengur. Þeir fóru
síðar báðir til Vesturheims. Þeir sögðu mér báðir
saman sögu þá, er hér fer á eftir.
Það var sumarið 1882 um túnasláttinn, að sonur
Daníels 11—12 ára (að mig minnir) rak kýrnar
eftir mjaltir um morguninn inn veginn sunnan und-
ir Borgunum. Veit hann þá ekki fyrri til en til
kúnna kemur skepna nokkur, án þess að hann tæki
eftir hvaðan hún kom. Hún var á stærð við kú,