Bændablaðið - 19.09.2019, Qupperneq 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 2019 65
Á þessum árstíma er hollt að líta
um öxl og rifja upp liðið ár. Fyrir
mig sem landsbyggðarþingmann
standa ferðir um kjördæmið upp
úr.
Á árinu hef ég kappkostað við
að fræðast um og kynna mér hið
víðfeðma Suðurkjördæmi og er svo
lánsamur að hafa fengið að kynnast
afrekskonum og -mönnum á ýmsum
sviðum hins sunnlenska samfélags og
reyndar víðar um landið. Þannig hef
ég heimsótt bændur sem stunda ólík-
an búskap við ýmiss konar aðstæð-
ur og hitt sjómenn sem stunda allra
handa veiðar. Ég hef kynnt mér fyr-
irtækjarekstur af öllum stærðum og
gerðum og komið við í opinberum
stofnunum um allt kjördæmið.
Álögur of háar og
kerfið oft flókið
Mér er fullljóst hversu harðgerðir
og einbeittir íbúar þessa lands eru.
Lítil fyrirtæki blómstra sem aldrei
fyrr sem kostar mikið harðfylgi og
dug forvígismanna þeirra, eins og
þeir þekkja sem hafa komið nálægt
atvinnurekstri. Álögur á fyrirtæki
eru of háar á Íslandi. Flækjur í hinu
opinbera kerfi taka of mikinn tíma
og orku þeirra sem standa í rekstri
fyrirtækja. Þessu þarf að breyta,
lækka þarf tryggingagjald til mikilla
muna og gera mönnum auðveldara
að reka fyrirtækin svo þeir geti ráðið
til sín fleira starfsfólk, gert betur við
það í launum og ráðist í fjárfestingar
til að hagræða í rekstri.
Fæðuöryggi
Þjóð sem býr í landi sem er langt
úti í hafi fjarri öðrum löndum þarf
að framleiða sem mest af sínum
matvælum heima við. Nú þegar allt
beinist að því að minnka útblástur
gróðurhúsalofttegunda ætti þetta
að vera enn meira áríðandi. Við
þekkjum heilbrigði íslenskra afurða
mæta vel. Þekking á framleiðslu
landbúnaðarafurða má ekki glatast
og landinu þarf að halda í byggð.
Þjóðaröryggi og birgðir
Nýlega barst svar við fyrirspurn minni
um þjóðaröryggi og birgðahald þar sem
ég spurði ráðherra um hvernig háttað
væri birgðahaldi matvæla, eldsneytis
og lyfja, ef flutningsleiðir að landinu
myndu lokast skyndilega um ófyrirsjá-
anlegan tíma. Í stuttu máli var svarið
þess eðlis að ekki liggi fyrir sérstök
viðbragðsáætlun af hálfu stjórnvalda
í þessum efnum. Þessi staðreynd
veldur mér ákveðnum áhyggjum, því
það hefur þrisvar sinnum komið upp á
síðustu árum að sú staða var alls ekki
fjarlæg að landið lokaðist um lengri eða
skemmri tíma. Hér á ég við yfirvofandi
heimsfaraldur inflúensu 2008, banka-
hrunið sama ár og Eyjafjallagosið 2010.
Allir þessir atburðir gátu, ef allt færi á
versta veg, lokað aðflutningsleiðum að
landinu um lengri eða skemmri tíma. Í
ljósi þessa er óábyrgt af stjórnvöldum
að hafa ekki einu sinni hugað að við-
bragðsáætlunum á þessu sviði.
Sameining sveitarfélaga
Fyrir þinginu liggur ályktun um
sameiningu sveitarfélaga og er
í henni gert ráð fyrir að þvinga
minni sveitarfélög til að sameinast.
Miðflokkurinn leggst alfarið á móti
því að þannig sé gengið gegn sjálfsá-
kvörðunarrétti sveitarfélaga. Jafnvel
þótt í mörgum tilfellum sé æskilegt
að sveitarfélög sameinist teljum við
að íbúarnir eigi þar að eiga síðasta
orðið. Víða eru landfræðilegar að-
stæður þannig að sameining skapar
afar stór sveitarfélög sem ná ekki
fram æskilegri stærðar hagræðingu
þó af verði. Það er alls ekki trygging
fyrir betri rekstri þótt sveitarfélög
stækki, það sanna dæmin.
Hvað er að gerast
með drengina okkar?
Framtíð okkar sem þjóðar byggist
að miklu leyti á því hvernig við
stöndum okkur í menntun barn-
anna. Það hversu illa við stöndum
í alþjóðlegum samanburði er mikið
áhyggjuefni. Það er ljóst að eitthvað
mikið er að og lélegur árangur ungra
drengja er sérstakt áhyggjuefni. Illa
læsir og skrifandi drengir geta verið
tifandi tímasprengja. Þeir eru lík-
legri til þess að eiga við alls konar
andleg og félagsleg vandamál þegar
fram í sækir með öllum þeim sam-
félagslega kostnaði sem því fylgir.
Hér verðum við að spyrna við fótum
strax. Bið eftir aðgerðum er ekki í
boði.
Veðurofsinn
Nýlegt óveður, sem lék stóran hluta
landsins illa, leiddi í ljós veikleika á
fjölmörgum stöðum í dreifikerfi raf-
orku. Miðflokkurinn hefur óskað eftir
viðamikilli úttekt á ástæðum þess
og þar er ráðherra krafinn svara við
fjölmörgum spurningum sem brenna
á fólkinu sem varð illa úti vegna veð-
ursins. Ísland er harðbýlt land og við
eigum að þekkja hvernig náttúruöflin
geta gripið í taumana. Gera verður
kröfu um lágmarks viðbúnað í þágu
fólksins hvar sem það býr í landinu.
Ég óska lesendum Bænda blaðsins
gleðilegrar hátíðar og farsældar á
komandi ári.
Karl Gauti Hjaltason
þingmaður Miðflokksins
í Suðurkjördæmi
kgauti@althingi.is
LESENDABÁS
Framleiðum sem mest
af okkar fæðu sjálf
Karl Gauti Hjaltason.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
SELDU HRYSSUR TIL LÍFS
Hrossabændur
óska eftir hryssum
Mega vera þriggja til fimmtán vetra
Greiðum 30.000 kr. án vsk. fyrir hryssuna.
Sækjum frítt á Suður-, Vestur- og Norðurland.
Upplýsingar: hryssa@isteka.com eða í síma 581-4138.
Geymið auglýsinguna!
Hryssur eru greiddar eftir reikningi og eftir umskráningu í WorldFeng.
SÉRTILBOÐ – SÝNINGARVÉL
Vagnhöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 567 2800
mdvelar@mdvelar.is | www.mdvelar.is
RAFSTÖÐVARSETT 35 GTC
FYRIR LAND- EÐA SJÓNOTKUN
Grunnvél: MITSUBISHI
•
Fyrir þurrt púst
•
Afl: 35 KVA – 28 kWe
•
3 x 400/230 VAC 50 Hz 1500 RPM
•
Stærð í einangruðum kassa:
1445 x 630 x 788 mm
•
Rafkerfi vélar: 24 VDC tveggja póla
•
Digital mæla- og
aðvörunarkerfi fyrir
vél og rafal
•
Kapall í mælaborð
4 m CPC
•
Systra gasolíusíur
•
Tæmingardæla
fyrir smurolíu
Tilboðá sýningarvél1.798.000,-
krónur + vsk
Fullt Verð 2.430.000 + vsk
Ovitop forðastautar
Frekari upplýsingar
inn á netverslun
okkar
www.kb.is
Ovitop forðastautar fyrir sauðfé
og geitur. Leysast hægt upp í
vömb. Virka í 4 mánuði
Ovitop inniheldur joð, kóbalt,
mangan, zink og selen.
Notkunarleiðbeiningar:
Sauðfé og geitur yfir 40kg
2 stautar, einum mánuði
fyrir fengitíma og aftur
einum mánuði fyrir sauð-
burð.
Sauðfé og geitur undir 40kg
Gefinn er 1 stautur
*Fæst bæði með og án kopars