Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 35
Helgi Hróðmarsson fulltrúi:
HLUTVERK RAÐGJAFAR-
NEFNDAR SAMTAKA FATLAÐRA
Skipulag samskipta og miðlunar þekkingar
og samstarf við samtök fatlaðra
ér verður fjallað um þá hluta
HELIOS II verkefnisins
innan Evrópusambandsins
sem eru hlutverk Samráðsnefndar
samtaka fatlaðra (European Disabil-
ity Forum); skipulag samskipta og
miðlunar þekkingar innan aðildarríkja
Helios II (Exchange and Information
Activities) sem hér verður einfaldlega
kallað verkefnahópar og samstarf við
samtök fatlaðra (Cooperation with
NGO'S).
Jafnframt mun ég fjalla um hvemig
HELIOS II verkefnið og þá sérstak-
lega ofangreindir þættir þess geta nýst
á hagnýtan hátt fyrir fatlað fólk á
íslandi. Því auðvitað hlýtur það alltaf
að vera tilgangur hvaða starfsemi sem
er í þágu fatlaðs fólks, að sá hópur
sem verið er að vinna fyrir njóti þess
sem í boði er. Það þýðir að megin-
áhersla verði lögð á hagnýt not af
verkefninu.
MARKMIÐ
Markmið Helios II verkefnisins á
vegum Evrópusambandsins kemur
fram í raunverulegu heiti þess:
“Handicapped People Within the Eu-
ropean Community Living Independ-
ently in an Open Society”. Þ.e. í stuttu
máli er stefnt að því að ná fram mark-
miðinu sem er full þátttaka fatlaðs
fólks í samfélaginu. I því felst m.a.
að það sem samfélag okkar og um-
hverfi býður upp á, s.s. þjónusta,
atvinna, upplýsingar og fl. séu gerðar
aðgengilegar fyrir alla.
LEIÐIR
Til að ná fram ofangreindum mark-
miðum hafa á vegum HELIOS II
verið settir á stofn hópar og nefndir
sem vinna á hinum ýmsu sviðum sem
tengjast málefnum fatlaðs fólks.
Bæði er um að ræða hópa sem fjalla
um stjómun og tengsl stjórnvalda og
samtaka fatlaðra við HELIOS II
verkefnið, auk þess sem settir hafa
Helgi
Hróðmarsson.
verið á stofn vinnuhópar í ýmsurn
afmörkuðum málaflokkum þar sem
fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk,
sérfræðingar í ákveðnum sérsviðum í
málaflokknum og fleiri bera saman
bækur sínar.
ÞÁTTTAKENDUR
Hverjir eru það svo sem tengjast
HELIOS II verkefninu og þá ekki síst
verkefnahópunum (Exchange and In-
formation Activities)? Æskilegt er að
viðkomandi hafi starfað að málefnum
sem tengjast blöndun eða samskipan
og hafi reynslu á ákveðnu sviði í
málaflokknum og sé tilbúinn til að
koma því sem fæst út úr verkefninu
til skila til samfélagsins eftir því sem
kostur er, ekki síst á þann vettvang
sem viðkomandi starfar við. Viðkom-
andi verður sem sé að vera tilbúinn
til að vinna að ákveðnum markmiðum
sem tengjast áhersluatriðum sem sett
eru fram í verkefninu. Það er m.a.
gert í gegnum miðlun upplýsinga,
ráðstefnur, fyrirlestra, skoðunarferðir,
þjálfunamámskeið, umræðuhópa og
á annan hátt með samstarfi Evrópu-
ríkja. Einnig er mikilvægt að þeir sem
starfa að þessu verkefni hafi góða
samvinnu við yfirvöld bæði í sveitar-
félögum og ríkisstjórn og um sé að
ræða góð tengsl við hagsmunasamtök
fatlaðra.
SAMRÁÐSNEFND
SAMTAKA FATLAÐRA
Samráðsnefnd (European Disabil-
ity Forum) er ein af þremur nefndum
HELIOS II sem kallast ráðgjafar-
nefndir (Consultative Bodies).
Samráðsnefndin var sett á stofn til
að auka samvinnu milli ESB og
frjálsra félagasamtaka í málefnum
fatlaðra. Þarna er um að ræða um-
ræðuvettvang og miðlun upplýsinga
milli samtaka fatlaðra í Evrópu sem
veitir bæði heildarsamtökum fatlaðra
í aðildarríkjunum og einnig fjölþjóð-
legum samtökum s.s. Rehabilitation
International, Mobility International
og fleirum tækifæri til að hafa áhrif á
framkvæmd HELIOSII verkefnisins.
Formaður þessa hóps er kosinn af
fulltrúum samráðsnefndarinnar. Nú-
verandi formaður er Johan Wesemann
sem er fulltrúi samtaka heymarlausra.
I samráðsnefndinni situr einn full-
trúi frá hverju hinna 15 aðildarríkja
Evrópusambandsins auk fulltrúa frá
Noregi og íslandi sem eiga þama aðild
á sömu forsendum eins og í öllum
öðrum nefndum og vinnuhópum inn-
an HELIOS II þ.e. vegna aðildar
Islendinga að EES samningnum. En
ákvörðun um fulla aðild Islendinga
byggir á ályktun 31 eða protocol 31
sem samþykkt var innan Evrópusam-
bandsins á síðasta ári. Sú ályktun
veitir Islendingum sömu réttindi í
HELIOSII og aðildarríki Evrópusam-
bandsins njóta.
Dæmi um viðfangsefni sem fjallað
er um í samráðsnefndinni eru umræð-
ur umjafnrétti, jafnan rétt til lífsgæða
og jafna möguleika t.d. með notkun
viðmiðunarreglna Sameinuðu þjóð-
anna. Einnig eru settar fram skýrslur
um það sem í gangi er á vegum
HELIOSII verkefnisins í hinum ýmsu
verkefnum, vinnuhópum og nefndum.
Fjallað er um aðgerðir í tengslum við
dag fatlaðra 3. desember og stefnu
Sjá næstu síðu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35