Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202022
UTAN ÚR HEIMI
RAFGEYMAR
Græjurnar þurfa að komast í gang!
Rafgeymar í allar gerðir farartækja
Sendum um land allt
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • skorri.is
Honda og GM veðja bæði á rafhlöðuknúna- og vetnisknúna rafbíla:
GM og Honda í náið samstarf
í bílasmíði í Norður-Ameríku
– byggt á nýjum Ultium ofurrafhlöðum í rafbílum fyrirtækjanna
Bílaframleiðendurinir Genaral
Motors (GM) og Honda undir
rituðu þann 3. september sl.
samkomulag um vinnu sem miðar
að því að stíga stórt skref til mynd
unar öflugs bandalags þessara
fyrirtækja á NorðurAmeríku
markaði án þess að um fullan
samruna verði að ræða.
Samkomulagið miðar að
samvinnu í bílasmíði um undirvagna
og jafnvel vélbúnaði, bæði með
hefðbundnum sprengihreyflum og
fyrir orkumiðla sem leysi þá af hólmi.
Áætlað er að fyrsti hluti í samstarfi
GM-Honda verði á verkfræðisviðinu
og hefjist snemma árs 2021, að því er
fram kemur á vefsíðu cnet.com. Með
þessu samstarfi hyggjast fyrirtækin
ná fram miklum sparnaði í hönnun,
þróun og smíði ökutækja sem og í
sameiginlegum innkaupum.
Þessu tengt hafa verið uppi
vangaveltur um að japönsk yfirvöld
eygðu möguleika á sameiningu
Honda og Nissan. Forsvarsmenn
fyrirtækjanna hafa neitað að tjá sig
um hvort slíkt sé á döfinni.
Samstarf GM og Honda
ekki nýtt af nálinni
Þótt mörgum hafi þótt samvinna
GM og Honda fjarstæðukennd, þá
hafa þessi fyrirtæki átt samstarf í
bílaiðnaði í um tvo áratugi. Jókst
það samstarf á árinu 2018 varðandi
þróun á vetnisknúnum efnarafal sem
fyrirtækin hafa verið að vinna að í
sameiningu frá árinu 2013. Á árinu
2017 var kynntur til sögunnar af
Honda „Clarity Fuel Cell“ efnarafall.
Samanlagt lögðu fyrirtækin 85
milljónir dollara í verkefnið, en
hefja átti fjöldaframleiðslu á þessum
efnarafölum á yfirstandandi ári. Hafa
fyrirtækin einnig verið í samstarfi
við Bandaríkjaher um þróun á
vetnisrafölum.
Þá lagði Honda 750 milljón
dollara árið 2018 í sjálfkeyrandi
bílatækni GM sem byggir á tækni
„Cruise Automation“ sem GM keypti
árið 2016. Á 12 árum var áætlað að
Honda legði tvo milljarða dollara í
þetta verkefni.
Samvinna byggð á nýrri
rafhlöðutækni sem sögð er slá út
tækni sem Tesla notar
Fyrr á þessu ári gerðu fyrirtækin
tvö með sér samkomulag um
sameiginlega þróun á tveim nýjum
Honda EV rafbílum sem byggðir eru
á hugmyndum GM í samvinnu við
bandarísk fyrirtæki um nýja Ultium
rafhlöðutækni. Slíkar 800 volta
rafhlöður er hægt að hlaða mjög hratt
og hægt að hlaða raforku sem dugar
í 160 km á einungis 10 mínútum.
Eru slíkar rafhlöður sagðar mun
ódýrari í framleiðslu og gefi GM
mikið forskot á markaðnum, líka á
Tesla. Rafhlöðurnar eru að grunni til
hefðbundnar Lithium-ion rafhlöður
þar sem lykilhráefnin eru nikkel og
kóbalt. Í ultium rafhlöðunum er búið
að draga inn efnablöndu í rafskautin
sem inniheldur líka mangan, ál og
fleiri efni og er þessi efnablanda
nefnd NMCA. Þegar hefur verið
gefið út að slíkar rafhlöður verði
notaðar í litla almenningsvagna,
öflugan GMC Hummer jeppa og
Cadillac Lyriq. Er þessi tækni sögð
koma til með að verða leiðandi á
rafbílamarkaðnum. Þá er einnig
rætt um að GM og Honda innleiði
í bílana upplýsingakerfi sem nefnt
er „OnStar infotainment system“.
Með því að flytja sig yfir í raf-
og vetnistæknina hyggst GM
einfalda og straumlínulaga allt
framleiðslukerfið. Í dag framleiðir
fyrirtækið 555 mismunandi útgáfur
drifkerfa með sprengihreyflum.
Við umbreytingu yfir í rafbíla
veða aðeins 19 mismunandi gerðir
drifkerfa í bíla. Í þessu telja menn
að felist gríðarlegur fjárhagslegur
ávinningur.
Fleiri bílarisar í samstarf
Svipað samstarf er að eiga sér stað
með Ford og Volkswagen. Þá er
einnig öflugt og flókið samstarf
Nissan, Renault og Mitsubishi. Eins
hefur Toyota eignast hluti í bæði
Mazda og Subaru. /HKr.
Undirvagn í GM og væntanlega Honda líka er með Ultium rafhlöðum sem hægt er að hlaða mjög hratt og eiga að
skila bílum lengra á hleðslunni en gengur og gerist.
GM og Nikola í samstarf um pallbíla:
Nota bæði Ultium ofurrafhlöður
og vetnis-efnarafala frá GM
Bandaríski bílafram
leiðandinn GM er
sagður hafa tekið
stórt skref í byrjun
septembermánaðar
með samkomulagi
um samvinnu við
Honda og einnig að
taka upp samvinnu
við frumkvöðlafyr
irtækið Nikola sem
eitt sinn starfaði náið
með Elon Musk og
Tesla. Munu GM
og Nikola vinna að
því að koma hinum
raf og vetnisknúna
Badger pallbíl á
markað.
Badger bíllinn
er í raun rafbíll sem
fær sína orku líka
frá vetnis-efnarafal
sem byggður er á
tækni GM, að því er
fram kemur á vef-
síðu CNET hjá CBS
sams teypunni. Í raun
er verið að tala um
tvær týpur af Badger
bílnum, þ.e. Class 7 og
Class 8. Mun GM útvega efnarafala
í bíla Nikola á öllum þeim mörk-
uðum sem fyrirtækið hyggst selja
sína bíla.
Samkomulag GM við Nikola
mun felast í því að Nikola kemur
inn í GM með tvo milljarða dollara
í hlutafé og fær í staðinn aðgengi
að tæknilausnum GM. Líklegt er
talið að nýi Badger pallbíll Nikola
muni verða framleiddur í Detroit-
Hamtramck verksmiðju GM þar
sem endurfæddi GMC Hummer
EV er líka smíðaður. Ráðgert
er að hefja framleiðslu á Badger
bílum Nikola í verksmiðjum GM
á árinu 2022, en mögulega verður
hann kynntur á sýningu Nikola 3.
desember næstkomandi. Samkvæmt
fullyrðingum Niokola á hann að
skila 906 hestöflum.
Bæð Hummerinn og Badger bíll-
inn munu notast við nýju Ultium
rafhlöður GM sem eiga að skila
bílunum í það minnsta 650 km á
einni hleðslu. Aðeins mun taka um
10 mínútur að ná upp hleðslu til 150
km aksturs. Fyrir utan rafgeymana
verða bílarnir með efnarafala sem
ganga fyrir vetni. Nikola hafði áður
prófað slíka tvinnbíla sem skiluðu
nærri 1.000 km akstri á einni raf-
hleðslu (480 km) og einni tankfyll-
ingu af vetni (520 km). Með nýju
Ultium rafhlöðunum ætti drægnin
að geta orðið töluvert meiri. /HKr.
Nikola BADGER raf-vetnis-tvinnbíll sem fyrirhugað er að smíða í samstarfi
við GM. Ef fullyrðingar ganga eftir á hann að skila 906 hestöflum.
Nýr endurvakinn GMC Hummer EV rafbíll sem á að
skila 1.000 hestafla orku í gegnum tvo mótora fyrir
afturdrifið og einn fyrir framdrif.
Nýr Cadillac Lyriq rafmagnsbíll sem væntanlegur er frá GM.
Sjálfkeyrandi tilraunabíll frá GM sem Honda mun leggja gríðarlega fjármuni
í að þróa frekar.
Clarity Fuel Cell efnarafall frá Honda
sem er byggður ofan á rafmótor.
Lítið hefur verið gefið upp um hvernig vélbúnaður
í rafdrifnum Hummer líti út en hér er allavega ein
ágiskun.