Bændablaðið - 19.09.2019, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 49
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir dráttarvéla. Veldu þaulreynda
vöru frá gæðaframleiðanda.
Ráðgjafar Olís og Rekstrarlands veita allar nánari
upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Arctic Trucks Ísland ehf.
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
Sími 540 4900
Netfang info@arctictrucks.is
Vefur www.arctictrucks.is
JEPPADEKK.IS
Vönduð amerísk jeppadekk sem
henta frábærlega fyrir íslenskar
aðstæður. Stærðir 29”-44”.
38” radíaldekk
sem hefur
margsannað
sig á hálendi
Íslands.
44” radíal.
Hannað í
samstarfi
Arctic Trucks
og Nokian.
35” radíal.
Frábært
neglt
vetrardekk!
kr. 39.900,- kr. 39.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,-
FELGUR
Gott úrval
Margar stærðir
söguð af skal láta það afskiptalaust
og ekki mála eða lakka yfir.
Greinahrúga
Að lokinni greinahreinsun trés
myndast gjarnan greinahrúga af
sagaðra greina neðst við stofn
trésins. Hrúgan getur virkað eins
og bálköstur ef sinueldur kemst
í þurran skógarbotninn. Því er
gott að venja sig strax á það að
færa hrúgunni til með einu eða
tveimur spörkum eftir að tréð
hefur verið uppkvistað. Einnig má
safna greinunum saman, draga út
í eyður eða á örfoka mel og nota
í landgræðslu. Ekki skemmir ef
fræfullir könglar eru á greinunum.
Jaðarsvæði
Skipta má jöðrum í tvennt: Útjaðra
og jaðrar í eyðum. Útjaðar er kragi
í kringum skógarreit sem tekur á sig
vind og snjó.
Í skógarreitnum eru oft eyður
þar sem sambærilegar aðstæður
eru og við útjaðarinn. Eyður eru
bæði af náttúrulegum ástæðum og
mannlegum. Náttúrlega ástæður
eru til dæmis klettar og dý, eða
þar sem tré þrífast illa (Eyður
hverfa yfirleitt með framvindu
skógarins). Mannlegar ástæður eru
mannvirki eins og vegir og aðrar
skipulagsákvarðanir.
Varhugavert er að opna skógar
jaðra um of. Vindur og snjór getur
bæði brotið greinar og jafnvel brotið
trén sjálf. Þá er vissara að uppkvista
aðeins fá tré í fyrstu 10 metrunum
inn frá jaðri skógarins. Fyrir þá
sem eru óöruggir með umhirðu á
jaðrinum er vissara að gera minna
fremur en meira og leita sér aðstoðar
til þeirra sem betur þekkja.
Uppkvistun nytjaskóga
Nytjaskógrækt gengur út á að
rækta tré sem síðan eru notuð í
margvíslega úrvinnslu, t.d. kurl,
eldivið og flettiefni. Mestur árangur
og arðsemi næst af ræktuninni þegar
tré eru stór og gallalaus.
Til að ná fram mestum timbur
nytum úr skógunum eru þeir
grisjaðir á nokkurra ára fresti.
Það er gert til að gefa gæðamestu
trjánum svigrúm til aukinns þver
málsvaxtar.
Það eru ekki öll gróðursett tré
sem verða flettiefni, en það eru
þau tré sem henta best í vinnslu
í sögunarmyllum. Eftir því sem
gæði trjánna eru meiri, þeim mun
verðmeira er timbrið. Það þýðir að
ekki er þörf á að uppkvista öll trén
í skóginum heldur einungis góð
einstofna tré sem standa með um
það bil 5 metra millibili. Vissulega
má uppkvista fleiri tré, en óvíst er
að það skili sér í auknum tekjum
til skógarbóndans.
Ef önnur kynslóð trjáa er að
vaxa upp í skógarbotninum skal
gefa þeim trjám rými til að vaxa og
þá getur verið gott að saga greinar
neðan af fleiri eldri trjám svo þær
slái ekki af toppa þeirra yngri.
Árangursríkasta uppkvistunin
er að fara að sömu trjánum með
nokkurra ára millibili og taka lítið í
senn en fæstir sem hafa þolinmæði
í það. Það þarf þó að fara tvisvar
til þrisvar sinnum til að uppkvista
nægilega langt upp í tréð til að hafa
árangur sem erfiði.
Hlynur Gauti Sigurðsson
framkvæmdastjóri Landssamtaka
skógareigenda (LSE)
Uppkvistaður skógur gerir bæði skóginum gott og ágætis aðgengi.
Lerkiskógur með langa kvistlausa
boli. Mynd / HGS