Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201918
HROSS&HESTAMENNSKA
FRÉTTIR
Flugfarþegum í ríkjum Evrópusambandsins hefur fjölgað um 43% frá 2010:
Flugið í ESB-löndum 2018 samsvarar því að
hver einasti íbúi hafi farið í tvær flugferðir
– Flestir fóru um Heathrow í London, en yfir 10 milljónir flugfarþega um Ísland og þar var líka langmesta fjölgunin innan Evrópu
Þrátt fyrir allt tal og kröfur um
nauðsyn þess að berjast gegn losun
gróðurhúsalofttegunda og mik-
inn fjölda alls konar ráðstefna og
funda þar sem þau mál ber á góma,
þá fer flugfarþegum í löndum
Evrópusambandsins ört fjölgandi.
Á árinu 2018 samsvaraði farþega-
fjöldinn í ESB-löndum því að hver
einasti íbúi Evrópusambandsins
hafi farið í tvær flugferðir það ár
og rúmlega það.
Árið 2010 voru flugfarþegar í
löndum Evrópusambandsins 776
milljónir samkvæmt tölum Eurostat,
en fóru yfir milljarð árið 2017. Á
árinu 2018 fjölgaði þeim enn og voru
þá 1.106 milljónir talsins en íbúarnir
um 513 milljónir. Nam fjölgun far-
þega um 6% frá 2017 og hefur flug-
farþegum í ESB-löndunum fjölgað
frá 2010 um 43%. Af heildar far-
þegafjöldanum voru 46% að fljúga
milli flugvalla í ESB-löndunum
og 37% til og frá öðrum löndum í
Evrópu. Um 16% farþeganna var að
fljúga til og frá öðrum heimsálfum,
eða rétt rúmlega sjötti hver farþegi.
Yfir 10 milljónir flugfarþega á
Íslandi og langmesta fjölgunin
innan Evrópu
Í gögnum Eurostat kemur líka fram að
um þrjá millilandaflugvelli á Íslandi,
þ.e. Keflavík, Akureyri og Reykjavík,
hafi farið 10.166.000 farþegar 2018
sem var 22,3% aukning frá 2017.
Það var jafnframt langmesta aukn-
ing farþega í löndum innan Evrópu,
en af þessum fjölda voru rúmlega 9,8
milljónir í flugi milli landa.
Langflestir fara um
Heathrow-flugvöll í London
Annasamasti flugvöllur Evrópu er
Heathrow í London en um hann
fóru 80 milljónir farþega á síð-
asta ári. Þar var aukningin 3% frá
2017 til 2018, en um 48 milljónir
af þessum farþegum flugu á leiðum
innan Evrópu. Næst kom Charles
de Gaulle-flugvöllur í París með 72
milljónir farþega og 4% aukningu,
þá Schiphol-flugvöllur í Amsterdam
í Hollandi með 71 milljón farþega
og 4% aukningu, Frankfurt Main-
flugvöllurinn í þýskalandi var þá með
69 milljónir farþega og 8% aukn-
ingu og í fimmta sæti var Barajes-
flugvöllur í Madrid á Spáni með 56
milljónir farþega og 9% aukningu á
milli ára.
Næst þar á eftir kom El Prat-
flugvöllur í Barselóna á Spáni með
50 milljónir farþega og 6% aukningu
á milli ára. Því næst flugvöllurinn í
München með 46 milljónir fraþega
og 4% aukningu. Þá kom Gatwick
í London með 46 milljónir farþega
og 1% aukningu. Síðan Liumicino
flugvöllur í Róm með 43 milljónir
farþega og 5% aukningu. Í tíunda sæti
var svo Orly-flugvöllur í París með
33 milljónir farþega og aukningu á
milli ára upp á 3%.
Miðað við þetta kemur ekki á
óvart að Bretland var með flesta
flugfarþega á síðasta ári, eða um 272
milljónir. Næst kom Þýskaland með
222 milljónir, Spánn var með 221
milljón, Frakkland með 162 milljónir
og Ítalía var í fimmta sæti með 153
milljónir flugfarþega.
Af 30 umferðarmestu flugvöll-
um í ESB-ríkjunum státuðu allir
nema flugvöllurinn í Hamborg og
Düsseldorf af aukningu flugfar-
þega á milli áranna 2017 til 2018. Í
Hamborg fækkaði um 2% og um 1%
í Düsseldorf.
Mesta fjölgun flugfarþega
innan ESB var í Búdapest
Mesta fjölgun flugfarþega í ESB-
löndum milli ára var um Liszt Ferenc
flugvöll í Búdapest í Ungverjalandi,
en þar fjölgaði farþegum um 14%.
Þá fjölgaði farþegum á Chopina-
flugvelli í Varsjá í Póllandi um
13%. Á flugvöllunum Eleftherios
Venizelos í Aþenu í Grikklandi,
Schwechat-flugvelli í Vín í Austurríki
og á Vantaa-flugvelli í Helskinki í
Finnlandi fjölgaði farþegum um 11%
á síðasta ári. Þá fjölgaði farþegum um
10% á Malpensa-flugvelli í Mílanó á
Ítalíu. Eins fjölgaði um 9% á Ruzyne-
flugvelli í Prag í Tékklandi, Lisboa-
flugvelli í Lisabon í Portúgal og á
Barajas-flugvelli í Madrid á Spáni.
/HKr.
Brothættar byggðir í Hrísey:
Óskað eftir framlengingu
í eitt ár hið minnsta
Bæjarráð Akureyrar hefur
lýst yfir vilja sínum til að
óska eftir framlengingu á
byggðaþróunarverkefninu
Brothættar byggðir í Hrísey og
hefur falið bæjarstjóra að vinna
málið áfram.
Hverfisráð Hríseyjar hefur
skorað á Byggðastofnun að
framlengja verkefnið í eynni um
að minnsta kosti eitt ár og óskaði
eftir afstöðu bæjarins til málsins.
Unnið að góðum verkefnum
Fram kemur í erindi Hríseyinga
að verkefninu Brothættar byggðir
í eyjunni ljúki nú í ár, en talið er
að það hafi haft jákvæð áhrif bæði
á íbúaþróun og atvinnulíf. Meðal
annara verkefna var rekstur
Hríseyjarbúðarinnar efldur og
hvannarverkun hjá Hrísiðn ehf.
þróuð. Annað stórt verkefni sem
hlaut styrki er framleiðsla á land-
námshænueggjum í eyjunni.
„Íbúaþróun er byrjuð að snúast
við, og atvinnutækifærum fjölgar
rólega. Til þess að þessi þróun
haldi áfram og verkefnin nái betur
að festa sig í sessi, er æskilegt að
áframhaldandi stuðningur verði
veittur,“ segir í erindinu.
Íbúum í Hrísey hefur fjölgað
hin síðari ár, þeir voru 172 árið
2015, þeim fækkaði niður í 151 í
fyrra en í ár eru 167 íbúar skráðir
til heimilis í Hrísey. /MÞÞ
Við minnum á að lokafrestur til að panta KUBOTA
heyvinnuvél ááramótatilboði okkar er 31. desember næstkomandi.
Þeir sem panta vél fyrir þann tíma fá hana samsetta og keyrða heim á
hlað sér að kostnaðarlausu.
Einnig er vert að ítreka það, að með því að panta vél tímanlega er tryggt að hægt verður
að afhenda hana á réttum tíma fyrir slátt á komandi sumri.
Verðlista yr KUBOTA heyvinnuvélar var dreift inn á sérhvert lögbýli landsins í lok
nóvember. Ha hann ekki borist þér getur þú haft samband við sölumenn okkar
og fengið hann sendan um hæl.
Einnig er hægt að hlaða honum niður á heimasíðu okkar, www.thor.is eða á Facebook
síðu landbúnaðardeildar: Þór hf. - Landbúnaður
Bændur athugið!
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Hrísey. Mynd / HKr.