Gríma - 01.09.1933, Page 77

Gríma - 01.09.1933, Page 77
SAGAN AF NÆFRAKOLLU 75 Fengu þær nú Næfrakollu sæniilegt efni og settist hún að saumum sú þriðja. Leið svo hver dagurinn af öðrum; saumuðu þær af kappi og miðaði drjúgum með skykkjurnar, Sneið Næfrakolla skykkju sína svo snyrtilega, að hver maður hlaut að dást að; síðan setti hún hana fögrum gullsaumi og glitrandi gimsteinum, svo að karlsdætur féllu alveg í stafi, þegar þær sáu list- fengi Næfrakollu og allt það skraut, sem hún bar í verk sitt; skildu þær sízt í því að ótigin göngu- kona væri svo vel að sér og ætti ráð á slíkum ger- semum; vissu þær ekkert um öll þau auðæfi, sem Næfrakolla átti í böggli sínum. Loksins voru þær allar búnar með skykkjurnar og blandaðist þeim ekki hugur um, hver þeirra var fegurst, því að skykkja Næfrakollu bar svo af hinum sem gull af eiri; þegar sólai’ljósið skein á hana, var líkast því sem geislaði af hverju nálspori og gimsteinarmr tindruðu eins og stjörnur. »Nú verður önnurhvor ykkar að taka við minni skykkju, eins og þið 3of- uðuð mér í fyrstucc, mælti Næfrakolla við systurn- ar, »því að eg kæri mig ekki um að mín sé getið að neinu«. »Þá er bezt að eg taki við henni og seg- ist hafa saumað hana«, svaraði eldri systirin; »þá getur yngri systir mín fengið mína skykkju í stað sinnar, því að mín er miklu betur gerð, eins og þið sjáið«. »Það stendur mér alveg á sama«, svar- aði Næfrakolla, »þið hafið það eins og ykkur gott þykir«. Á tilteknum degi stefndi kóngsson saman öllum meyjum, er tekið höfðu þátt í samkeppninni. Kom þar saman mikill fjöldi manna; var þröng mikil og olnbogaskot í hóp meyjanna, því að ein þóttist ann-

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.