Bændablaðið - 19.09.2019, Page 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 19
„Við fögnum því fyrst og fremst
að málið er í höfn og framkvæmd-
ir hafnar. Búið er að tengja
saman austur og vesturbakka
Eyjafjarðarár með landfyllingu og
hægt að ganga þurrum fótum yfir
í Stórhólma,“ segir Sigfús Ólafur
Helgason, framkvæmdastjóri
Hestamannafélagsins Léttis, um
smíði brúar yfir Eyjafjarðará
en hún mun nýtast hestafólki
á ferð um Kaupvangsbakka, á
leið fram í Eyjafjörð eða austur
í Þingeyjarsýslu. Framkvæmdir
við smíðina hófust á dögunum.
Nokkur styrr stóð um brúarsmíð-
ina, Léttismenn hafa undanfarið eitt
og hálft ár tekist á við bæjaryfirvöld
á Akureyri um smíðina og hver beri
kostnað af henni.
Brúin skiptir verulegu máli
fyrir hestafólk en hún nýtist fyrir
hestaumferð milli Eyjafjarðar
og Þingeyjarsýslu og eins vegna
umferðar hestafólks fram í Eyjafjörð.
„Það var á stundum tekist á við bæj-
aryfirvöld en við töldum okkur hafa
réttinn okkar megin og sem betur
fer fékk þetta mál farsælan endi,“
segir Sigfús.
Vonum að verkið
vinnist hratt og vel
Hann segir Léttisfólk fagna því að
framkvæmdir við brúarsmíðina séu
hafnar og að þetta erfiða mál sé að
baki. „Við vonum að verkið vinnist
hratt og vel og stefnum að því að
vígja þessa nýju reið- og göngu-
brú á Eyjafjarðará með viðhöfn
á mikilli hátíð sem efnt verður til
síðla í maí á næsta ári í tengslum
við hina árlegu Bakkareið Léttis á
Kaupvangsbökkum,“ segir Sigfús og
bætir við að nýja brúin verði glæsi-
legt mannvirki sem nýtast mun sem
tenging milli austur- og vesturbakka
um ókomin ár.
Mikil samgöngubót fyrir
hestamenn og útivistarfólk
„Nýja brúin á Eyjafjarðará verður
okkur öllum til sóma og mikil
samgöngubót fyrir, ekki bara
okkur hestamenn eina, heldur
líka allt annað útivistarfólk
sem notar bakka Eyjafjarðarár í
ríkum mæli til göngu- og fugla-
skoðunar. Við Léttismenn börðu-
mst því ekki bara fyrir brúnni
fyrir okkur hestamenn, heldur
miklu fleiri líka,“ segir Sigfús.
/MÞÞ
Tryggðu þér miða á Landsmót
hestamanna 2020 á Hellu á besta
mögulega verðinu með því að kaupa
miða í forsölu á aðeins 16.900 kr.
Forsöluverð gildir til 31.12.2019.
ATH. Með því að kaupa miða í gegnum
þitt hestamannafélag renna 1.000 kr.
til félagsins.
Reið- og göngubrú byggð yfir Eyjafjarðará
Framkvæmdir eru hafnar við smíði brúar yfir Eyjafjarðará en hún mun tengja austur- og vesturbakka Eyjafjarðar.
Brúin nýtist umferð hestafólks um svæðið en einnig þeim fjölmörgu sem þangað fara í fuglaskoðunar- og gönguferðir.
Almannavarnir Suðurlands:
Viðbragðsáætlanir
Viðbragðsáætlanir verða unnar
vegna skógar- og kjarrelda, jarð-
skjálfta á Suðurlandi og heimsfar-
aldra innflúensu.
Fulltrúar Almannavarna
Suðurlands voru gestir á fundi
Héraðsnefndar Árnessýslu á dögun-
um þar sem Ásta Stefánsdóttir, for-
maður Almannavarna Árnessýslu,
Björn Ingi Jónsson almannavarna-
fulltrúi og Kjartan Þorkelsson,
lögreglustjóri á Suðurlandi, komu
inn á fundinn og fóru yfir málefni
Almannavarna. Björn Ingi lagði
mikið upp úr því að um sé að ræða
eitt svæði og eitt afl. Það eru 14
sveitarfélög sem eiga aðild að þessu
samstarfi og þrjár héraðsnefndir.
Fram kom á fundinum að áætl-
að er að fara í vinnu við viðbragðs-
áætlanir vegna skógar- og kjarrelda,
jarðskjálfta á Suðurlandi, heimsfar-
aldra innflúensu og eldsumbrota í
Öræfajökli svo eitthvað sé upp talið.
/MHH
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.