Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 33
Bræðurnir Bjarni og Kolbeinn
Finns synir voru rétt ríflega tvítugir
þegar þeir stofnuðu Blómaval í
Sigtúni árið 1970 ásamt eiginkonum
sínum, Bryn dísi Jóhannesdóttur og
Hildi Baldurs dóttur. Þau unnu öll
að upp byggingu fyrirtækisins í tæp
30 ár en þá keypti Húsasmiðjan
reksturinn. Þeir segja að vinnan
hafi verið mikil en skemmtileg og
uppátækin mörg.
Sagan að baki því að þeir stofnuðu
Blómaval er að Jón H. Björnsson,
sem rak Alaska við Mikla torg, tók
gróðurhúsið við Sigtún á leigu af
Stefáni Árnasyni og rak þar blóma
verslun og störfuðu Bjarni og
Kolbeinn hjá honum. „Reksturinn
gekk ekki alveg sem skyldi og Stefán
spurði hvort við vildum ekki taka
við leigunni og við slógum til og
stofnuðum Blómaval, eins og það
væri ekkert mál. Við tókum gróður
húsið á leigu, sem var 700 fermetrar,
fyrstu þrjú árin en keyptum það svo
og hófum uppbyggingu á svæðinu.“
Kolbeinn, sem er menntaður
rafvirki, segir að einu kynni sín
af garðyrkju fyrir þann tíma hafi
verið þegar hann og Bjarni, sem er
skrúðgarðyrkjumeistari, tók að sér
að slá garða í eitt sumar.
Ódýrir aðventukransar
upphafið að jólaversluninni
„Við lögðum frá upphafi mikla
áherslu á markaðssetningu og að
auglýsa það sem var í boði og fyrstu
jólin kom fyrsta verðspengingin
þegar við auglýstum aðventukransa
á 195 krónur þegar þeir kostuðu 500
krónur hjá samkeppnisaðilunum.
Það héldu allir að við værum
gengnir af göflunum, en salan var
gríðarleg og það var upphafið að
allri jólaversluninni í Blómaval,
sem jókst ár frá ári,“ segja Bjarni
og Kolbeinn, „og önnur jólin fluttum
við inn okkar eigin jólatré til sölu.“
Grunnhugmyndin að baki
Blómavali er það sem erlendis
kallast „garden center“ en samt ekki
því að í upphafi áttunda áratugar
síðustu aldar var garðrækt hér á landi
ekki það langt á veg komin að hún
stæði undir slíkum rekstri og þurftu
þeir bræður því að leita annarra
leiða. „Til að byrja með var áherslan
mikil á blóm, bæði pottaplöntur,
afskorin blóm og skreytingar og
mun meira en á garðinn og vörur
tengdar honum. Smám saman varð
garðrækt almennari og við fórum að
leggja meiri áherslu á að þjónusta
garðeigendur og allt sem tilheyrir
honum.“
Sumarblómatíminn
mun styttri en í dag
„Við seldum sumarblóm fyrsta
sumarið en á þeim tíma var mark
aðurinn allur annar en hann er í dag.
Sölutíminn var ekki nema nokkrar
vikur og stóð frá mánaða mótum maí
og júní og fram undir 17. júní og eftir
það seldust varla nokkur sumarblóm
eða garðplöntur.“ Bjarni bætir við
að áratugurinn milli sjötíu og áttatíu
hafi verið frekar kaldur og að það
hafi að hluta haft letjandi áhrif á sölu
sumarblóma.
Nýjar leiðir í markaðssetningu
Rekstur Blómavals gekk vel frá
upphafi og fljótlega var farið að
stækka gróðurhúsið við Sigtún og
bæta við byggingum. Ein jólin fór
til dæmis starfsmannafjöldinn yfir
eitt hundrað og það segir sína sögu
um umfangið og aukninguna í veltu.
Bjarni segir að á öðrum árstím
um hafi þeir meðal annars flutt inn
blómaskreytingameistara og haldið
alls konar sýningar og námskeið
til að vekja athygli á versluninni.
Það voru alltaf í gangi tilboð og
Blómaval bauð yfirleitt mun lægra
verð en samkeppnisaðilarnir, það
skilaði ekki allt beinum hagnaði en
myndin sem varð til af Blómavali
var mjög jákvæð til lengri tíma litið.
„Það breyttist mikið hjá okkur
þegar við fórum í viðskipti með
blóm við Ártanga, sem er í eigu
Gunnars Þorgeirssonar, núverandi
formanns Bændasamtaka Íslands,
sem seldi mest af sínum blómum í
Blómavali fyrstu tuttugu árin sem
hann rak garðyrkjustöðina. Þetta
tryggði okkur góð blóm og skipti
okkur gríðarlegu máli.
Okkur hélst vel á starfsfólki og
sumt af kjarnastarfsfólki Blómavals
í dag byrjaði á meðan við vorum
með reksturinn.“
Heildsalan Brum
Árið 1983 stofna þeir Blómavals
bræður heildsöluna Brum og sá
Kolbeinn að mestu um rekstur
hennar. „Brum flutti inn mikið af
afskornum blómum og pottaplöntur,
potta og aðrar gróðurtengdar vörur.
Auk þess að selja vörurnar voru þær
seldar í blómabúðum um allt land og
við því í viðskiptum við samkeppn
isaðila okkar. Heildsalan gekk vel en
hún varð aldrei eins stór og Blómaval
en með fimm eða sex manns í vinnu,“
segir Kolbeinn.
Ofsaveðrið 1981
Í febrúar 1981 gekk ofsaveður yfir
landið. „Þá nótt fór gróðurhúsið nán
ast í rúst og 600 rúður sem brotn
uðu og ekkert hægt að gera annað
en að koma sér í skjól.“ Bjarni
segir að þá nótt hafi hann hringt í
Sölufélag garðyrkjumanna og keypt
allt gler sem þeir áttu á lager. „Það
skemmdist líka mikið innanhúss og
mikil vinna að taka til og koma öllu
í stand. Einhverra hluta vegna fylgdi
tjóninu svo mikill kraftur til að rífa
reksturinn upp aftur að árið var okkar
besta í rekstrinum.“
Kolbeinn segir að það hafi ekki
tekið nema sólarhring að opna húsið
aftur og að búðin hafi einungis verið
lokuð í einn dag. „Enda margir sem
komu til að hjálpa okkur. Bjarni fór
til Hollands fimm dögum seinna til
að kaupa inn vörur og við vorum því
fljótir að koma rekstrinum í samt lag
aftur.“
Húsasmiðjan kaupir Blómaval
Eftir þrjátíu ára rekstur, mikið at og
fá frí þótti bræðrunum komið nóg og
ákváðu að söðla um og selja rekstur
inn. „Okkur fannst nóg komið. Við
voru rétt tvítugir þegar við stofnuðum
fyrirtækið með eiginkonum okkar
og unnið mikið við uppbyggingu
þess og þótti einfaldlega tímabært
að selja þegar við fengum tilboð
frá Húsamiðjunni. Á þessum árum
tókst okkur að gera Blómaval að
heilsársverslun þar sem hvert sölu
tímabilið tók við af öðru og í raun
aldrei dauður tími og stanslaust at og
keyrsla. Það var því ekki eins erfitt
og ætla mætti að hætta rekstrinum og
snúa sér að öðru,“ segja þeir Bjarni
og Kolbeinn að lokum.
Kolbeinn og Bjarni Finnssynir, stofnendur Blómavals. Mynd / Hörður Kristjánsson
Blómaval við Sigtún seint á níunda áratug síðustu aldar. Mynd / Úr einkasafni
Á 15 ára afmæli Blómavals voru bílar fyrirtækisins skreyttir blómum og
keyrðu þannig um Reykjavík til að vekja athygli á fyrirtækinu. Mynd / Úr einakasfni
Bjarni á fyrstu sýningunni sem
Blómaval tók þátt í. Sýningin var
haldin í Laugardal í Reykjavík og
hvergi til sparað til að gera allt sem
glæsilegast að sögn þeirra bræðra.
Kolbeinn og Bjarni árið 1979.
Tuttugu metra löng kaka í tilefni af tuttugu ára afmæli Blómavals árið 1990.
Aparnir í Blómavali við Sigtúni höfðu mikið aðdráttarafl og sérstaklega fyrir yngri kynslóðina. Tvisvar kom það fyrir að ap arnir sluppu úr búri sínu og í bæði skiptin þurfti að elta þá uppi utandyra. Húsmóður í Teigahverfinu mun ekki hafa staðið á sama þegar hún leit út um eldhús gluggann og sá apa í trénu fyrir utan.
alltaf skemmtilegt