Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Blaðsíða 66
64 ÍSLENZKAR LANDBÚNABARRANNSÓKNIR
kemur milli burðarmánaða, 'lítill, 0,1
prósentueining á bezta og lakasta burðarmán-
uði. Burðartímaáhrifin fyrir fituprósenm eru
auk þess fremur óregluleg. Þannig er fitu-
prósenta lægst hjá kúm, sem bera í ágúst, en
hæst hjá októberbærum. Ætla má, að stór
hluti þeirra áhrifa, sem hér eru metin sem
burðartímaáhrif fyrir þennan eiginleika, séu
aldursáhrif, sem flytjast yfir á burðartímaáhrif
vegna þess, hve þessi áhrif eru samtvinnuð
í þessum gögnum.
Hæsta dagsnyt er hæst hjá þeim kúm,
sem bera í maímánuði, en lægst er hún hjá
desemberbærum, þegar undan eru skildar
þær kýr sem ekki bera á árinu. Hjá þeim
kúm er hæsta dagsnyt til jafnaðar um þremur
kg lægri en hjá öðrum kúm. A 4. mynd eru
sýnd áhrif burðarmánaðar á hæstu dagsnyt
í ólíkum aldursflokkum. Víxláhrifin fyrir
þennan eiginleika koma þarna mjög skýrt
fram, þar sem þriggja ára gamlar kýr, sem
bera í janúar, hafa áberandi lága hæstu
dagsnyt. Skýringin á þessu er sú, að megin-
hluti þeirra þriggja ára kúa, sem bera í jan-
úarmánuði, er kýr, sem þá bera fyrsta kálfi;
hitt em kýr, sem þá bera öðrum kálfi óeðli-
lega ungar. Meginhluti þriggja ára kúa, sem
bera síðar á árinu, er þá aftur á móti að
bera öðrum kálfi sínum. Það, sem hér kemur
fram sem burðartímaáhrif hjá þriggja ára
kúm, er því að miklum hluta aldursáhrif og
áhrif af því, hvenær á skýrsluárinu annað
mjólkurskeið kýrinnar hefst. Þess má geta,
að í erlendum rannsóknum fannst, að kýr,
sem eru orðnar gamlar (3—4 ára), þegar
þær bera fyrsta kálfi, skila oft fremur litlum
afurðum (Skjervold, 1949, Hickman,
1973). Þetta er talið geta stafað af óheppi-
legri fitusöfnun í júgurvef hjá þeim gripum.
Þær kýr, sem bera í desember, eru ekki komn-
ar í hæstu dagsnyt, þegar skýrsluárinu lýk-
ur. Þær kýr, sem ekki bera á árinu, hafa
sjaldnast komizt í sína eðlilegu hæstu dags-
nyt á skýrsluárinu. Hin raunverulegu burðar-
tímaáhrif á hæstu dagsnyt má því ætla hverf-
andi lítil, en það, sem hér er metið sem slík
áhrif, eru í reynd margvísleg skýrsluáhrif.
Áhrif burðartíma, sem hér fundust, eru
mjög lík og Magnús B. Jónsson (1968)
fann í sinni rannsókn, nema munur milli
beztu og lökustu burðarmánaða er heldur
meiri hér. Sigurjón Steinsson (1967) fann,
að kýr, sem báru í janúarmánuði, skiluðu
mestum afurðum, en kýr, sem báru í júní—
ágúst, skiluðu minnstum afurðum. Aftur á
móti fann hann, að þær kýr, sem báru á
síðustu mánuðum ársins, skiluðu hlutfalls-
lega meiri afurðum en hér er fundið. Osam-
ræmi á niðurstöðum hans og þeim niður-
stöðum, sem hér er gerð grein fyrir, má
ætla, að skýrist að hluta af því, að hann
tók í sína rannsókn aðeins fullmjólka kýr.
Þá falla út allar þær kýr, sem bera öðrum
kálfi á skýrsluárinu, og einnig þær kýr, sem
hafa að einhverju leyti óeðlilega lágar afurðir.
Ætla má, að slíkum kúm fjölgi hlutfallslega
eftir því, sem kýrin ber síðar á árinu.
Syrstad (1965) fann í rannsókn í Noregi,
að kýr, sem báru fyrri hluta vetrar, frá sept-
ember til janúar, skiluðu mestum afurðum,
en kýr, sem báru í júní og júlí, voru afurða-
lægstar. Rétt er að benda á, að skýrsluárið í
Noregi hefst 1. september.
í rannsóknum í Svíþjóð (Danell, 1976),
þar sem notuð var mjólkurskeiðsnyt, fundust
hæstar afurðir hjá þeim kúm, sem báru að
hausti og fyrri hluta vetrar (september—
janúar), en lægstar að vori og sumri (apríl—
ágúst). í rannsókn í Bretlandi (Wood, 1970)
og í ísrael (Fimland et. al., 1972) fundust
sams konar áhrif burðartíma á afurðir.
í víðtækustu rannsóknum, sem hafa verið
gerðar á þessum áhrifum, af Miller (1973)
í Bandaríkjunum, fannst, að kýr, sem bera í
október til janúar, skila mestum afurðum, en
sumarbærur lökustum afurðum. I þeirri rann-