Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Page 30
Guðrún Ragnars barnahjúkrunarfræðingur:
Hreyfihömluð börn
í samfélaginu
Undirrituð sat ráðstefnu NOB AB
(Nordisk organisasion for syke
barns behov) í Osló í september
síðastliðnum.
Þar hélt Arvid Heiberg læknir við
Frambu center fyrirlestur og kynnti
heilsumiðstöð fyrir hreyfihömluð og
langveik börn í Noregi.
Þar sem þetta var mjög fróðlegt
erindi og ég heillaðist af fyrirkomu-
lagi og framtaki Norðmanna þá fannst
mér ástæða til að kynna þetta hér og
koma þessari hugmynd á framfæri.
Kynning á FRAMBU
Frambu er heilsu- og upplýsinga-
miðstöð fyrir langveik og hreyfihöml-
uð börn frá öllum Noregi. Hún er
staðsett skammt sunnan við Ósló í
fallegu umhverfi og hefur verið starf-
rækt frá árinu 1955, nánar tiltekið var
hún stofnuð 19. júní 1955.
Dvöl á Frambu er oftast 2 vikur í
einu fyrir alla fjölskylduna. Oftast er
reynt að hafa vissa sjúkdómahópa
saman. Frambu heilsumiðstöðin er
með 72 rúm með baðherbergi.
Fjölskyldan býr saman. Tekið er
tillit til hjólastólafólks og einnig fólks
með astma og ofnæmissjúkdóma þar
sem þetta er reyklaus staður. Eldhúsið
er með sérfæði sem þarf að panta áður
en komið er. Bömin verða að koma
með hjálpartækin sín og lyfin sín með
sér.
Markmið Frambu er að styrkja
fjölskylduna í umönnunarhlutverkinu
og að auka getu þátttakenda til að fást
við fötlun sína heima, í skólanum og
úti í atvinnulífinu.
Til að ná þessu markmiði:
1. Sérþjálfað starfslið Frambu er til
reiðu fyrir fjölskylduna:
Heldur fyrirlestra.
Eru ráðgefendur.
Gefa viðtöl.
2. Miðla sérþekkingu út í samfélagið
með því að:
gefa út bæklinga, greinar og með
útgáfu bóka,
Guðrún Ragnars.
heimsækja heilsugæslustöðvar,
halda ráðstefnur fyrir fagfólk.
Frambu er sjálfseignarstofnun sem
er rekin af ríkinu. Stjórnin saman-
stendur af fulltrúum frá félagsmála-,
kirkjumála- og menntamálaráðuneyti,
rannsóknarstofnun Óslóarborgar,
fulltrúa frá Frambu og fulltrúa sjúkl-
inga. Samstarf er við félagasamtök
sjúklinga og fatlaðra. Árlega eru
haldnir fundir með þeim sem nýta sér
Frambu og rekstur stofnunarinnar
ræddur. Frambu er rekið allt árið fyrir
utan jól og páska.
Flestir sem dvelja þarna eru í upp-
lýsinga- og meðferðardvöl.
Dvölin á Frambu er skipulögð
með fyrirlestrum, hópsamtölum og
viðtölum. Börnin fá leikmeðferð,
kennslu, skoðanir og einstaklings-
bundna meðferð.
Umhverfið býður upp á mikla
möguleikabæði úti og inni. íþróttaað-
staða og hjólastólastígar eru í fallegu
umhverfi. Sundlaug er á staðnum og
aðstaða til að fara út á vatnið á bátum
og einnig að synda í vatninu. Á kvöld-
in eru haldnar kvöldvökur og félags-
leg samvera er fyrir foreldra þar sem
komið er saman og spjallað.
Oft eru haldnir stjómarfundir eða
félagsfundir í hinum ýmsu foreldra-
hópum sem eru á staðnum. Aðstoðar-
fólk vinnur með fjölskyldunum, hjálp-
ar börnunum í skóla og á leikskóla
sem eru reknir við stofnunina og pass-
ar börnin á kvöldin.
Hópur fyrir foreldra þar sem þeir
tala saman um vandamál, ræða málin
og koma með uppástungur um breyt-
ingar til batnaðar er starfræktur og
allir sem dvelja þama fara á 3 fundi á
þessu tveggja vikna tímabili.
Eftir dvölina eru sendar skýrslur til
lækna barnanna og í skóla eða dag-
heimili.
Teymisvinna:
Þverfagleg vinna á sér stað og
vinna hinir ýmsu hópar fagstétta sam-
30