Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 43
FLOKKUN GRÓÐURS í GRÓÐURFÉLÖG 41
á vorin. Minnist ég þess, að sauðfé sótti oft
í brokflóa snemma vors, áður en nokkur
gróður var kominn í úthaga, þótt það liti
ekki við þeim á sumrin.
Hálfgrösin eru aðalgróður flóans. Þó
finnast þar runnar, helzt grávíðir og blá-
berjalyng, en ætíð lítils vaxtar. Samt má
segja, að grávíðir sé algengur í hálendis-
flóum. Grös eru fá og strjál, og blómjurtir
sjást varla aðrar en engjarós og horblaðka.
Flóinn er mjög tegundasnauður, snauð-
astur allra íslenzkra gróðurlenda, og er
lítill gróðurmunur hans, hvort sem hann
er í hálendi eða á láglendi, nema eigin-
legur gulstararflói er ekki til í hálendinu.
Enda þótt flóinn sé tegundafár og gróður
hans einleitur, koma þó fram í honum 6
gróðursveitir með nokkrum hverfum hver.
Gulstararsveit
Gulstararsveitin VI og V7, sem hin mestu
og grösugustu starengi landsins teljast til,
er að minnstu leyti flói, heldur heyrir hún
til gróðurlendi, sem bæði að myndun,
jarðvegi og gróðurfari er alóskylt flóanum
og kallast flœðimýri.
Flæðimýrin verður aldrei til nema við
vötn, aðallega þó meðfram lygnum ám og
við árósa, þar sem fjarðabotnar hafa fyllzt
af framburði vatnsfalla. Allar óshólma-
mýrar landsins eru flæðimýrar. Litlar
flæðimýrar geta orðið til í tjörnum og
stöðuvötnum, þar sem lækir falla fram.
Löngum er flæðimýrin ekki hærri en svo,
að vatn sígur eða flæðir inn í hana, þegar
vatnavextir eru. Þannig berst alltaf fersk-
ur vatnsstraumur um undirlag flæðimýr-
arinnar, jafnframt því sem vatnið sígur
fram eftir henni í sömu stefnu og áin
rennur. Þannig er jarðvatn hennar harla
ólíkt hinu staðnaða, súra flóavatni. Mó-
myndun er engin, en undirlagið er leir og
sandur, sem nær oftast mjög djúpt niður.
Af jarðstönglum gulstararinnar myndast
mjög seigt torflag, reiðingur, ofan á
undirlaginu, svo að vel er fært hestum
fram og aftur um flæðimýrina. Milli
flæðimýrar og árinnar eru venjulega
þurrir bakkar, sendnir, en vaxnir mýrelft-
ingu og stundum loðvíði. Oft er mikið um
hvítsmára og umfeðming, og er því gróður-
lendi lýst sem elftingarjaðri, en kalla má,
að hann fylgi eftir flæðimýrinni. Loðvíðir
oggrávíðir vaxa eingöngu þar, sem bakkar
eru sendnir og liggja nokkru hærra yfir
vatnsborð árinnar en elftingarbakkarnir.
Margt er þar af grösum og gróður yfirleitt
fjölskrúðugur.
Flæðimýrin er einleitt gróðurfélag. Að-
altegundin er gulstör. Er oft nær enga aðra
tegund að finna á stórum svæðum. Verður
gulstörin oft hávaxin, metri á hæð eða
jafnvel meira, þar sem bezt gegnir, t. d. á
Hvanneyrarfit og Safamýri áður fyrr. Er
hún grösugasta og gjöfulasta gróðurlendi
landsins frá náttúrunnar hendi, því að
naumast bregzt þar spretta í grasleysis-
sumrum né dregur úr uppskeru hennar,
þótt hún sé slegin árlega. Auk þess er
gulstörin viðurkennd ágætisfóður. En þótt
tegundir séu fáar í gulstararmýrinni, hafa
samt verið skilgreind í henni níu gróð-
urhverfi, en mörg þeirra eru næsta lítil um
sig. Gulstörin myndar gróðurhverfi með
þessum tegundum, innan flæðimýrarinn-
ar: fergini, horblöðku, hófsóley, mýrastör,
vetrarkvíðastör, blátoppastör, hálmgresi, knjá-
liðagrasi og fífu. Fátt annarra tegunda
finnst í flæðimýrinni; Þó má nefna þar
skriðlíngresi, mýradúnurt og hrafnaklukku.
Hinn eiginlegi gulstararflói er að teg-
undum sviplíkur flæðimýrinni; þó eru ein-
kennistegundir hinna einstöku gróð-
urhverfa, átta að tölu, að nokkru aðrar,