Bændablaðið - 19.09.2019, Síða 74
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. desember 201974
LESENDABÁS
Abraham Lincoln er einn merk
asti forseti sem Bandaríkja
menn hafa átt og meta margir
hann fremstan allra forseta.
Hann sagði eitt sinn: „Allt það
sem æskilegt er fyrir velferð
mannsins, bæði í þessu lífi og
öðru, má finna í Biblíunni.“
Fyrir skömmu var mér boðið
á aðventukvöld Gídeonfélagsins.
Þar var saman kominn góður
hópur fólks sem á það sameig
inlegt að vilja stuðla að því að
sem flestir eignist Guðs orð.
Mér er það minnisstætt þegar
ég var ungur að árum og fékk
Nýja testamentið að gjöf frá
Gídeonfélaginu. Mér þótti bókin
ákaflega falleg og þorði varla að
fletta henni í fyrstu af ótta við að
hún yrði þá fljótt slitin.
Gídeonfélagið var stofnað
1899 í Bandaríkjunum af þremur
einstaklingum. Félagsskapurinn
breiddist hægt og rólega út og
var Ísland þriðja landið þar sem
Gídeonfélag var stofnað. Það
er í sjálfu sér svolítið merkilegt
í ljósi þess að starfsemi þess
er í dag nánast í öllum löndum
heims. Meðlimir á heimsvísu
eru um 270 þúsund og þeir færa
öllum sem vilja Nýja testamentið
og Biblíuna að gjöf á yfir 100
tungumálum. Félagið hefur gefið
rúmlega tvo milljarða eintaka af
Biblíunni frá stofnun. Á Íslandi
gaf félagið fyrstu Biblíuna á hót
elherbergi árið 1949 en það var á
Hótel Borg. Árið 1954 hóf félagið
að fara í grunnskólana og gefa
10 ára börnum Nýja testamentið.
Íslenskt samfélag
og kristnar rætur
Þeirri vegferð lauk því miður
árið 2011 þegar kristin trú
var sett í skammarkrókinn af
Mannréttindaráði Reykjavíkur
borgar. Þegar borgin bannaði að
dreifa í grunnskólum boðandi efni
eins og það var orðað. Þremur
árum áður, eða árið 2008, bannaði
þáverandi menntamálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins kristnifræði
kennslu í skólum landsins.
Þessar ákvarðanir voru ekki
heillavænlegar að mínum dómi.
Það var óskynsamleg ákvörðun að
þessi bók bókanna sem svo ríku
lega hefur mótað íslenska menn
ingu og íslenskan trúararf skuli
þannig gerð hornreka í íslensku
skólakerfi. Uppeldishlutverk
skólans er mikilvægt, ekki síst
siðgæðisuppeldi. Skólum er ætlað
að miðla slíkum gildum og í
íslensku samfélagi eiga þessi gildi
sér kristnar rætur. Taka á tillit til
þess að kristin trú hefur verið ráð
andi í mótun menningar okkar og
samfélags.
Nú þegar styttist til jóla spyr
maður sig að því hvenær verði
farið að fetta fingur út í helgidaga
hald. Verður það jafn sjálfsagt að
við fáum frí á kristnum helgi
dögum og verið hefur? Segja má
að hér á landi hafi gætt tilhneig
ingar til ákveðinnar afkristnunar
síðustu árin. Þessari öfugþróun
hefur verið stjórnað af háværum
minnihluta. Hér þarf að snúa við
blaðinu.
Bersýnilegt er að kirkjulegt
starf hefur mjög færst í aukana
á aðventunni í íslenskum söfn
uðum hin síðari ár. Mikið fram
boð er af tónleikum og öðru efni
sem laðar fólk að kirkjunni. Á
þessum árstíma erum við minnt
á langa samleið trúar og lista, ekki
síst trúar og tónlistar og er það
ánægjulegt.
Mikilvægi kyrrðarinnar
í aðdraganda jóla
Boðberar kristninnar hafa á öllum
tímum bent á mikilvægi kyrrðar
innar, mikilvægi þess að draga
sig um stund í hlé frá áreiti um
hverfisins. Margir sakna kyrrðar
og jafnvel þagnar á þessum tíma
frammi fyrir öllum þeim hávaða
sem umlykur fólk í flóði aug
lýsinga fyrir jólahátíðina. Við
eigum ekki að vanmeta mikilvægi
kyrrðarinnar í aðdraganda jóla.
Hugleiðum vel í hverju jóla
undirbúningur okkar ætti helst
að vera fólginn. Upplagt er nú á
aðventunni að hugleiða gildi hinn
ar kristnu trúar, hver sé boðskapur
jólanna og hver sé kjarni hinnar
kristnu trúar og kristins siðar,
sem hefur fylgt þjóðinni í meira
en þúsund ár.
„Allt það sem er æskilegt fyrir
velferð mannsins.“
Gleðileg jól.
Birgir Þórarinsson
þingmaður Miðflokksins
í Suðurkjördæmi.
Allt það sem er æskilegt
fyrir velferð mannsins
Birgir Þórarinsson.
Varúð! – Afturför í tryggingarvernd
Nú um áramótin taka gildi ný lög
um ökutækjatryggingar. Þar er
afnumin sú skylda eigenda tor
færutækja, snjósleða, fjórhjóla
og torfærumótorhjóla að tryggja
ökumenn tækjanna sérstaklega.
Sú skylda hefur verið við lýði
síðan árið 1988 og voru helstu rök
fyrir þeirri skyldu þau að hættueig
inleikar allra vélknúinna ökutækja
væru svo miklir að eðlilegt væri að
slysatryggingar ökumanna þeirra
væru lögbundnar og bótagreiðslur
færu eftir reglum skaðabótalaga.
Þessi hætta hefur ekki minnkað, hún
hefur jafnvel aukist með kraftmeiri
tækjum og verður ekki séð hvað kall
ar á breytingu varðandi þessi tilteknu
tæki. Þá vaknar einnig spurningin,
til hagsbóta fyrir hvern er þessi
breyting?
Þessi breyting um áramót kann
að láta lítið yfir sér, en felur í sér
verulega afturför frá því sem nú
gildandi lög áskilja. Hún þýðir að
frá og með áramótum eru ökumenn
snjósleða, fjórhjóla og torfærumót
orhjóla ótryggðir með öllu lendi þeir
í slysi við notkun tækjanna. Hún
þýðir einnig að allir sem leigja sér
vélsleðaferð eða fjórhjólaferð eru
ótryggðir sem ökumenn á tækjun
um verði þeir fyrir slysi. Þetta gildir
einnig um bændur, veiðimenn, hjálp
arsveitarmenn og aðra sem nota t. d.
fjórhjól eða vélsleða.
Þetta þýðir á mannamáli að tekju
tap vegna óvinnufærni, útlagður
kostnaður vegna læknismeðferða
og varanlegar afleiðingar slyssins
fást ekki bættar.
Tryggingafélögin
Þrátt fyrir að þessi lagbreyting
sé vond og illskiljanleg þá er senni
lega öllu verri sú ákvörðun flestra
tryggingafélaganna að ákveða að
hætta að selja eigendum þessara
tækja slysatryggingu ökumanns og
eiganda frá og með næstu áramótum.
Þetta þýðir einfaldlega að eigandi
fjórhjóls eða vélsleða getur ekki
keypt þá tryggingu sem áður var
lögbundin, þrátt fyrir að hann óski
eftir því og sé tilbúinn að greiða fyrir
það iðgjald. Ég hvet því eigendur
torfærutækja til að kanna hvern
ig þessu verður háttað hjá þeirra
tryggingafélagi.
Þessi ákvörðun flestra trygginga
félaganna er vægast sagt sérkennileg
því að þó svo að með lögunum sé
felld niður skylda til að kaupa þessa
tryggingu þá banna þau trygginga
félögunum ekki á nokkurn hátt að
halda áfram að selja hana þeim sem
vilja kaupa hana og greiða fyrir. Ég
hélt í einfeldni minni að rekstur
tryggingafélaga gengi út á að selja
tryggingar, þeim sem vilja kaupa
þær.
Flest tryggingafélögin benda nú
hins vegar viðskiptavinum sínum á
að þeir geti keypt sér almenna slysa
tryggingu sem er allt önnur vernd og
lakari en slysatrygging ökumanns og
eiganda var áður.
Með öðrum orðum þá er þessi
lagabreyting og ákvörðun flestra
tryggingafélaganna í kjölfarið mikil
afturför frá því sem hefur verið um
áratuga skeið í slysatryggingavernd
til handa þeim sem eiga og nota tor
færutæki.
Óðinn Elísson
lögmaður hjá Fulltingi
Óðinn Elísson.
óskar lesendum sínum
um allan heim
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári
með kæru þakkæti
fyrir samskiptin
á árinu sem er að líða
9. janúar 2020