Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 21
ingur á plasti og öðrum úrgangi, m.a.
frá Vesturlöndum, skilið eftir arfleifð
jarðvegs og loftmengunar. Eftir því
sem landið verður ríkara er vaxandi
þrýstingur á að hreinsa til.
Kínverjar reyna að finna
lausn á eyðingu 280 milljóna
tonna af sorpi á ári
Kínverskt samfélag skilur eftir sig
meira en 280 milljónir tonna af
úrgangi á ári, samkvæmt opinberum
gögnum. Um það bil 60 prósent
af þessu sorpi er enn urðað. Það
sem eftir er fer til brennslu eða í
lífefnafræðilega meðhöndlun. Þar
sem engin merki eru um að það
dragi úr þéttbýlismyndun, né að
það dragi úr aukningu velmegunar,
þá má búast við að úrgangur haldi
áfram að aukast verulega. Þannig
stefnir í mikið óefni ef ekkert er
að gert.
Kínverjar hófu „No-Waste City“
áætlun sína í desember 2018, sem
miðar að því að hvetja til endurvinnslu
í 10 borgum. Tilraunaverkefnið felur
í sér að hverfa frá urðun og fara í
hættuminni aðferðir fyrir umhverfið
við sorpeyðingu.
Söfnun á metani úr úrgangi er
ein leið í áætlun Kínverja sem er
reyndar ekki ný af nálinni í þessu
fjölmennasta landi heimsins. Með
því hafa menn séð leið til að draga úr
loftmengun jarðar og hjálpa um leið
við að fullnægja vaxandi eftirspurn
eftir orku í landinu.
165 megawatta sorporkustöð
sem á að skila 550 milljónum
kwst af rafmagni á ári
Shenzhen East-verkefnið í Guang-
dong-héraði í Kína snýst um að setja
upp 165 megawatta orkuver. Þetta
verður ein stærsta sorporkustöð
heims þegar hún verður fullbúin.
Verið mun geta brennt 5.600 tonnum
af föstum úrgangi frá sveitarfélögum
á sólarhring.
Það er Shenzhen orku-umhverfis-
verkfræðifyrirtækið á Shenzhen
sem stendur fyrir þessu verkefni.
Verksmiðjan mun geta unnið um
það bil þriðjung af árlegum föstum
úrgangi sveitarfélagsins í Shenzhen
og framleitt 550 milljónir kWst af
rafmagni á ári. Shenzhen, með 20
milljónir íbúa, framleiðir um það
bil 15.000 tonn af föstum úrgangi á
dag, sem búist er við að muni aukast
um 7% á ári.
Hönnun verksmiðjunnar hófst
snemma árs 2016 og áætlað er að
hún verði gangsett á næsta ári, þ.e.
2020.
Mjög fullkomið brennslukerfi
Nýja sorporkustöð Shenzhen East
mun nota brennslukerfið sem hannað
er af Babcock & Wilcox. Það felur
í sér einhverja fullkomnustu tækni í
sorpbrennslu og orkuvinnslu sem til
er. Í verksmiðjunni mun verða sex
DynaGrate brunakerfi sem hönnuð
eru af Babcock & Wilcox, en fyr-
irtækið eignaðist þetta vörumerki
árið 2001. Þar mun vera um að
ræða háþróaða útgáfu af Bruun &
Sørensen orkutækni sem býður upp
á framúrskarandi afköst með lágum
viðhaldskostnaði.
Kerfið gerir mönnum kleift að
afgreiða allt að 55 tonn af úrgangi
á klukkustund. Búnaðurinn verður
framleiddur í framleiðsluaðstöðu B
& W í Esbjerg í Danmörku og síðan
fluttur til Kína í 48 hlutum og settur
saman aftur undir eftirliti leyfishafa.
Nýta þakið líka til
raforkuframleiðslu
Þak stöðvarinnar mun mæla 66.000
fermetra. Þar af verða allt að 44.000
m² þaktir með sólarsellum til að
framleiða endurnýjanlega orku fyrir
starfsemina. Aðstaðan mun einnig
innihalda upplýsingamiðstöð fyrir
gesti og útsýnispall á þaki sem er í
raun 1,5 kílómetra löng göngubraut.
Umhverfi stöðvarinnar verður líka
mjög vistvænt og nýtt til útivistar.
Á þaki Shenzhen East-sorporkustöðvarinnar verða sólarsellur sem framleiða rafmagn og allt um kring verður gangbraut fyrir ferðamenn til að njóta útsýnisins.
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
limtrevirnet.is
Íslenskar einingar
fyrir íslenskt veðurfar
Hjá Límtré Vírnet færðu hinar einu og sönnu Yleiningar
- stálsamlokueiningar með steinullareinangrun á milli.
Hagkvæm, umhverfisvæn og myglufrí byggingarlausn.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Kynntu þér Yleiningar á limtrevirnet.is.
Söluskrifstofur - Lynghálsi 2 - 110 Reykjavík
Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Óskum viðskiptavinum og öðrum
landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári og þökkum viðskiptin á árinu!
PGV
FRAMTÍÐARFORM EHF
P L A S T G L U G G A V E R K S M I Ð J A
SKIPHOLT 35, 105 RVK - SÝNINGARSALUR I 510-9700 I PGV.IS