Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 31
Sjúkratryggingar Íslands hafa
ákveðið að kaupa tuttugu og fimm
nýja sjúkrabíla í kjölfar útboðs
Ríkiskaupa. Reiknað er með að
fyrstu bílarnir verði afhentir
fullbúnir til notkunar í september
á næsta ári.
Fyrirtækið Fastus átti tilboðið
sem skoraði hæst og var tekið.
Bílarnir tuttugu og fimm eru af
tegundinni Mercedes Benz Sprinter.
Þeir eru stórir og rúmgóðir sem
tryggir sjúklingum góðar aðstæður,
auðveldar sjúkraflutningamönnum
að sinna þeim um borð og eykur
þannig öryggi þjónustunnar. Í
útboðinu var áhersla lögð á að nýir
bílar myndu uppfylla ströngustu
kröfur sérfræðinga varðandi öryggi,
aðbúnað og vinnuumhverfi.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra segir þetta stóran og kær-
kominn áfanga: „Í heilbrigðisstefnu
til ársins 2030 er sérstök áhersla lögð
á skilvirka og öfluga sjúkraflutninga
sem lið í því að jafna aðgengi lands-
manna að góðri heilbrigðisþjónustu
óháð búsetu. Endurnýjun sjúkrabif-
reiða og búnaðar skiptir þar miklu
máli, til að halda uppi tilskildum
gæðum, tryggja öryggi sjúklinga
og sjúkraflutningamanna og standa
undir umfangi þjónustunnar til fram-
tíðar,“ segir heilbrigðisráðherra.
Samkvæmt fyrrnefndu samkomu-
lagi er gert ráð fyrir að alls verði 68
sjúkrabifreiðar endurnýjaðar fyrir
árslok 2022, en flotinn samanstendur
af um 80 bílum alls. Samkomulagið
gerir því ráð fyrir endurnýjun á
stærstum hluta þeirra sjúkrabíla sem
nú eru í notkun á samningstímanum.
Með þessu mun takast að endurnýja
alla sjúkrabíla sem eru í fremstu röð
viðbragða. /MHH
Gylfafl öt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is
Frostagötu 2a • 603 Akureyri • velfang@velfang.is - VERKIN TALA
KUHN áramótatilboð
gildir til 5. janúar 2020
LÍF&STARF
Tuttugu og fimm nýir
sjúkrabílar keyptir
Tuttugu og fimm nýir sjúkrabílar verða afhentir í september 2020.
Mynd / MHH
Vilja þyrlur
á Egilsstaði
Á fundi bæjarráðs Fljótsdals
héraðs nýlega fór Björn Ingimars
son bæjarstjóri yfir fyrri umfjöll
un og umræður varðandi sjúkra
flug á Austurlandi.
Fram kom hjá honum að
einungis ein sjúkraflugvél er star-
frækt á landinu, sem gerð er út frá
Akureyri. Í ljósi þess er augljóst
að upp getur komið mjög alvar-
leg staða, ef útköll koma á sama
tíma á mismunandi landsvæðum.
Eftirfarandi tillaga var lögð fram
og samþykkt samhljóða:
„Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
tekur undir með bæjarráði og árétt-
ar að brýnt er að komið verði upp
aðstöðu fyrir hluta útgerðar þyrlu-
sveitar Landhelgisgæslunnar á
Egilsstaðaflugvelli eða að þar verði
staðsett sérstök sjúkraþyrla til að
sinna bráðatilfellum á þessu land-
svæði. Bæjarstjórn leggur áherslu á
að mótuð verði sem fyrst framtíðar-
stefna í sjúkraflutningum.“ /MHH
Uppsveitir Árnessýslu:
Heilsueflandi
samfélag
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar skoð
ar nú möguleika á samstarfi sveitar
félaganna í uppsveitum Árnessýslu
um verkefnisstjóra heilsueflandi
samfélags.
Á vettvangi Hrunamannahrepps,
Bláskógabyggðar, Grímsnes- og
Grafningshrepps og Skeiða- og
Gnúpverjahrepps hefur verið rætt um
samstarf um verkefni tengd heilsuefl-
andi samfélagi, þ.e. að sveitarfélögin
sameinist um verkefnisstjóra til eins
árs. Nú er Bláskógabyggð með verk-
efnisstjóra í 20% starfshlutfalli, en ef af
breytingunni yrði þá væri hvert sveitar-
félag um sig með 25%. Verkefnisstjóri
myndi þá hafa starfsstöð í hverju sveitar-
félagi fyrir sig. Ástu Stefánsdóttur,
sveitarstjóra Bláskógabyggðar, hefur
verið falið að senda sveitarfélögunum
áætlun um kostnað við verkefnið og er
lagt upp með að Bláskógabyggð myndi
halda utan um það. /MHH