Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 152

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Page 152
150 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR þessu veldur, en augljóst er, að bætt, skipuleg landnýting leiðir ekki aðeins til batnandi gróðurfars, heldur einnig aukins hagnaðar afsauðfjárbúunum. I allri þeirri umræðu, sem orðið hefur að undaníornu um vandamál landbúnaðarins, hefur afurðasemi sauðfjárins lítið borið á góma, þótt augljóst sé, að hún skiptir sköpum um afkomu hans. Þetta sést glöggt með því að bera saman afurðir sauðQár á Grænlandi og Islandi. Nú þegar þarf að kanna ýtarlega fjölda búfjár í högum, bæði á hálendi og lág- lendi, um land allt og bera hann saman við niðurstöður rannsóknanna á beitarþoli og ástandi gróðurs á hlutaðeigandi svæðum. Það þarf að draga úr sókn í ofbeitt beiti- lönd og auka sókn í vannýtt og ræktuð svæði og beitilönd. Ofbeit er langmest á hálendi, og þótt hún sé einnig á nokkrum svæðum á láglendi, eru talsverð svæði ekki fullnýtt og geta tekið við hluta þess búQár, sem er umfram beitarþol á afréttum. Að vísu eru mörg óleyst vandamál í sambandi við nýtingu láglendisins, svo að ekki fást þar fullnægjandi afurðir afsauðfénu. Þetta virðast aðallega vera vandamál, sem tengd eru beitarstjórnun eða öllu heldur skorti á henni. Uthagagróður sprettur ört úr sér á láglendi og hefur þegar miðsumars of lítið næringargildi til að gefa miklar afurðir. Ur þessu má bæta með skipu- lagðri beit, og hafa margir bændur þegar tekið hana upp. Er nú unnið að tilraunum á þessu sviði, þótt þær þyrftu að vera mun víðtækari. En víða er svo brýnt að létta á afréttum, að ekki er unnt að bíða eftir þessari lausn, og af tvennu illu er skárra að fá rýr lömb afvannýttu láglendi en jafnrýr lömb af ofnýttu hálendi, þar sem gróður- eyðing fylgir í kjölfar oíbeitar. Fyrst af öllu þarf að taka upp stjórn beitar á afréttum landsins. Niðurstöður gróðurrannsóknanna verði lagðar til grundvallar við ákvörðun á leyfilegum beitarþunga á hverjum afrétti, mældum í íjölda beitardaga, en við þá ákvörðun verði tekið fullt tillit til annarra atriða, sem gætu haft áhrif á endanlegan beitar- þunga til hækkunar eða lækkunar, eins og framan hefur verið getið. Þetta á að koma í veg fyrir ofbeit í meðalárferði. Hins vegar er að sjálfsögðu ekki með þessu móti einu unnt að sjá fyrir og taka tillit til rýrnunar á uppskeru og beitarþoli í harðæri. Þess vegna þarf sérþjálfaða eftirlitsmenn um land allt til þess að fylgjast með þróun gróðurs og nýtingu hans hvert sumar. Þeir tækju ákvörðun um, hvenær gróður væri orðinn nógu vel á veg kominn, til þess að óhætt væri að reka á afrétt. Þeir myndu síðan fylgjast með beitinni öðru hverju um sumarið, ákveða, hvenær færa þyrfti fé frá afréttargirðingum til byggða og hvenær gróður væri orðinn hæfilega beittur að hausti og beitartíma ætti að ljúka. A. m. k. einn slíkur eftirlitsmaður þyrfti að vera í hverri af hinum stærri sýslum landsins. Með þessu móti væri komið upp eftir- litskerfi, svipað og gert hefur verið við nýtingu fiskimiðanna og gefið góða raun. Að sjálfsögðu þarf að fylgjast með, að heimalönd séu einnig hóflega nýtt, og á því hafa flestir bændur eflaust skilning. Með þessu gætu héraðsráðunautar fylgzt og einnig gróðureftirlitsmaður, sem ætti að starfa á vegum Landgræðslunnar. I því skyni að meta, hvenær beitiland er orðið nægilega gróið að vori, til þess að óhætt sé að he^a beit, og hvenær gróður er orðinn hæfilega bitinn að hausti, mætti velja nokkur gróðurlendi á svæðinu, sem notuð yrðu sem lykilsvæði ár eftir ár. I hverju þessara gróðurlenda yrðu valdar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.