Fjölrit RALA - 10.05.1992, Page 10

Fjölrit RALA - 10.05.1992, Page 10
BÚFJÁRDEILD MEÐALÞYNGD, G dH JANÚAR 1991 ■■ OKTOBER SSS JANOAR 1992 I I MEÐALÞYNGD % KYNÞROSK! 1. mynd. Meðalþyngd 15bleikjustofna í janúar og október 2. mynd. Kynþroski bleikjustofna og meðalþyngd þeirra í 1991 og janúar 1992. janúar 1992. inu geti orðið uppistaða í fyrstu kyn- slóð í kynbótum á bleikju. Verkefninu lýkur snemma árs 1993. Rannsóknasjóður Rannsóknaráðs rík- isins og Framleiðnisjóður hafa styrkt verkefnið sem er samvinnuverkefni Rala, Hólalax, Búnaðarfélags íslands, Veiðimálastofnunar og bleikjunefndar Rannsóknaráðs ríkisins. Emma Eyþórsdóttir og Þuríður Pétursdóttir Samanburður á vexti bleikju við mismunandi hitastig Markmið verkefnisins er að bera sam- an vöxtogstærðardreifinguhjábleikju- hópum sem aldir eru við mismunandi hitastig. Talið er að bleikja vaxi vel við mun Iægra hitastig en nauðsynlegt er fyrir aðrar laxfiskategundir. Heita vatnið er dýrt og því getur arðsemi eldisins grundvallast á vaxtarhraða við náttúrleg skilyrði. í lokjúlí 1991 voru valdir 600 fiskar á bilinu 130-200 g úr því sem eftir var af stofnaverkefninu (blanda af mismun- andi stofnum). Síðan hefur fiskurinn verið alinn við mismunandi hitastig: 4, 6, 8, 10, 12 og 14°C. Allir fiskarnir eru vigtaðir og lengdarmældir einu sinni í mánuði. Bráðabirgðaniðurstöður sýna að vöxtur er bestur við 12°C en 10 og 8° fylgja fast á eftir (3. mynd). Við 14° vex bleikjan hins vegar mjög illa. Ráð- gert er að verkefninu ljúki í maí 1992 en þá ætti fiskurinn að hafa náð mark- aðsstærð. Framleiðnisjóður hefur styrkt verkefnið. Þuríður Pétursdóttir Stytt œttliðabil hjá laxi Markmiðið með verkefninu er að kanna hvort stytta megi ættliðabil í laxakynbótum úr fjórum árum í tvö ár. Með styttingu ættliðabils má stórauka erfðaframfarir í kynbótum. Framfarir verða tvöfalt meiri ef ættliðabil styttist úr fjórum árum í tvö. Efniviður var fenginn úr samanburð- artilraun á laxastofnum. Annars vegar var valinn fiskur, sem varð kynþroska eftir eitt ár í sjó ásamt óvöldum saman- burðarhópi, og hins vegar fiskur sem varð kynþroska eftir tvö ár í sjó ásamt óvöldum samanburðarhópi. Tilgangurinn með því að nota fisk úr báðum kynþroskahópunum var að prófa tvenns konar úrval. Annars vegar einstaklingsúrval eingöngu fyrir vexti á bráðþroska fiski til geldingar og hins vegar fjölskylduúrval þar sem valið er fyrir hröðum vexti og gegn ótímabær- um kynþroska. MEDALÞYNGD, G 1000 r 600 - 6 ’C 8 *C 10 ‘C HITASTIG, ‘C I JÚLf Y//\ FEBRÚAR 3. mynd. Meðalþyngd bleikju sem alin er við mismunandi hitastig vatns.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.