Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 71
GRÓÐURKORTAGERÐ 69
7. mynd: Blaðstærð gróður- ogjarðakorta (byggðakorta, mælikvarði 1:20 000) sem hafa verið gefrn út, er u.
þ. b. 46X60 cm. Þau eru af svæði, sem er 5X 15 bogamínútur eða um 9,2X 12,2 km. Blaðstærðin breytist
þegar farið verður að nota myndkort sem grunnkort og verður um 48 X 56 cm. Hvert kort sýnir þá svæði sem
er 6X 12 bogamínútur eða um 9,6X 11,2 km.
Fig. 7: Format ojvegetation maps at 1:20 000 scale has been ca. 46x60 cm. In thefuture, when orthophotomaps will be used
as base maps, theformat will be ca. 48x56 cm. The maps are 5X15minute quadrangles now and will be 6X12 min. in the
future.
fjórðungarnir um 24x28 cm hver. Þeir
verða notaðir við vettvangsgreiningu, en
hitt settið verður notað sem grunnkort og
upplýsingar færðar inn á það af vett-
vangskortunum.
Astæður þess, að æskilegt er að nota
myndkort í stað loftmynda og AMS-korta,
eru m. a. eftirfarandi:
1. Myndkortin eru réttari (mælikvarði,
staðsetningar) en AMS-kort, og því verða
flatarmálsmælingar réttari en af gróður-
korti á AMS-grunnkorti.
2. Endurskoðun og lagfæring kort-
grunns verður óþörf. Myndkort verða
gerð eftir nýjum loftmyndum, og þess
vegna verður þarflaust að endurskoða og
breyta ám, vötnum, ströndum, vegum,
túnum o. fl. Talsverður tími hefur farið í
slíka vinnu hingað tii. Vettvangsgreining
verður líka nákvæmari og réttari, þegar
nýteknar myndir eru notaðar.
3. Vörpun land- oggróðurgreiningar af
vettvangskortum (loftmyndum) á grunn-
kort verður til muna fljótlegri en nú er og
jafnvel óþörf að miklu leyti. Við vörpun á
grunnkort í kortateiknunartæki er mæli-
kvarða vettvangskorts breytt og hann
samhæfður mælikvarða grunnkorts (sjá
79. bls.). Sé myndkort hins vegar notað,
verða vettvangskort í sama mælikvarða og
grunnkortið. Þess vegna verður að miklu
leyti um beina teikningu að ræða, þegar
gróður- og landgreining er yfirfærð á
kortgrunn. Það er auðveldara og fljótlegra
verk en vörpunin, sem tíðkazt hefur.
4. Vettvangsvinna verður væntanlega
fljótlegri en verið hefur, aðallega vegna
þess, að nýjar loftmyndir verða notaðar
við gerð kortanna.
Með tilkomu myndkorta og notkunar
þeirra sem grunnkorta við gróðurkorta-
gerð verður unnt að halda áfram vinnu við