Bændablaðið - 24.09.2020, Qupperneq 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 37
Af sérstökum ástæðum þá eigum við þessar lengdir á lager.
Litað bárujárn
Þykkt: 0,60 mm
Breidd: 1045 mm
Klæðir: 988 mm
3.600 kr m² m/vsk.
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
STRÚKTÚR ehf - Stangarhyl 7 - 110 Reykjavík - struktur@struktur.is - sími: 588 6640
Ef keypt er 30 - 100 m²
20% afsláttur
2.880 kr m² m/vsk
Ef keypt er 101 - 1000 m²
30% afsláttur
2.520 kr m² m/vsk
Ef allt er keypt
50% afsláttur
1.800 kr m² m/vsk
RAL 5009
Lengd: 3.300 mm 71 stk
Lengd: 4.800 mm 151 stk
RAL 8012
Lengd: 6.700 mm 148 stk
Lengd: 5.900 mm 41 stk
Lengd: 6.940 mm 24 stk
UTAN ÚR HEIMI
Rannsókn Sterling-háskóla í Skotlandi á loftmengun á akvegum í útgöngubanni vegna COVID-19:
Ekki dró úr hættulegustu rykögnunum við
nær algjöra stöðvun umferðar í Skotlandi
– Gæti jafnvel verið hættulegra að vera heima hjá sér, segir stjórnandi rannsóknarinnar
Útgöngubann vegna COVID-19 og
stöðvun bílaumferðar dró ekki úr
hættulegustu loftmenguninni sem
fer illa í lungu fólks í Skotlandi,
samkvæmt rannsókn Sterling-
háskóla. Hins vegar dró úr losun
köfnunarefnisdíoxíðs.
Rannsókn stofnunar fyrir
félagslega markaðssetningu og
heilsu við Sterling-háskóla í
Skotlandi var kynnt á heimasíðu
skólans þann 8. september
síðastliðinn. Þar kemur fram að
ekki dró úr fínustu og hættulegustu
mengunarögnunum í andrúmsloftinu
þrátt fyrir nær algjöra stöðvun
bílaumferðar. Segir í niðurstöðum
rannsóknarinnar að í raun geti fólk
verið í meiri hættu innandyra heima
hjá sér heldur en á umferðargötum.
Þó er líka tekið fram að dregið hafi
úr losun köfnunarefnisdíoxíðs vegna
minni bílaumferðar.
Rannsókninni var stýrt af dr.
Ruaraidh Dobson, sem sagði að
yfirleitt hafi verið gengið út frá því
að færri bílar á götunum þýddi að
það myndi draga úr loftmengun
utandyra í Skotlandi. Um leið myndi
draga úr sjúkdómstilfellum sem
tengjast mengun.
Jafnvel hættulegra að vera
heima en úti i umferðinni
„Hins vegar sýnir rannsókn okkar,
þvert á rannsóknir sem gerðar hafa
verið á stöðum eins og Wuhan i
Kína og í Mílanó, að engar sannanir
fundust fyrir því að dregið hafi úr
mengun fínna agna í andrúmsloftinu
í Skotlandi í útgöngubanninu,“ sagði
Dobson.
Ökutæki ekki eins afgerandi
skaðvaldur og talið var
„Þetta gefur til kynna að ökutæki séu
ekki eins afgerandi skaðvaldur hvað
varðar hættulegustu loftmengunina í
Skotlandi. Fólk gæti því verið í meiri
hættu vegna lélegra loftgæða inni á
sínum eigin heimilum. Sérstaklega
við eldamennsku og þegar reykt er
á illa loftræstum stöðum.“
Ekkert er þó minnst á hina
vinsælu iðju í frítímum fólks að
grilla mat yfir opnum eldi sem
oft skapar mikla reykmengun og
m.a. losun koldíoxíðs sem menn
anda oft að sér í miklu magni við
eldamennskuna.
Samanburður gerður við
loftmengun 2017, 2018 og 2019
Í rannsókninni er verið að tala
um agnir sem eru flokkaðar sem
PM2.5. Dr. Dobson og félagi hans,
dr. Sean Semple, rannsökuðu loft-
mælingagögn af 70 stöðum vítt
og breitt í Skotlandi í 31 dag á
tímabilinu 24. mars, eða degi eftir
nær algjöra stöðvun samfélags-
ins í Bretlandi, og til 23. apríl.
Þessi gögn báru þeir saman við
gögn yfir jafn marga daga á sama
tímabili á árunum 2017, 2018 og
2019.
Nær óbreytt magn
hættulegustu loftagnanna
Í niðurstöðum rannsóknarinnar
2020 kom fram að þéttleiki PM2.5.
agna í andrúmsloftinu var 6,6
míkrógrömm á rúmmetra (µg/m3)
eða svipað og í mælingum frá 2017
þegar þær mældust vera 6.7 µg/m3
og í mælingum 2018 þegar þær
voru 7.4 µg/m3 á sama tímabili. Þá
var líka skoðaður mengunar toppur
sem varð 2019 þegar smæstu
agnirnar mældust vera 12.8 µg/
m3. Sá mengunartoppur var hins
vegar rakinn til mikils svifryks frá
Sahara-eyðimörkinni sem skerti
loftgæðin í Bretlandi í apríl 2019.
Ef sá þáttur er dreginn frá mæli-
niðurstöðum þá var mengunin í
apríl 2019 „ekki nema“ 7.8 µg/m3.
Rannsakendur telja nauðsyn-
legt að bera saman mengun utan-
húss við mengun í híbýlum manna
í þessu COVID-19 ástandi. Það sé
mikilvægt til að meta hvort aukin
innanhússmengun geti mögulega
haft áhrif til aukinnar dánartíðni.
/HKr.
Dr Ruaraidh Dobson, sem stýrði
rannsókninni á svifrykinu á skoskum
vegum.
Þjóðvegur í Skotlandi, nær engin umferð vegna lokunar út af COVID-19. Samt dró ekki úr minnstu og hættulegustu
rykögnunum í loftinu. Mynd / Úr skýrslu Stirling-háskóla
Bænda 56-30-300Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið:
Jarðræktarstyrkir og landgreiðslur
Opnað hefur verið fyrir rafrænar
umsóknir um jarðræktarstyrki
og landgreiðslur vegna fram-
kvæmda á yfirstandandi ári í
Afurð, greiðslukerfi landbúnað-
arins, afurd.is Umsóknum skal
skilað eigi síðar en 1. október næst-
komandi.
Framleiðendur sem uppfylla
skilyrði 3. greinar reglugerðar um
almennan stuðning við landbúnað
nr. 1260/2018 geta sótt um jarðrækt-
arstyrk og landgreiðslur. Skilyrði
og forsenda fyrir veitingu stuðnings
eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi
í Jörð.
Jarðræktarstyrkir
Framlögum til jarðræktarstyrks skal
varið til jarðræktar, það er að segja
nýræktar og endurræktunar á túnum,
kornræktar og ræktunar annarra fóð-
urjurta. Uppskera er forsenda fyrir
jarðræktarstyrk. Beit búpenings telst
vera uppskera og nýting kornhálms
til uppræktunar jarðvegs í útiræktun
grænmetis telst styrkhæf.
Ekki telst styrkhæf ræktun ef
kornrækt er eingöngu ætluð til að
draga að gæsir til skotveiði, nema ef
kornhálmur er sannarlega hirtur eða
plægður niður. Önnur ræktun sem
ekki er nytjuð til búskapar, þar með
talin sáning í golfvelli, tjaldstæði
og svo framvegis er ekki styrkhæf.
Sækja þarf nú um jarðræktarstyrki
vegna útiræktaðs grænmetis á
sérstökum umsóknum þar sem
fjármagn vegna þess er hluti af
endurskoðuðum samstarfssamningi
um garðyrkju, og er umsóknarfrestur
til 23. október 2020. Auglýst verður
hvenær opnað verður fyrir þær
umsóknir í Afurð.
Landgreiðslur
Framlögum til landgreiðslna skal
ráðstafa á ræktað land sem uppskorið
er til fóðuröflunar og framleiðanda
er heimilt að nýta. Framlög eru ekki
greidd út á land sem eingöngu er nýtt
til beitar. /VH
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið:
Breyting á lögum um einnota
drykkjarvöruumbúðir
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
óskar eftir umsögnum um drög að
frumvarpi til breytinga á lögum um
ráðstafanir gegn umhverfismengun
af völdum einnota umbúða fyrir
drykkjarvörur, sem sett hafa
verið til kynningar í samráðsgátt
stjórnvalda.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
vegna frumvarpsins segir að því
sé ætlað að fylgja eftir hluta þeirra
tillagna sem fram koma í skýrslu
starfshóps um drykkjarvöruumbúðir
frá júlí 2018, auk þess sem lagðar
eru til nauðsynlegar breytingar á
skilagjaldi og umsýsluþóknun.
Meðal tillagna er að
markmiðsákvæði sé bætt við lögin,
að skilakerfið nái til fleiri aðila en
verið hefur og heimild ráðherra til
að setja ákvæði um söfnunarmarkmið
og stærð umbúða í reglugerð.
A t h u g a s e m d i r v i ð
frumvarpsdrögin þurfa að berast eigi
síðar en 3. október næstkomandi.
/VH
STJÓRNARRÁÐ&STOFNANIR