Bændablaðið - 19.09.2019, Page 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201950
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
gönguleiðir
Skógræktarfélag Eyfirðinga fékk í
fyrra styrk úr Lýðheilsusjóði til að
merkja stíga og koma á framfæri
upplýsingum um léttar og aðgengi-
legar gönguleiðir í Kjarnaskógi
við Akureyri. Skiltarömmunum
var nýlega komið upp við helstu
innganga að skóginum og að auki
voru settir upp vegvísar við ýmis
stígamót innan hans.
Skiltarammarnir voru búnir
til úr lerki sem til féll við grisjun
í nágrannaskóginum Vaðlareit.
Haukur Karlsson, yfirsmiður
Skógræktarfélagsins, sá alfarið
um vinnu við gerð og uppsetningu
skiltanna.
Milt tíðarfar gerir alla vinnu í
skóginum auðveldari
Ingólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyjafjarðar, segir að verkefnið hafi
verið unnið í samstarfi við þá aðila
á svæðinu sem starfa að lýðheilsu-
málum, m.a. aldr-
aðra, geðfatlaðra og þeirra sem sinna
endurhæfingu svo dæmi séu tekin.
„Stjórn og starfsfólk SE hefur
unnið hörðum höndum að þessu
verk efni og það er ánægjulegt að
verkinu er lokið, og
léttleiðakortin komin
upp en þau verða einnig
aðgengileg á heima-
síðu okkar þar sem fólk
getur kynnt sér góðar
gönguleiðir áður en farið
er í skóginn. „Það var
ótrúlega gaman að vinna
að þessu verkefni og sjá
hvernig það þróaðist á
vinnslutímanum,“ segir
hann. Samhliða skilta-
gerðinni hefur verið útbú-
ið kort sem nær yfir aðrar
göngu- og skíðaleiðir í
skóginum og í kjölfarið
munu fylgja upplýsingakort
um sögu, örnefni, dýralíf og
fleira þess háttar.
„Veturinn hefur farið
mildilega með okkur það
sem af er og þótt margir sakni
þess að geta ekki þeyst um
skóginn á skíðum gerir tíðar-
farið okkur auðveldara um vik
að sinna ýmsum framkvæmd-
um á okkar svæðum,“ segir Ingólfur.
Nú í nóvember hefur af kappi verið
unnið að stígagerð í Naustaborgum
og Kjarnaskógi, verk sem ekki endi-
lega er algengt að vinna á þessum
árstíma.
Aðventutrén vinsæl
Ingólfur nefnir að önnur störf sem
starfsfólk sinni nú miðist helst við
að seðja jólatrjáþyrsta Eyfirðinga
sem skreyta kringum híbýli sín á
aðventunni. Gott dæmi um það
séu verslunareigendur í miðbæ
Akureyrar sem taka sig saman og
fá jólatré frá SE fyrir hver jól. „Það
er myndarlegur skógur sem verður
til í göngugötunni á aðventunni.
Trén köllum við aðventutré, þau
er hægt að fá í ýmsum stærðum og
fullskreytt ef óskað er en við flytjum
þau til viðskiptavina í byrjun að-
ventu og sækjum aftur í lok janúar,“
segir hann.
Aukin áhersla á íslensk jólatré
Ingólfur segir að heimilisjólatrén séu
hoggin eins seint og hægt er og óneit-
anlega geri blítt veðurfar undanfarna
daga alla umsýslu við trén þægi-
legri. „Við finnum mjög fyrir því
að fólk leggur aukna áherslu á að
vera með íslenskt jólatré um hátíðar
og hlökkum til að standa vaktina í
Laugalandsskógi á Þelamörk tvær
síðustu helgarnar fyrir jól þar sem
fólk kemur og heggur sín eigin jóla-
tré. Þar eru allir vinir og eiga góða
stund,“ segir hann. /MÞÞ
Haukur Karlsson yfirsmiður sá um
að smíða skiltarammana og setja þá
upp, en þeir eru búnir til úr úr lerki
sem til féll við grisjun í nágranna-
skóginum Vaðlareit.
Myndir / Ingólfur Jóhannsson
Kjarnaskógur er afar vinsælt útivistarsvæði og má gera ráð fyrir að fjölmargir sæki sér hressandi útiveru þar á
komandi frídögum um jól og áramót.
Starfsmennirnir Ari Hilmarsson og David Joseph Dowling (á myndinni til hægri) hafa nú í nóvember unnið af kappi
við stígagerð í Naustaborgum og Kjarnaskógi, verk sem ekki endilega er algengt að vinna á þessum árstíma.
Aðventutrén hafa notið vinsælda en
þau er hægt að fá í ýmsum stærðum
og fullskreytt ef óskað er.
Vegvísum hefur verið komið upp við ýmis stígamót í Kjarnaskógi.
Uglurnar fylgjast vökulum augum
með gestum skógarins.