Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202036
LÍF&STARF
Gulrótabændurnir í Auðsholti létta sér lífið með vélvæddri pökkunaraðstöðu:
Reikna með 200 tonna uppskeru
– Góð tíð í ágúst gerði gæfumuninn í ræktuninni
Frá 1997 hafa hjónin Vignir
Jónsson og Ásdís Bjarnadóttir
í Auðsholti ræktað gulrætur á
bökkum Hvítár, rétt hjá Flúðum
í Hrunamannahreppi. Fyrst með
fram kúabúskap, en eftir að dætur
þeirra og makar þeirra tóku við
honum árið 2012 hafa þau einbeitt
sér að ræktuninni að mestu. Þau
framleiða um 200 tonn af gulrót
um, sem telst talsvert fyrir ofan
meðal gulrótarræktandann.
Elsti akurinn er hitaður með
heitu vatni úr borholu við bæinn.
„Við notum það land reyndar bæði
fyrir kartöflur og gulrætur,“ segir
Ásdís þegar blaðamaður hittir þau
hjón á akrinum með fullt kar af
nýuppteknum fallegum gulrótum.
„Við byrjuðum fyrir löngu síðan að
rækta kartöflur – öruggleg nálægt
40 árum. Þær fyrstu eru tilbúnar í
kringum mánaðamótin júní-júlí og
þá sendum við fyrstu sendingarnar af
þeim frá okkur. Svo upp úr miðjum
ágúst seljum við fyrstu gulræturnar,“
bætir hún við.
Ágúst gerði gæfumuninn
Vignir segir að þetta land sé alltaf
talsvert á undan þeim görðum sem
ekki séu upphitaðir og það komi sér
vel, því þegar búið er að taka þar
upp þá séu hin tilbúin. „Við setjum
dúka á alla akra til að auka hitann í
jarðveginum. Ef við hefðum ekki
gert það núna, hefði engin uppskera
orðið. Þannig var tíðin einfaldlega í
sumar, að það kólnaði gjarnan svo
mikið á næturnar og hitinn til dæmis
í júlí var ekkert sérstakur. En vegna
dúkanna hélst góður raki og þegar
sólin fór að skína náðist mjög góður
hiti undir þeim,“ segir Vignir.
„Ágúst hins vegar gerði gæfumun-
inn hér hjá okkur og reyndist vera
toppmánuður fyrir okkur,“ segir
Ásdís.
Hreinar og fínar gulrætur
Upptaka og pökkun stóð sem hæst
í Auðsholti þegar blaðamaður var
þar á ferð. Hjónin voru úti á akri, en
uppi í geymslu var unnið af krafti
við skolun, snyrtingu og pökkun –
meðal annarra dóttir þeirra og sonur
– í nýrri aðstöðu sem hefur gjörbylt
allri vinnslu og auðveldað. „Við
leggjum áherslu á að gulræturnar séu
hreinar og fínar í pakkningunum og
því tökum við þær upp og setjum
beint í vatn. Þannig festist moldin
ekki á þeim.
Við vélvæddum pökk unar-
aðstöðuna í fyrra og með því lengj-
um við lífdaga okkar,“ segir Ásdís
og brosir. „Nú markaðssetjum við
gulræturnar sem Hreppagulrætur,
en áður fyrr var allt unnið í höndum
og þá vorum við með vörumerkið
Flúðagulrætur. Við eigum það reyndar
enn en notum það fyrir þær gulrætur
sem er handpakkað,“ segir Vignir.
Hætta eða deyja
Sem fyrr segir vonast þau til að fá
um 200 tonn af gulrótum úr sínum
görðum og það telst vera meira en
meðal gulrótabóndinn ræktar. Þau
eru fremur ósátt við þá þróun sem
hefur orðið varðandi fjölda gulróta-
bænda, en þeim hefur farið fækkandi
á undanförnum árum. „Það hefur þró-
ast þannig að bændunum fækkar og
þeir sem fyrir eru hafa frekar verið að
stækka við sig,“ segir Ásdís. „Það er
eins með þessa tegund ræktunar og
virðist vera víðast hvar annars staðar;
nýliðunin er erfið. Það virðist ekki
vera mikill áhugi á að taka við svona
ræktun. Þeir sem fyrir eru virðast
smám saman annaðhvort hætta eða
deyja,“ bætir Vignir við.
Vignir bendir á að það þurfi ekki
að vera óyfirstíganleg fjárhagsleg
hindrun að taka við garðyrkjustöð
sem hefur verið í góðum rekstri.
„Það getur skipt sköpum að koma
sér vel við gamla bóndann sem þú vilt
kaupa af,“ segir hann. Þau segja bæði
hins vegar að það sé nánast ómögu-
legt fyrir fólk sem er á byrjunarreit
að taka við slíkum rekstri. „Það er
auðvitað mikil synd því það eru svo
miklir möguleikar í greininni. Sjáðu
til dæmis í gulrótunum, það er miklu
meiri sala í gulrótum núna en var hér
áður fyrr. Almenn neysla á gulrótum
hefur aukist talsvert og við íslensku
framleiðendurnir njótum góðs af því,“
segir Ásdís.
Lífrænir vaxtarsprotar
Þótt lítil sem engin nýliðun hafi átt sér
stað í hefðbundinni gulrótaræktun að
undanförnu má benda á að innan líf-
ræna ræktunargeirans hafa tveir vaxt-
arsprotar í slíkri ræktun litið dagsins
ljós á undanförnum misserum. Tvær
ungar konur eru þar í forsvari fyrir
tvær garðyrkjustöðvar; ein að Ósi í
Hörgársveit og hin í Breiðargerði í
Skagafirði. Þær skynjuðu að tæki-
færi væru í greininni og fóru leið
aðlögunarstyrkja að lífrænum fram-
leiðsluháttum.
Þau Vignir og Ásdís segja að þess-
ir vaxtarsprotar séu vafalaust angi af
þessari sömu heilsubylgju og þau hafa
notið góðs af og tengist betri meðvit-
und fólks um neyslu á hollustuvörum.
/smh Vignir á fallegum gulrótarakri í Auðsholti.
Ásdís með fullt kar af nýuppteknum gulrótum, sem settar eru beint í vatn
til að ekki festist á þeim moldin.
Ásdís Bjarnadóttir og Vignir Jónsson í geymslunni sem hefur tekið stakkaskiptum undanfarið ár. Nú er þar komin upp skilvirk pökkunarstöð, þar sem
gulræturnar eru þvegnar, snyrtar og þeim loks pakkað. Myndir / smh