Bændablaðið - 24.09.2020, Side 12

Bændablaðið - 24.09.2020, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202012 FRÉTTIR Meirihluti fyrirtækja í ferðaþjónustu á Norðurlandi telja sig lifa COVID af: Bjartsýni og kraftur ríkjandi en gera má ráð fyrir þungum vetri „Það er ánægjulegt að sjá kraft­ inn og jákvæðnina sem kemur fram í þessari könnun, þrátt fyrir þá erfiðu stöðu sem er verið að vinna með. Ferðaþjónustuaðilar eru þrautseigir og tilbúnir að vinna með þau tækifæri sem gef­ ast ásamt því að vera tilbúnir í að setja allt á fullt aftur um leið og færi gefst. Mikilvægt er að stjórn­ völd styðji við greinina í gegnum næstu mánuði og vinni þannig með þessum aðilum að því að viðhalda kraftinum og möguleikunum á hraðri uppbyggingu á ný,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, fram­ kvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Stofan gerði á dögunum könnun á stöðu og horfum í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Meðal þess sem fram kemur í könnuninni er að meirihluti forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækja á Norður­ landi telja að fyrirtæki þeirra muni komast í gegnum þá erfiðleika sem COVID­19 faraldurinn hefur orsakað. Úrræði henta ekki Könnunin er svipuð þeirri sem var gerð á vormánuðum, en tilgangurinn var að sjá hvort eitthvað hefði breyst hjá fyrirtækjunum síðan þá. Heilt yfir eru niðurstöðurnar svipaðar, en þó hefur orðið sú breyting að helmingi fleiri nýta nú hlutabótaleið stjórnvalda en gerðu það á vordögum. Engu að síður er tæplega helmingur fyrirtækja ekki að nýta úrræði stjórnvalda og meirihluti sagði ástæðuna vera þá að úrræði stjórnvalda henti þeim ekki. Arnheiður segist ekki hafa fullnægjandi upplýsingar úr könn­ uninni hvers vegna aðeins rétt um helmingur fyrirtækja nýti sér þau úrræði sem stjórnvöld bjóði upp á. Það veki vissulega nokkra athygli hversu fáir nýti það sem í boði er af hálfu stjórnvalda. „Við sjáum að stór hluti lítilla fyrirtækja er ekki að nýta úrræðin. Það er mikilvægt að horfa sérstaklega á þennan hóp og skoða hvernig er hægt að koma til móts við hann. Að sama skapi verður að skoða aðstæður á ákveðnum svæðum þar sem eru miklir erfiðleikar og tryggja að ferðaþjónustan geti starfað af krafti eftir kórónuveirufaraldurinn,“ segir Arnheiður. „Við veltum því fyrir okkur hver ástæðan er, smæð fyrirtækja getur þar haft áhrif, árstíðasveifla eða kannski aðrar ástæður,“ segir hún. Bjartsýni en ákveðnar blikur á lofti Samt sem áður segir hún ákveðna bjartsýni ríkja í hópi forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækja í lands­ hlutanum og það viti á gott. Alls sögðu 76% aðspurðra að það væri líklegt eða mjög líklegt að fyrirtæki þeirra myndi lifa af það ástand sem hefur skapast vegna COVID­19. Þó hefur þeim fjölgað sem segjast í óvissu um hvort fyrirtækið verði opið næstu 12 mánuði. Í vor kváðust 8% svarenda í óvissu með hvort fyrirtækið yrði gangandi en nú hefur fjölgað í hópnum, 18% þeirra sem tóku þátt í könnuninni segjast nú vera í óvissu með hvort fyrirtæki verði opið. „Það eru greinilega ákveðnar blikur á lofti með veturinn,“ segir hún. „Mér sýnist að hann muni verða þungur, enda sést lítið af erlendum ferðamönnum.“ Sumir loka, aðrir aðlaga vöruframboðið Arnheiður segir að þegar hafi ein­ hver fyrirtæki tekið ákvörðun um að loka þar til næsta vor en önnur hafi tækifæri á að ná til innlendra ferða­ manna. „Norðurland hefur um árabil verið vinsælasta svæði Íslendinga þegar kemur að vetrarferðum og bendir reynslan í sumar til þess að við munum fá töluverðan fjölda í styttri ferðir þar sem fólk kemur á skíði og til þess að njóta menningar, afþreyingar, veitinga og góðrar þjónustu.“ Þá bendir hún á að ferða þjónustufyrirtæki hafi í ríkum mæli aðlagað vöruframboð sitt í kjöl­ far breyttra aðstæðna, en rúmlega helmingur þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni hafði gert breytingar á vöruframboði. Helstu breytingar snúa að verði, tilboðum, minna framboði, hætt var með ákveðna vöru og framboðið almennt lagað að því sem höfðar meira til Íslendinga. Það átti bæði við um matseðla veitingastaða og afþreyingu. /MÞÞ Norðurland hefur um árabil verið vinsælasta svæði Íslendinga þegar kemur að vetrarferðum. Skíðaferðir eru ofarlega á blaði hjá mörgum. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Myndir / Markaðsstofa Norðurlands Gera má ráð fyrir að róðurinn verði þungur hjá ferðaþjónustunni á komandi vetri, enda sjást vart erlendir ferðamenn lengur. Hvítserkur mun áfram standa vaktina, ferðalöngum til ánægju. Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í ferðaþjónustunni varðandi veturinn er ákveðin bjartsýni ríkjandi í atvinnugreininni og telja forsvarsmenn flestra fyrirtækja að þau muni lifa COVID-19 ástandið af. Hér má sjá Goðafoss í vetrarbúningi. Nýr ræktunarleiðtogi íslenska hestsins Elsa Albertsdóttir hefur verið ráð­ inn til að taka við starfi Þorvaldar Kristjánssonar sem ræktunar­ leiðtogi íslenska hestsins. Elsa hefur verið í starfi hjá RML frá síðustu áramótum, þegar tölvudeild Bændasamtakanna kom yfir til RML, og hefur séð um keyrslur á kynbótaútreikningum og þróun þess ásamt því að vera kynbótadómari en hún hefur verið alþjóðlegur dómari í 13 ár. Elsa er doktor í erfða­ og kynbótafræði og hefur víðtæka reynslu af hestamennsku, svo sem við þjálfun, kennslu, sem kynbóta­, gæðinga­ og íþróttadómari, ásamt því að vinna beint við utanumhald á ræktunarstarfinu. Menntun Elsu og áralöng reynsla af störfum tengdri ræktun íslenska hestsins mun því nýtast vel í þessu starfi sem byggir á því að halda utan um ræktunarstarfið og ekki síst ráðgjöf og fræðslu til hestamanna og ræktenda. Dr. Elsa Albertsdóttir. Undirbúa kennslu á háskólastigi á Austurlandi: Mun efla samfélögin og atvinnulíf í fjórðungnum Samstarfssamningur um undir­ búning stofnunar háskóla útibús og kennslu á háskólastigi á Austur ­ landi hefur verið undirritaður. Markmið samningsins er að tryggja áframhaldandi upp byggingu þekk­ ingarsamfélags á Austurlandi og er ráðgert að fyrsta skrefið í þá veru verði frumgreinadeild sem taki til starfa haustið 2021. „Það eru sterkir grunnatvinnu­ vegir á Austurlandi í sjávarútvegi, áliðnaði og ýmsum verk­ og tækni­ greinum. Á þeim innviðum verður byggt í þessu verkefni sem vonir standa til að muni efla samfélög og atvinnulíf í fjórðungnum. Ég fagna samvinnu við sveitarfélögin á Austurlandi sem standa saman að þessu verkefni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta­ og menn­ ingarmálaráðherra, sem skrifaði undir samninginn. Horft til styrkleika atvinnulífsins Við skipulag háskólaútibúsins verður horft til þarfa og styrkleika atvinnu lífs á Austurlandi og í fram­ haldi af námi við frum greinadeild er fyrirhugað að boðið verði upp á grunnnám í hagnýtri iðnaðar­ tæknifræði til B.Sc. gráðu, þriggja og hálfs árs nám til alls 210 ECTS eininga. Sem stendur er ekki boðið upp á tæknifræðinám utan höfuð­ borgarsvæðisins. /MÞÞ Einar Már Sigurðarson, formaður Austurbrúar, Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirrituðu samninginn.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.