Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 17
SJÁLFSBJÖRG
SÓTT HEIM
Ritstjóri Fréttabréfsins reynir
ævinlega að fá sem gleggstar
fréttir af framgangi mála hjá
félögum bandalagsins og sum hver
senda allreglulega inn fréttir af far-
sælu starfi eða einstökum atburðum
sem upp úr standa.
Næstu nágrannar okkar, fyrir utan
Geðvemdarfélag íslands, sem á sitt
aðsetur hér í húsinu, eru vitanlega þeir
Sjálfsbjargarfélagar sem byggja
Hátún 12, sem ekki einasta hýsir
félagsstarfsemi Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra og Reykjavíkur-
félagsins, heldur einnig Vinnu- og
dvalarheimili Sjálfsbjargar, Dagvist
Sjálfsbjargarog STJÁ - sjúkraþjálfun.
Það er því af nægu að taka, ef haldið
er á vit þeirra hinum megin, en að
sinni verður forvitnast allra helzt um
félagsstarfsemina sjálfa.
Við héldum þangað þrjú til heim-
sóknar Ólöf formaður, Ásgerður
framkvæmdastjóri og svo undirrit-
aður. Það voru formaður Sjálfsbjarg-
ar, landssambandsins, Guðríður
Ólafsdóttir og framkvæmdastjóri
þess, Sigurður Einarsson, sem tóku á
móti okkur með kostum og kynjum.
Við námum mikinn fróðleik og mætan
af Sjálfsbjargarfólki og fátt eitt að
fullu tíundað hér.
Ritstjóri hafði hins vegar tekið
forskot á sæluna og náð tali af Sigurði
og fróðleikskornin hér á eftir að
meginhluta til unnin upp úr því sam-
tali.
Sjálfsbjörg - landssamband fatl-
aðra, sem er eitt stofnfélaga
Öryrkjabandalags Islands var stofnað
4. júní 1959 og hefur því starfað í 37
ár. Fyrsta Sjálfsbjargarfélagið var
stofnað á Siglufirði, síðan í Reykjavík
og svo komu þau hvert á fætur öðru
og nú eru félögin eða deildimar 16
talsins. Auðvitað er starfið misjafn-
lega blómlegt og félögin misfjölmenn
en þau eru: Sjálfsbjörg í Reykjavík
og nágrenni eða Sjálfsbjörg á höfuð-
borgarsvæðinu svo sem heitið mun
nú, á Akranesi, í Stykkishólmi, í
Sigurður Einarsson.
Bolungarvík, á Isafirði, í Austur-
Húnavatnssýslu, á Sauðárkróki, á
Siglufirði, á Akureyri, á Húsavík, á
Vopnafirði, í Neskaupstað, í Austur-
Skaftafellssýslu, í Árnessýslu, í
Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum.
Yngsta félagið er á Vopnafirði. f
landssambandinu munu nú alls um
2700 félagar og þar af er tæplega
helmingur allra félaga í Sjálfsbjörg á
höfuðborgars væðinu.
Eins og hjá fleiri félögum fatlaðra
er endurnýjun ekki sú sem hún ætti
að vera miðað við þann fjölda sem
fatlaður er, en þó er endurnýjun helzt
á höfðuborgarsvæðinu.
Æskulýðsnefnd Reykjavíkur-
félagsins og landssambandsins - Ný-
ung er í raun ungliðahreyfing s.s.
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir for-
maður segir frá í Sjálfsbjargarblaðinu
1995 en þar er gott starf unnið.
Hreyfing mun á félögum utan
Sjálfsbjargar að ganga í lands-
sambandið sér til styrktar og sameig-
inlegrar eflingar baráttunnar og má
þar nefna MND-félagið og Félag
heilablóðfallsskaðaðra sem líkleg til
fylgdar, enda mun Sjálfsbjörg bjóða
þau sem og önnur félög hreyfihaml-
aðra velkomin í sinn hóp.
Sjálfsbjörg heldur aðalþing sín
annað hvort ár og er það í júní. Þar á
hvert aðildarfélag fulltrúa eftir tjölda
félaga. Aðalþing er einmitt nú fram-
undan í júní og verður sem sé afstaðið
þegar blað þetta kemur út.
Guðríður taldi það nauðsyn fyrir
Sjálfsbjörg að opna félögin betur fyrir
áhugafólki um málefni hreyfihaml-
aðra og jafnvel kæmi til skoðunar
lagabreyting hjá landssambandinu
sem heimilaði ákveðna minnihluta-
aðild ófatlaðra að stjórn þess.
Þegar þetta er ritað þá hafa aðeins
fjórir einstaklingar gegnt formennsku
í Sjálfsbjörg - landssambandi fatlaðra
þ.e. Emil Andersen, Akureyri fyrsta
árið og svo þau Theódór A. Jónsson,
Jóhann Pétur Sveinsson og Guðríður
Ólafsdóttir núv. formaður. Mun það
ekki algengt í nær 40 ára sögu lands-
samtaka.
Verkefni Sjálfsbjargar eru ærið
mörg og erfitt að gera þar upp á milli.
í Sjálfsbjargarhúsinu fer fram eins
og við þekkjum fjölþætt starfsemi og
allt er það fyrir frumkvæði Sjálfs-
bjargar, þó rekstrarform hinna ein-
stöku eininga sé ólíkt í dag.
Sjálfsbjörg - landssambandið er
með 36 leiguíbúðir samtals og er
biðlisti eftir fbúðum ærið langur s.s.
við þekkjum vel héðan. 33 íbúðir eru
leigðar út fast, ef svo má segja,
2 íbúðir eru gestaíbúðir þar sem
fólk utan af landi getur dvalizt meðan
á Reykjavíkurvist stendur og ein íbúð
er endurhæfingaríbúðin sem er þó í
raun leigð Vinnu- og dvalarheimilinu
til rekstrar. Sú íbúð komst í gagnið
1993 og var getið glögglega um hér í
blaðinu og hefur ágætum árangri
skilað.
Inn í þetta samhengi má svo skjóta
því, að þó rekstrareiningar séu að-
skildar þá er samstarf mikið og gott
milli aðila og m.a. má nefna að sam-
eiginleg símaþjónusta er í húsinu sem
reynist farsælt mjög.
Vinnu- og dvalarheimilið var á
sínum tíma byggt upp af söfn-
unarfé, framlögum og lánum frá
Erfðafjársjóði í gegnum Endurhæf-
ingarráð og beinum framlögum frá
ríkinu og rekið lengst af á daggjöld-
um. Hluti daggjalda var skilgreindur
sem húsaleiga til Sjálfsbjargar - lands-
sambandsins s.s. eðlilegt og sjálfsagt
Sjá næstu síðu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17