Fjölrit RALA - 10.05.1992, Side 49

Fjölrit RALA - 10.05.1992, Side 49
JARÐVEGSDEILD Bjarni Helgason jarðvegsfræðingur, deildarstjóri Grétar Guðbergsson jarðfræðingur Friðrik Pálmason plöntunæringarfræðingur Ólafur Arnalds jarðvegsfræðingur Helstu viðfangsefni jarðvegsdeildar eru í fyrsta lagi rann- sóknir á áburðarnotkun, þ.e. áburðartilraunir á túnum, í kartöflurækt, kornrækt og ylrækt. Þróaðar eru aðferðir við mat ááburðarnotkun. Jarðvegsefnagreiningarvegnaáburð- arleiðbeininga eru snar þáttur í starfinu, einnig rannsóknir á kölkun jarðvegs, þ.e. kalktilraunir á túnum, þróun aðferða við mat á kalkþörf og mat ákalkþörf (sýrustig, títrun). I öðru lagi fara fram jarðvegsrannsóknir sem beinast einkum að myndun jarðvegs og þróun hans, jarðvegseyðingu, jarð- vegsgerð, jarðvegsflokkun og kortagerð. í þriðja lagi er svo unnið að rannsóknum á niturnæringu nytjajurta. Starfsmennjarðvegsdeildartakaþátt íalþjóðlegu samstarfi. Má þar nefna vinnu í nefndum á vegum norrænu ráðherra- nefndarinnar, s.s. varðandi efnagreiningar tengdar land- búnaði og útskolun næringarsalta úr jarðvegi, einnig vinnu í starfshópi á vegum vísindanefndar NATO um jarðvegs- eyðingu í þróuðum löndum. Bjarni Helgason Jarð vegsefnagrein ingar Arlegar efnagreiningar vegna ylræktar voru álíka margar síðastliðin tvö ár og áður hefur verið, eða um 1000 sýni hvort ár. Þessi ár hefur grasspretta ver- ið í góðu lagi hjábændum og heyskap- artíð góð. Reynsla jarðvegsdeildar- manna er sú að bændur leita þá minna eftir áburðarleiðbeiningum. Sýni vegna áburðarleiðbeininga í túnrækt hafa því verið mun færri en oft áður. Jarðvegs- sýni eru þó tekin reglulega á allmörgum bæjum með vissu árabili til þess að fylgjast með breytingum á áburðar- notkun og jarðvegi. Sýnum er skipt í tvo flokka við úrvinnslu þeirra; mýrar- tún og þurrlendistún. Áburðarleiðbeiningar sem þessar byggjast á föstum áburðartilraunum er staðið hafa um langa hríð, þar sem fylgst er með uppskeru og breytingum á jarðvegi. Er þar bæði um skamm- tímaáhrif og breytingar til langframa að ræða. Meðal annars er tilraun með aukinn kalíáburð á framræstu mýrar- túni á tilraunastöðinni að Sámsstöð- um (1. mynd). Þar kemur fram að kalí í jarðvegi vex með auknum kalíáburði og að kalíinnihaldjarðvegsins er breyti- legt milli ára. Síðarnefndu breyting- arnar stafa væntanlega af ólíku árferði og þá fyrst og fremst hitastigi og úr- komu. Bjarni Helgason Rofhraðamœlingar Sumrin 1990og 1991 vorufarnarnokkr- ar rannsóknarferðir um Vestur-, Norð- ur- og Austurland til þess að kanna jarðvegseyðingu og rofhraða. Ymsar upplýsingar liggja nú þegar fyrir en eftir er að vinna úr allmörgum sýnum sem safnað hefur verið. I rannsóknum MEQ K/100 G JARÐVEGS 1990 —I— 1991 1. mynd. Ahrif vaxandi K-áburðar á kalímagn í mýrarjarðvegi. 47

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.