Bændablaðið - 24.09.2020, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202018
Bændablaðið tekur saman og birtir yfirlit um fjár- og
stóðréttir. Listinn er unninn með þeim hætti að leitað
er til sveitarfélaga og bænda um upplýsingar.
Rétt er að minna á að villur geta slæðst inn í listann
og eins getur veðrátta orðið til þess að breyta þarf tíma-
setningum á smalamennsku og þar með réttarhaldi. Því
er gott ráð að hafa samband við heimamenn á hverjum
stað til að staðfesta réttar dag- og tímasetningar.
Hér er yfirlit yfir þær réttir sem eftir standa þetta
haustið. /smh
Fjárréttir haustið 2020
Suðvesturland
Kjósarrétt í Kjós seinni réttir sun. 27. sept. kl. 15.00
Vesturland
Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 26. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. seinni réttir sun. 27. sept.
Brekkurétt í Saurbæ, Dal. seinni réttir sun. 4. okt. kl. 13.00
Fellsendarétt í Miðdölum, Dal. þriðja rétt sun. 27. sept. kl. 14.00
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. seinni réttir lau. 3. okt.
Fljótstungurétt á Hvítársíðu, Mýr. seinni réttir lau. 28. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. seinni réttir sun. 4. okt. kl. 16.00
Grafarrétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 26. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. önnur rétt mán. 28. sept., þriðja rétt mán. 5. okt.
Hellnarétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 26. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. önnur rétt sun. 27. sept., þriðja rétt mán. 5. okt.
Hólmarétt í Hörðudal, Dalabyggð seinni réttir sun. 27. sept. kl. 10.00
Hrafnkelsstaðarétt í Grundarfirði seinni réttir lau. 3. okt.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. seinni réttir lau. 26. sept.
Klofningsrétt í Beruvík, Snæf. laugardaginn 26. sept.
Langholtsrétt í Eyja- og Miklaholtshr. föstudaginn 25. sept. kl. 16
Mýrar í Grundarfirði seinni réttir lau. 3. okt.
Mýrdalsrétt í Hnappadal seinni réttir sun. 11. okt.
Núparétt í Melasveit, Borg. seinni réttir lau. 26. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. seinni réttir sun. 4. okt.
Ósrétt á Skógarströnd, Dal. föstudaginn 2. okt. kl. 10.00
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. seinni réttir sun. 4. okt.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. seinni réttir sun. 29. sept. kl. 14.00
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. seinni réttir sun. 4. okt. kl. 13.00
Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borg. seinni réttir sun. 4. okt.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mán. 28. sept., þriðja rétt mán. 5. okt.
Vörðufellsrétt á Skógarströnd, Dal. seinni réttir sun. 11. okt. kl. 13.00
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. þriðja rétt mán. 28. sept.
Ölkeldurétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 26. sept.
Vestfirðir
Innri-Múlarétt á Barðaströnd, V.-Barð. sunnudaginn 27. sept. kl. 14.00
Kirkjubólsrétt í Steingrímsfirði, Strand. seinni réttir sun. 4. okt.
Kirkjubólsrétt við Kirkjuból í Engidal í
Skutulsfirði laugardaginn 26. sept.
Miðhús í Kollafirði, Strand. seinni réttir sun. 4. okt.
Skeljavíkurrétt í Steingrímsfirði, Strand. seinni réttir lau. 26. sept.
Staðarrétt í Steingrímsfirði, Strand. seinni réttir sun. 4. okt.
Traðarrétt við Tröð í Bjarnardal í
Önundarfirði laugardaginn 26. sept. kl. 16.00
Norðvesturland
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. seinni réttir mán. 28. sept. kl. 13.00
Austurland
Ormarsstaðarétt í Fellum, Fljótsdalshéraði sunnudaginn 27. sept. kl. 13
Seyðisfjarðarrétt við Nátthaga þriðjudag. 6. okt. um kl. 15
Í landnámi Ingólfs Arnarsonar
Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 26. sept. kl. 13.00
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 26. sept. kl. 16.00
Árhólarétt í Unadal, Skag. föstudaginn 25. sept. um kl. 13.00
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 25. sept. um kl. 13.00
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. laugardaginn 3. okt.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 26. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 3. okt. kl. 13
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 3. okt. kl. 13
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 25. sept. um kl. 13.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 3. okt.
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 3. okt. kl. 10
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 26. sept.
Stóðréttir haustið 2020
Mikill áhugi er fyrir stóðréttum ekki síður en fjárréttum. Hér að neðan er listi yfir þær stóðréttir á landinu sem eftir
standa þetta haustið. Mynd / Bbl
Göngur. Mynd / Bbl
FRÉTTIR
Erlendir verknemendur við fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum
vinna að rannsóknum. Mynd / Háskólinn á Hólum
Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum:
Metfjöldi stundar nám
við deildina í vetur
Metfjöldi nemenda leggur nú
stund á nám við fiskeldis- og
fiskalíffræðideild Háskólans á
Hólum.
Aukningin er mest í diplóma-
námi í fiskeldi þar sem nemenda-
fjöldi tvöfaldaðist og er nú 31 nem-
andi innritaður, þar af 25 nýnemar.
Auk grunnnámsnema stundar 21
framhalds nemi nám við deildina, tíu
doktorsnemar og 11 meistaranem-
ar. Jafnframt eru 14 nemendur að
hefja meistaranám á námsbrautinni
MAR-BIO sem er sameiginleg náms-
braut með háskólunum á Akureyri,
Gautaborgarháskóla í Svíþjóð og
Nord í Bodö, Noregi. Þetta kemur
fram á vefsíðu Háskólans á Hólum.
Fimm útlendir nemar
Þar segir einnig að líklegt sé að
hluti þeirra nemenda muni kjósa að
koma eftir áramót sem skiptinemar
við Háskólann á Hólum. Þrátt fyrir
COVID hafa fimm nemendur komið
frá erlendum háskólum í verknám við
fiskeldis- og fiskalíffræðideild. Þeir
taka þátt í fjölbreyttu til raunastarfi
innan deildarinnar og njóta
leiðsagnar samstúdenta, nýdoktora
og fræðimanna hennar. /MÞÞ
Mývatnssveit, óánægja með verðlag í Krambúð:
Tímabundnir erfiðleikar
nýttir sem skálkaskjól
– sem rímar ekki við gildi Samkaupa, segir sveitarstjórn
„Allt samfélagið, ekki aðeins
Samkaup, eiga í harðri glímu um
þessar mundir og ljóst að komandi
vetur verður mörgum mjög þungur.
Því er mjög dapurlegt að verða vitni
að því að tímabundnir erfiðleikar
séu nýttir sem skálkaskjól í vegferð
sem hvorki rímar við stefnu eða gildi
Samkaupa,“ segir í bókun frá fundi
sveitarstjórnar Skútustaðahrepps.
Hún tekur heils hugar undir mót-
mæli íbúa hreppsins sem rituðu
nafn sitt á undirskriftalista sem
afhentur var forsvarsmönnum
Samkaupa nýverið.
Skorað á Samkaup
að endurskoða ákvörðun
Mikil óánægja er í Mývatnssveit
með þá ákvörðun Samkaupa að
breyta verslun sinni í Reykjahlíð
úr Kjörbúð í Krambúð. Ákvörðun
um nafnabreytingu á versluninni
hefur það í för með sér að vöruverð
hækkar umtalsvert. Alls skrifuðu
226 íbúar undir mótmælin sem
lætur nærri að sé um helmingur íbúa
sveitarfélagsins. Krefjast íbúar þess
að Samkaup breyti fyrirkomulagi
verslunarreksturs síns tafarlaust og
breyti versluninni á ný í Kjörbúð.
Forsendur ákvörðunarinnar voru
einnig gagnrýndar og þá m.a. í
ljósi þess að samfélagið í Skútu-
staðahreppi glímir nú við afleiðingar
kórónuveirufaraldurs sem kom þar
óvenju hart niður.
Sveitarstjórn hefur skorað á
stjórnendur Samkaupa að endur-
skoða ákvörðun sína, en þegar nafna-
breyting með tilheyrandi verðhækkun
tók gildi í júní kvað sveitarstjórn það
vera kalda tusku framan í samfélagið
í Skútustaðahreppi.
Skref í rétta átt
Sveitarstjórn segir þá viðleitni
Samkaupa sem tilkynntu um aðgengi
íbúa að netverslunarkerfi Samkaupa
vissulega skref í rétta átt. „Þó þarf að
tryggja að sú þjónusta mæti þörfum
íbúanna um sanngjarnt vöruverð
og aðgengi að öllu vöruframboði
verslananna, en í tilkynningunni
kom fram að ekki yrði hægt að versla
kæli- og frystivöru fyrst um sinn,“
segir í bókun sveitarstjórnar. „Verði
það ekki raunin mun sveitarstjórn
leita annarra leiða til að mæta
þörfum íbúa sveitarfélagsins.“
Einn sveitarstjórnarmanna bókaði
að hann vildi að kannað verði til
hlítar með möguleika á að fá annan
verslunaraðila inn á svæðið. /MÞÞ
Reykjahlíðarþorpið við Mývatn. Mynd / HKr.