Bændablaðið - 19.09.2019, Page 70
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201970
Mitsubishi L200 kom fyrst fram
á sjónarsviðið 1978 og þá með 92
hestafla vél, 2015 kom svo fimmta
kynslóð L200 og var þá með 181
hestafla vél, það sem gerði fimmtu
kynslóðina af bílnum sérstaka að
mínu mati var skriðvörnin í bíln-
um.
Ekki hef ég prófað enn pallbíl
með eins góða og fullkomna
skriðvörn eins og er í Mitsubishi
L200. Í síðasta mánuði frumsýndi
Hekla sjöttu kynslóð af þessum
vinsæla pallbíl og tók ég bílinn til
prufu í tvo daga.
Minni vél í hestöflum sem eyðir
svipað, en er umhverfisvænni
Nýjasti bíllinn er með 2268
rúmsentímetra dísilvél sem skilar
150 hestöflum (31 hestafli minni vél
en í fimmtu kynslóð L200), maður
finnur vel muninn á færri hestöflum
í snerpu bílsins, sérstaklega í inn-
anbæjarakstri, en í langkeyrslu er
munurinn ekki eins afgerandi.
Dráttargetan er sú sama á öllum
þrem útgáfunum sem er á bilinu
3000 til 3100 kg miðað við kerru
með bremsubúnað.
Eyðslan er mjög sviðuð og
á síðasta bíl sem var 9,9 lítrar á
hundraðið í blönduðum akstri.
Þess má geta að 2015 bíllinn
var beinskiptur, en nú var ég á
sjálfskiptum bíl og almennt er aðeins
meiri eyðsla á sjálfskiptum bílum.
Nú var ég að eyða 10,0 lítrum í
blönduðum akstri.
Í boði þrjár útgáfur
af Mitsubishi L200
Í boði eru þrjár mismunandi útgáfur
af bílnum, allir með sömu vél, en í
boði er val á milli beinskiptingar eða
sjálfskiptingar.
Verðið er á ódýrasta Mitsubishi
L200 Invite beinskiptum sem er
5.490.000 og upp í dýrasta bílinn
sem ég prófaði og heitir Mitsubishi
L200 Instyle og er sjálfskiptur
og kostar 6.990.000. Verðið í
dag er töluvert lægra í desember
2015 þegar ég prófaði L200 þá.
Aukalega á bílnum sem prófaður
var nú er pallhýsi sem kostar um
500.000.
Nýi bíllinn er ennþá með þessari
frábæru skriðvörn sem kom fyrst í
2015 bílnum og á sér enga líka í
pallbílum. Hún vinnur þannig að ef
bíllinn byrjar að renna til að aftan í
hálku eða lausamöl bremsar bíllinn
sjálfkrafa á öðru framhjólinu til að
rétta bílinn af, samfara því að taka
hluta af kraftinum úr vélinni meðan
bíllinn er að rétta sig af.
Útlitið nýtt og margar
smáar breytingar
Það fyrsta sem ég tók eftir voru að
bílstjórasætin eru þægilegri, með
hita sem hitar ekki bara sitjandann
heldur upp á mitt bak líka.
Hiti er í stýrinu (að hluta, ekki
allur hringurinn sem ég hefði viljað).
Pallurinn hefur lengst um 5 cm.
Er nú 152x147 (var 147x147), hægt
er að fá pallhýsi sem aukabúnað á
bílinn á verðbilinu 300–550.000.
Framendi bílsins er töluvert
breyttur og það fyrsta sem ég tók
eftir er að mér fannst framljósin vera
lítil og ræfilsleg og þar af leiðandi
myndi ekki vera mikil ljós af þeim.
Þessi hugsun mín var alröng,
lýsingin frá þessum litlu ljósum er
hreint frábær og engin ástæða að
hafa áhyggjur af.
Góður bíll fyrir
krefjandi aðstæður
Í Mitsubishi L200 er hátt og lágt
drif og milligírkassi sem hægt er
að læsa. Gott fyrir þá sem vinna
og nota bíla við erfiðar aðstæður.
Að hafa möguleika á að læsa öllum
hjólum er mikill kostur, sérstaklega
þegar ekið er í miklum snjó eða í
lausum sandi.
Margir bílar koma þannig að
ljóstírur eru að framan, en engin
ljós að aftan, en með því að kveikja
ljósin og hafa þau alltaf kveikt.
Eins segir mælaborðið manni að
slökkva ljósin þegar maður drepur
á bílnum, en sú viðvörun er óþörf.
Það má alveg hunsa þessi skilaboð
því ljósin slokkna þegar maður lokar
bílstjórahurðinni og kvikna aftur
þegar maður setur í gang.
Allavega var ég sáttur við allar
breytingar nema þessi rúmu 30
hestöfl sem voru í 2015 bílnum
aukalega.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lengd 5.225 mm
Hæð 1.780 mm
Breidd 1.815 mm
Helstu mál og upplýsingar
Sjötta kynslóð af Mitsubishi L200
Mitsubishi L200 Instyle. Myndir / HLJ
Fannst þessi ljós ekki líkleg til að lýsa vel, en hafði rangt fyrir mér.
Pallurinn aðeins lengri en á 2015 bílnum.
Svolítið magnað að ekki kom snjór fyrir linsuna á bakkmyndavélinni.
Gott pláss í aftursætum og sætin góð.
Ánægður með hljóðeinangrun, ekki
nema 68db. á 90.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is