Bændablaðið - 19.09.2019, Page 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 63
Gerum gamalt eins og nýtt
Rauðhellu 16. 221 Hafnarfirði - Sími 696-5756 - Blasturogmalun.isdlb.is
Óskum landsmönnum gleðilegra jóla
og gleðilegs nýs árs
Húsnæðisuppbygging á lands byggðinni komin á skrið
Frá því ég tók við embætti um
þetta leyti árs árið 2017 hef ég
einsett mér að mynda traust-
ari umgjörð um húsnæðismál á
Íslandi. Í þeim efnum hef ég lagt
áherslu á að tryggja nægjanlegt
framboð húsnæðis fyrir alla, óháð
efnahag og óháð búsetu. Þegar
hefur farið fram mikil endur-
skipulagning og umbótavinna á
sviði húsnæðismála bæði hjá ríki
og sveitarfélögum og er henni
hvergi nærri lokið.
Ég hef lagt sérstaka áherslu á að
landsbyggðin verði ekki látin sitja
eftir en þar hefur ríkt stöðnun á
húsnæðismarkaði um langt skeið.
Haustið 2018 fól ég Íbúðalánasjóði
að fara af stað með tilraunaverkefni
í því skyni að leita leiða til þess að
bregðast við þeim áskorunum sem
landsbyggðin stendur frammi fyrir
í húsnæðismálum. Þegar hafa verið
kynntar ýmsar lausnir á grunni
verkefnisins og eiga fleiri eftir að
líta dagsins ljós. Málið er brýnt
enda allmörg dæmi um að skortur
á íbúðarhúsnæði á landsbyggðinni
hafi staðið atvinnuuppbyggingu
fyrir þrifum. Við það á ekki að una
enda hagur okkar allra að atvinnulíf
blómstri um allt land.
Sértækar aðgerðir
Þörf á húsnæðisstuðningi fyrir lands-
byggðina er önnur en á höfuðborgar-
svæðinu. Þar vantar oftar en ekki upp
á að húsnæðismarkaðurinn sé nægi-
lega skilvirkur enda víða misvægi á
milli byggingarkostnaðar og mark-
aðsvirðis íbúða. Þeir sem vilja kaupa
eða byggja húsnæði á landsbyggðinni
hafa haft takmarkaðan aðgang að
lánsfé og kjörin ekki verið sambæri-
leg þeim sem bjóðast á virkari mark-
aðssvæðum. Í því skyni var nýjum
lánaflokki hjá Íbúðalánasjóði komið
á fót í haust. Hann er sérsniðinn að
landsbyggðinni og er ætlað er að auð-
velda sjóðnum að veita fjármögnun
til verkefna úti á landi. Hann hefur nú
þegar stuðlað að uppbyggingu víða
um land.
Þá hefur leigufélagið Bríet, sem er
sjálfstætt félag í eigu Íbúðalánasjóðs
rekið án hagnaðarsjónarmiða, átt
þátt í að bæta stöðu leigjenda úti
á landi en það var stofnað að mínu
frumkvæði í árslok 2018. Markmið
þess er að vera hluti af uppbyggingu
og styrkingu leigumarkaðar á
landsbyggðinni og rjúfa þá stöðnun
sem ríkt hefur á húsnæðismarkaði
víða um land. Bind ég miklar
vonir við og er ég þess fullviss
að starfsemi leigufélagsins verði
landsbyggðinni til framdráttar í
komandi framtíð.
Eins hafa verið lagðar fram til-
lögur til að gera sveitarfélögum á
landsbyggðinni kleift að byggja
íbúðir í almenna leigukerfinu með
stofnframlagi ríkisins en þannig má
bregðast við skorti á hagkvæmu
leiguhúsnæði. Tillögurnar gera ráð
fyrir að heimilt verði að veita sér-
stakt byggðaframlag vegna leigu-
íbúða á svæðum þar sem misvægi
ríkir á milli byggingarkostnaðar og
markaðsverðs auk þess sem heim-
ildir sveitarfélaga til þess að leggja
fram stofnframlög verði rýmkaðar.
Um er að ræða umtalsverðar réttar-
bætur á lögum um almennar íbúðir
sem munu skipta miklu máli fyrir
hinar brothættu byggðir landsins.
Framkvæmdir víða hafnar
Ég bind miklar vonir við þessar og
frekari aðgerðir á landsbyggðinni.
Framkvæmdir eru víða hafnar á
grunni þeirra og hef ég verið þess
heiðurs aðnjótandi að fylgja þeim
úr hlaði hringinn í kringum landið.
Víða er um að ræða nýbyggingar
en auk þess eru sveitarfélög að
leita leiða við að breyta húsnæði
sem fyrir er með stuðningi ríkis-
ins og koma því í sölu eða leigu.
Samanlagt hafa þessar aðgerðir
komið af stað hreyfingu á hús-
næðismarkaði á stöðum þar sem
stöðnun hefur ríkt árum og ára-
tugum saman.
Betur má ef duga skal. Ég mun
leggja mitt af mörkum til áfram-
haldandi uppbyggingar húsnæð-
is á landsbyggðinni enda er hún
nauðsynleg svo að atvinnulíf fái að
blómstra og samfélögin þar með.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason.
LESENDABÁS