Bændablaðið - 24.09.2020, Qupperneq 39

Bændablaðið - 24.09.2020, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 39 LÍF&STARF LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA Það kann að vera að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um möguleika aukinnar skóg ræktar sem lið í að takast á við loftslags- breytingar, en það er reyndar talsverð þróun í þeim efnum um heim allan sem og hér á landi, sem vert er að segja frá. Svo veitir e.t.v. ekki af að rifja eitt og annað upp af og til. Meðal þess sem nokkuð hefur borið á eru skoðanaskipti um ágæti mismunandi aðferða við að binda kolefni. Þar höldum við skógrækt­ armenn skógrækt að sjálfsögðu fram sem góðum kosti. Aðrir halda fram land græðsluaðgerðum án trjáa eða endur heimt votlendis, enn aðrir niðurdælingu CO2 í djúpar borhol­ ur eða jafnvel að dreifa áburði yfir hafið. Fólk er þó almennt sammála um að binding á CO2 úr andrúms­ loftinu sé nauðsynlegur liður í bæði viðbrögðum við og aðlögun að lofts­ lagsbreytingum ekki síður en að draga úr losun, breyta neysluvenjum og aðlaga landbúnað að nýjum skil­ yrðum. Án bindingar mun kolefn­ ishlutleysi ekki nást fyrir árið 2050, hvað þá 2040. Stundum eru menn kappsamir í að verja sinn málstað. Það er af hinu góða því það sýnir að mönnum er alvara, enda skiptir mjög miklu máli að ná árangri í að stemma stigu við hraðfara loftslagsbreytingum. Margir halda því fram að loftslagsbreytingar séu brýnustu úrlausnaratriði sem mannkynið hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir. Mismunandi aðferðir við að binda CO2 úr andrúmsloftinu eða draga úr losun eru byggðar á mis­ munandi forsendum og erfitt getur verið að bera þær saman. Engu að síður ber okkur að meta árangur og skilvirkni hverrar þeirra svo hægt sé að taka skynsamar ákvarðanir og móta áherslur. Til þess þarf að stunda rannsóknir, safna mýgrút af mæligögnum og vinna úr þeim. Þar eru mis­ munandi aðgerðaflokkar komnir mislangt. Því byggist samanburður oft á ónógum upp­ lýsingum og jafnvel misskilningi. Ef t.d. er verið að bera sam­ an skógrækt og endurheimt vot lendis er annars vegar um bindingu CO2 úr andrúmsloft­ inu að ræða og hins vegar um að ræða samdrátt í losun. Það eitt og sér er illa saman­ burðarhæft þó mæla megi hvort tveggja í tonnum CO2 á hektara. Í því felst líka ákveðinn misskilningur að miða helst við þann samanburð, því í raun er oftast allt annað en mögulegur loftslagsávinningur sem ræður því hvort skynsamlegra sé að velja skóg­ rækt eða endurheimt votlendis sem loftslagsaðgerð á tilteknum stað. Skógrækt krefst þess að einhver sé á staðnum til að gróðursetja, girða og halda girðingum við. Hún hentar því ágætlega í og nálægt byggð en verr á svæðum þar sem aðgengi er erfitt eða ómögulegt er að friða land fyrir beit. Endurheimt votlendis hentar að sama skapi illa á svæðum þar sem ræktun, beitarnytjar eða annað á nærliggj­ andi landi gæti skaðast við hækk­ aða vatnsstöðu eða þar sem framræst land er orðið skógi eða kjarri vaxið og því líklegt til að binda nú þegar meira en það losar. Hún hentar hins vegar ágætlega á eyðijörðum eða þar s e m önnur land­ notkun skaðast ekki þótt land blotni. Í metingnum um hver sé besta loftslagsaðgerðin er margt sagt sem ekki stenst nánari skoðun eða er byggt á hæpnum forsendum. Er sú samfélagsumræða dæmi um hvernig loftslagsmálin hafa verið leidd út um holt og móa, stundum af ásettu ráði af aðil um sem hugsa helst um s k a m m ­ tímahags­ m u n i , s k i l j a ekki ógn­ ina eða vilja bara engar breyt ingar. Á meðan fólk er að rífast um hlutina verður engin samstaða um lausnir. En hvaða hagsmunir geta verið mikilvægari en framtíð barna okkar og barna­ barna? Við verðum að koma okkur að verki og hætta að afvegaleiða umræðuna með bölvuðu kjaftæði. Í næstu tölublöðum Bænda blaðs­ ins verður röð greina um skógrækt og loftslagsmálin. Við vonum að þær verði bæði fræðandi og gagn­ legar. Þröstur Eysteinsson Skógræktarstjóri Skógrækt og loftslagsmálin – Inngangur Tungnaréttir í Biskupstungum í Bláskógabyggð fóru fram laugar- daginn 12. sept emb er í blíðskap- arveðri. Réttar stemningin var óvenjuleg í ár því aðeins máttu 200 manns vera í réttunum í einu vegna COVID-19. Það voru því aðeins bændur og búalið sem sáu um að draga það fimm þúsund fjár sem var í réttun­ um í dilka sína. Allt gekk eins og smurð vél enda tóku réttarstörfin ekki nema tæplega tvær klukku­ stundir. Á eftir tóku bændur og þeirra fólk við að syngja nokkra réttaslagara áður en féð var rekið eða keyrt heim á bæina. Magnús Hlynur Hreiðarsson fékk leyfi til að mynda í réttunum. Hjón frá Úthlíð og Heiði áttu góða stund saman í réttunum en þetta eru þau, talið frá vinstri, Inga Margrét Skúladóttir og Ólafur Björnsson frá Úthlíð og Guðmundur Bjarnar Sigurðsson og Guðríður Egilsdóttir frá Heiði. Öll eru þau þó búsett á Selfossi. Þessi Landrover vakti athygli í réttunum en hann var notaður sem kaffi- og nestisbíll fyrir fólkið á Vatnsleysu en bíllinn á lögheimili þar, ættaður úr Víðidalstungu í Vestur-Húnavatnssýslu. Þrír af bræðrunum frá Kjóastöðum að syngja í réttunum en systkinin eru sextán. Mörg þeirra mættu í réttirnar. Líf og fjör í Tungnaréttum Brynjar Sigurðsson á Heiði stjórnaði söngnum af röggsemi og gaf tóninn áður en byrjað var á lögunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.