Fjölrit RALA - 10.05.1992, Page 43

Fjölrit RALA - 10.05.1992, Page 43
JARÐRÆKTARDEILD Meðferð og gróðurfar túna Sumrin 1990 og 1991 var á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins gerð úttekt á gróðurfari og meðferð túna á Austur- og Vesturlandi. Þessum landshlutum var skipt upp í minni svæði og á hverju þeirra voru valdir úr nokkrir bæir. Túnunum á þessum bæjum var skipt í flokka eftir aldri þeirra, með- ferð og fleiri þáttum. Túnin í hverjum flokki voru síðan gróðurgreind með því að kasta út járnhring (60 sm í þvermál) á nokkrum stöðum í hverri spildu og þekja einstakra tegunda áætl- uð í hringnum. Auk gróðurgreiningar- innar var ýmsum upplýsingum safnað um túnin, t.d. um halla, jarðveg, raka- ástand, tilurð gróðurs, aldur, tilbúinn áburð, búfjáráburð, beit, fjölda slátta, kalskemmdir o.fl. I úrvinnslu var reynt að tengja endingu sáðgresis meðferð- arþáttum. Á Austurlandi voru 33 bæir heimsóttir, 22 á Vestfjörðum en 30 á Vesturlandi. Ein grasfræblanda hefur verið ráðandi á markaði síðastliðin 20-30 ár, þ.e. blanda með 50% vallarfoxgrasi og um 25% af hvoru fyrir sig túnvingli og vallars veifgrasi. Þessar tegundir eru því ríkjandi í ungum túnum, einkum þó vallarfoxgrasið. Vallarfoxgras er upp- skerumikið og gott fóðurgras en er viðkvæmt fyrir ýmsum meðferðar- þáttum eins og sláttutíma, áburðartíma og beit. Vallarfoxgrasið víkur því oft nokkuð fljótt fyrir annaðhvort hinum tegundunum í blöndunni eða tegund- um sem fyrir voru í landinu þegar því var bylt. Mikill munur er hins vegar á því eftir svæðum hvaða tegundir taka við þeg- ar vallarfoxgrasið hverfur. Língresi er áberandi í útsveitum og á annesjum en snarrótarpuntur fjær sjó, einkum í döl- um og á árbökkum. Á Vestfjörðum var t.d. mjög lítið af snarrótarpunti. Vall- arsveifgras er hins vegar algengasta grastegundin þegar á heildina er litið. Guðni Þorvaldsson Loftun og kölkun túna Á sumum svæðum er jarðvegur mjög þéttur og loftlítill. Þetta stuðlar að minna viðnámi gróðurs gagnvart svell- um og dregur úr sprettu. Verkefnið miðar að því að kanna hvort hægt sé að minnka kalhættu og auka uppskeru með því að lofta jarðveginn með þar til gerðum tækjum. Samhliða hafa áhrif kölkunar á þessa sömu þætti verið könn- uð. Vorið 1991 voru tvær tilraunir lagðar út á Austurlandi og tvær á Norð- urlandi í þessum tilgangi. Á Austur- landi var notað tæki sem gerir rásir í jarðveginn í 40 sm dýpt en á Norður- landi var notaður gatari sem tekur um 5 sm langa tappa upp úr yfirborðinu. Guðni Þorvaldsson og Þórarinn Lárusson Rannsóknir á svellkali Unnið hefur verið að endurbótum á aðferðum til mælinga á svellþoli jurta í samvinnu við tilraunastöðina á Vágönesi í Norður-Noregi. Hefur að- ferðinni verið breytt nokkuð á íslandi í framhaldi af þeim rannsóknum. Fela brey tingarnar í sér bæði einfaldari fram- kvæmd og aukna nákvæmni. Keyptur hefur verið viðbótarútbúnaður á kal- stofu og loftræstikerfi og sjálfvökvun- arbúnaði hefur verið komið upp til ræktunar á efniviði. Nú eru grösin rækt- uð í steinull og vökvuð með áburðar- blöndu í stað jarðvegsræktunar áður. Þáhafa verið keyptar nýjar kistur til að herða og svella grösin í þannig að hægt er að hafa skilyrðin jafnari en áður var. Þá er ískurl sett í vatnið við svell- un þannig að vatnið, sem plönturnar eru svellaðar í, frýs hraðar og jafnar en áður. Ekki virðist bráðnunartíminn valda óeðlilegum sveiflum en mikil- vægt virðist að sýna meiri nákvæmni við mat á skemmdum en gert hefur verið. Er nú notaður kvarði við mat á kalskemmdum í stað þess að telja ein- ungis dauðar plöntur líkt og áður var gert. Rannsóknir á grösum síðustu árin hafa leitt í ljós að: a) Vefir í rótarhálsi á vallarfoxgrasi drepast missnemma við svellkal. b) Nokkrar tegundir baktería lifa á svelluðum grösum en hlutdeild þeirra í svellkali er enn óljós. c) Ungar plöntur virðast svellþolnari en eldri plöntur. d) Sláttur rýrir svellþol grasa. Bjarni E. Guðleifsson Vetrarkorn Samstarfshópur á vegum Samnordisk Planteforedling (SNP) vinnur að rann- sóknum á vetrarþoli vetrarkorns. Um er að ræða vetrarbygg, vetrarhveiti, vetr- arrúg og vetrarrúghveiti. Tegundunum er sáð síðsumars eða að haustinu og lifa þær sem smáplöntur yfir veturinn og ættu því að hafa forskot umfram vorsáð korn. Vetrarkorn hefur hins veg- ar mun minna vetrarþol en túngrös og verður oft fyrir skakkaföllum af völd- um kals. Gallinn er ennfremur sá að fljótþroskaðasta tegundin, vetrarbygg- ið, hefur minnst vetrarþol. Vetrarrúg- urinn er hins vegar vetrarþolnastur en þarf lengri vaxtartíma. Rannsóknirnar fela annars vegar í sér akurtilraunir, þar sem vetrarþol og korn- uppskera er mæld, og hins vegar til- raunir á kalstofu þar sem frostþol og svellþol er mælt. Er unnið að svipuð- um tilraunum af öðrum aðilum sam- starfshópsins á hinum Norðurlöndun- um. Þriggja ára tilraunir benda til að allar tegundir vetrarkorns geti lifað af góða vetur hér en vetrarbyggið verður helst fyrir kalskemmdum. I harðari árum drepst nær allt vetrarkorn en ein- ungis þolnustu afbrigði vetrarrúgs lifa. Komþroski hefur verið sæmilegur og haustið 1991 gafbesta tvíraðabyggið 50 mg korn, kornþunginn hjá sexraða- byggi var um43 mg, 36 mg hjá vetrarrúg- hveiti, 33 mg hjá vetrarrúgi og 30 mg hjá vetrarhveiti. Bjarni E. Guðleifsson Uppgrœðsla vegkanta Sumarið 1987 hóf Rannsóknastofnun landbúnaðarins tilraunir og athuganir á uppgræðslu vegkanta fyrir Vegagerð 41

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.