Bændablaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 29
Forystufé á Facebook
Gulla segir að leiðbeinandinn sinn,
Gísli Sigurðsson, hafa reglulega
imprað á því við sig eftir útskrift
hvort hún ætli ekki að taka þessa
ritgerð sína lengra, halda áfram að
vinna með þetta efni og safna sögum
um þetta æðislega fé.
„Já, ég er svona aðeins farin að
byrja á því núna, en fyrsti liður í því
var að stofna hópinn „Forystufé á
Facebook“. Á tveimur sólarhringum
bættust 400 manns í hópinn og það
er enn að tínast til, sem eru miklu
betri viðbrögð en ég þorði að vonast
eftir. Það er greinilega mikill áhugi
fyrir hendi og fólki finnst gaman að
geta deilt myndum af þessu fallega
fé og sagt frá því, enda hefur það
yfirleitt stóran persónuleika.
Í framhaldi af þessu er farin að
aukast þráin hjá mér að safna saman
í nýja bók, nokkurs konar sjálf-
stætt framhald af því sem Ásgeir
frá Gottorp gerði með bók sinni
Forystufé á sínum tíma, sem kom
út um miðja 20. öld. Ég vil fara
almennilega ferð um landið, taka
viðtöl við fólk og fé og safna saman
sögunum sem við eigum í dag, svo
þær glatist ekki,“ segir Gulla og
bætir við að verkefnið sé samt allt
á algjöru byrjunarstigi og að hún sé
ekki búin að finna út úr praktískari
atriðum eins og hvernig það verk
yrði fjármagnað.
Allt öðruvísi sögur í dag
Verði niðurstaðan sú að Gulla safni
saman efni um forystufé í bók
segir hún að sögurnar í dag séu allt
aðrar en þær sem var verið að safna
kringum 1950, hafa öðruvísi þemu
og aðrar áherslur.
„Já, lýsingarnar eru ekki lengur
eins og á fornköppunum og gáfa
þeirra til að segja fyrir um veður
nýtist ekki jafn mikið í dag. Núna
tölum við um þessar kindur sem
frekjur eða krútt og tölum meira um
ærnar heldur en sauðina eða hrútana.
Það er samt sem áður alltaf þessi
sami grunnur, fólk sem elur forystu-
fé dáist að því, leiðtogahæfni þess,
hæfileikum og vill fá að deila þeim
sögum með öðrum,“ segir Gulla frá
Gróustöðum. /MHH
Gulla ásamt foreldrum sínum á Gróustöðum í Gilsfirði. Móðir hennar lést haustið 2017 en hún hét Signý Magnfríður
Jónsdóttir, fædd 1962, og var 55 ára þegar hún lést. Pabbi hennar er Bergsveinn Grétar Reynisson, fæddur 1964
og varð 55 fyrr á árinu. Bróðir Gullu heitir Jón Ingibe, fæddur 1988 og er því 31 árs og sjálf er Gulla fædd 1991 og
er því 28 ára gömul. Mynd / Úr einkasafni
Foreldrar Gullu stofnuðu árið 2012 lítið fyrirtæki, sem kallast „Össusetur
Íslands“ en það er með sýningu um íslenska haförninn. Mynd / Úr einkasafni
RAFÓS
rafverktakar
e
h
f
Tökum að okkur öll verkefni sem við kemur raflögnum,
hvort sem er viðhald, viðbætur eða nýlagnir fyrir
fyrirtæki, iðnað eða almennan notanda.
Rafós er löggiltur rafverktaki með reynslu í óháðri
ráðgjöf og uppsetningu hleðslustöðva. Setjum upp allar
gerðir hleðslustöðva fyrir einstaklinga, sameignir og
fyrirtæki.
Ef búnaður er ekki fyrir hendi, þá veitum við ráðgjöf við
val á búnaði miðað við þarfir.
RAFÓS
rafverktakar
e
h
f
Freyjunesi 10, 603 Akureyri
Sími: 777 1802
Email: rafos@rafos.is
Erum einnig á facebook
Almanak
Háskóla Íslands 2020
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
Almanak (ásamt Árbók)
Þjóðvinafélagsins 2020
ALMANAKHins íslenska
Árbók Íslands
2020
2018
146. árgangur
ALMANAK ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS 2020 - ÁRBÓK 2018
Fást í helstu bókaverslunum um land allt
Almanak 2019*2_Layout 1 02/12/2019 16:44 Page 1
ÖRMERKINGANÁMSKEIÐ
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins áformar að halda örmerkinga
nám skeið í janúar 2020. Að námskeiði loknu geta þátttakendur
sótt um leyfi til örmerkinga hrossa hjá MAST, á grundvelli laga um
velferð dýra.
Námskeiðin verða haldin á þremur stöðum, verði þátttaka næg:
√ Hvolsvöllur, föstudagur 17. janúar / (síðasti skrán.dagur fös. 10. janúar).
√ Hvanneyri, föstudagur 24. janúar / (síðasti skrán.dagur fim. 16. janúar).
√ Akureyri, fimmtudagur 30. janúar / (síðasti skrán.dagur fim. 23. janúar).
Um er að ræða eins dags námskeið, bæði bóklegt og verklegt, frá kl.
9:0016:00. Námskeiðsgjald er kr. 50.000, með einni örmerkingabók
innifalinni í verði. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku
hjá undirrituðum.
Pétur Halldórsson, RMLHvolsvelli: petur@rml.is / S: 8629322 eða
5165038.
Ath. að félagar í Bændasamtökum Íslands geta átt rétt á styrk úr
Starfsmenntasjóði BÍ (sjá nánar: http://www.bondi.is/felagsmal/
starfsmenntasjodur/).