Bændablaðið - 24.09.2020, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 41
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna (FAO)
lýsti nýlega yfir miklum áhyggj-
um af afleiðingum COVID-19 á
fjölskyldu bú í heiminum sem mörg
hver eru í slæmri stöðu í kjölfar
faraldursins. Nú er áratugur fjöl-
skyldubúskapar hjá Sameinuðu
þjóðunum sem gefið hefur út alhliða
umgjörð sem lönd geta farið eftir í
sínum þjóðaráætlunum til að styðja
við þess háttar búskap.
Með því að grípa til aðgerða með
bændum getur það, að mati stofnunar
innar, samtímis dregið úr áhrifum af
alheimsfaraldrinum og lagt sitt af
mörkum fyrir Dagskrá sjálfbærrar
þróunar 2030 hjá stofnuninni.
Fjölskyldubúskapur, sérstak lega á
smærri búum, er mjög berskjaldaður
fyrir áhrifum af heimsfaraldrinum
COVID19. Tíma bundnar takmark
anir í mörgum löndum hindra leið
þeirra inn á markaði og viðkvæm
ar vörur þeirra ásamt dýrum verða
fyrir mestum áhrifum af því að fá
neitun frá mörkuðum og sláturhús
um. Einnig getur verið grafið undan
aðgangi þeirra að mörkuðum vegna
breytinga á neysluhegðun fólks, lok
unar á bændamörkuðum og öðrum
viðskiptaleiðum eins og skólum og
við önnur tækifæri í innkaupum.
Bændur á fjölskyldubúum sem skortir
geymsluaðstöðu eiga á mikilli hættu
að glata framleiðslu sinni.
Geta sigrast á áskorununum
Inngrip til að takast á við núverandi
neyðarástand verður að tryggja lífs
viðurværi fjölskyldna í dreifbýli
á sama tíma og haldið er áfram
framleiðslu bænda þó að aðgangur
þeirra að mörkuðum raskist. Því
er, að mati Matvæla og landbún
aðarstofnunarinnar, nauðsynlegt,
um leið og heilsu bænda og öryggi
framleiðsluvara þeirra er varðveitt,
að fara í mótvægisaðgerðir sem
stuðla að félagslegri tryggingu þar
sem þörf er á ásamt því að tryggja
aðgang að grunnvörum og aðföngum.
Á sama tíma þarf að tryggja aðgang
að mörkuðum, ásamt því að flutningi
og dreifingu sé haldið gangandi á ör
uggan hátt þannig að fjölskyldubú
geti haldið áfram að afhenda fersk
matvæli til sinna samfélaga og svæð
isbundinna matvælakerfa og þannig
leikið sitt hlutverk í að endurnýja hið
staðbundna hagkerfi í átt til meira
jafnvægisástands.
Ákall til þjóða
Stofnunin sendir nú út ákall til þjóða
til að draga úr áhrifum heimsfar
aldursins á matvælakerfi, hnattræn
og sértæk inngrip landa verði að
gera samtímis með ólíkum mæli
kvörðum á hverjum stað. Ráðstafanir
sem ætlað er að vernda og endurað
laga hnattrænar fæðu öflunarkeðjur
verði að bæta við samhengisbundnar
lausnir til að nýta þær svæðisbundnu
auðlindir sem til eru og vörur.
Fjölskyldubú eru í sérstaklega góðri
stöðu til að veita alhliða lausnir. Þau,
ásamt samökum þeirra og samvinnu
félögum, eiga rætur á sínum svæðum,
þau eru vel tengd inn í nærumhverfi
sitt og þekkja vel framleiðsluskilyrði
sín. Með því að starfa með þeim geta
stjórnvöld sigrast á margvíslegum
áskorunum og náð markmiðum sem
snúa að hagkerfum, félagslegum
þáttum og umhverfisvíddum sjálf
bærrar þróunar. Með tafarlausum
inngripum sem snúa að núverandi
neyðarástandi, geta lönd tekist á við
þessi tækifæri til að ná varanlegum
lausnum og stuðla að umbreytingu í
áttina að sjálfbærari matvælakerfum.
/ehg- FAO
Með undirskriftasöfnun krefst
Stjórnar skrárfélagið, að Alþingi
lögfesti nýja stjórnarskrá, sem
félagið segir samþykkta í þjóðar-
atkvæðagreiðslu 2012. Það er ekki
rétt. „Kosið“ var um breytingar á
stjórnarskrá og ekki um nýja stórn-
arskrá. Þar fyrir utan var krossað
við á pappírum, sem voru bornir
í hús líkt og markpóstur. Fram-
kvæmdin líkari skoðanakönnun en
kosningu. Ekki trúi ég að þjóðar-
atkvæðagreiðslur séu þannig í nýju
stjórnarskránni.
Ég tók þátt í krossaprófinu
og merkti við það sem sneri
að auðlindunum, eins og 90%
þjóðarinnar gerði. Svo var annað,
sem ég skildi ekki nógu vel til að
geta krossað við það. Auk þess treysti
ég ekki Jóhönnu og Steingrími, sem
með einbeittum vilja vildu ganga í
ESB strax eftir myndun stjórnar.
Svo virtist sem stjórnarskráin hefði
hindrað það.
Eftir skoðanakönnunina héldu
stjórnvöld þvi fram að ný stjórnarskrá
hefði verið samþykkt í kosningum.
Til þess að geta haldið því fram hefði
þurft að spyrja um allan pakkann í
heild sinni en ekki um stök atriði.
Niðurstaðan var skýr. Þjóðin vildi
fá kvótann til baka.
Á þessum tíma var makríllinn
farinn að koma hingað og var utan
kvóta. Með 90% úr krossaprófinu
fengu þau Jóhanna og Steingrímur
margfalt umboð til breytinga á
kvótakerfinu, eins og VG og SF
lofuðu fyrir kosningarnar. Þau hefðu
getað boðið út makrílkvótann og sett
allan kvótafisk á markað. Þá hefði
komið verð á kvótann og ekki þurft
að rífast um verð á rækju í dag eða
um hvað útgerðir hefðu selt karfann
á fyrir 10 árum. Í stað þess að gera
það voru stjórnvöld föst í því fari að
ný stjórnarskrá hefði verið samþykkt
í löglegum kosningum. Þessi vitlausa
afstaða hefur ekkert gert annað en
að festa kvótann í sessi. Nú ætlar
nýja Stjórnarskrárfélagið að hjakka
áfram í sama farinu. Það mun tefja
breytingar og er kvótakóngum um
land allt skemmt.
Ásetningur nýja Stjórnarskrár
félagsins um að endurheimta
auðlindirnar er góður. Vænlegra
til árangurs væri að breyta
núverandi undirskriftasöfnun í
undirskriftasöfnun um að ná kvótanum
til baka. Stjórnarskrárfélagið ætti að
einbeita sér að því og svo að öðrum
auðlindum, sneið fyrir sneið. Líkt og
EES hefur sneitt af fullveldi Íslands
með orkupökkunum.
Merkilegt hversu margir þeirra
sem vilja nýja stjórnarskrá vilja líka
ganga í ESB. Með inngöngu í ESB
verður stjórnarskrá ESB rétthærri
okkar stjórnarskrá.
Jóhanna reyndi að standa við
loforð sitt um inngöngu í ESB.
Steingrímur lofaði kvöldið fyrir
kosningar að ganga ekki í ESB en
sveik það strax daginn eftir. Þrátt fyrir
þau svik treystir Alþingi Steingrími
í embætti forseta þingsins og er því
skiljanlegt að traust til Alþingis fari
þverrandi.
Sigurður Oddsson
Gabion grjóthleðslu körfur
Nokkrar stærðir til á lager
GABION KÖRFUR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Hönnun: ARTPRO
Hýsi-Merkúr hf. | Lambhagavegi 6 | 113 Reykjavík | S. 534 6050 | merkur@merkur.is | www.merkur.is
Rafstöðvar
MARGAR GERÐIR
TIL Á LAGER
- Þekking - Reynsla - Færni.
- Meðal þeirra sem hafa varaaflsstövar frá okkur eru;
Neyðarlínan, flugvellir, sjúkrahús, rafveitur, vatnsveitur,
hitaveitur, flugfélög, bankar, Tollstjóri, Alþingi, hótel,
veitingahús, mörg stærri fjölbýlishús með lyftum.
Margskonar fyrirtæki í matvælaframleiðslu, heildsölu og
iðnaði sem þola illa rafmagnsleysi.
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
LESENDABÁS
Stjórnarskráin
Sigurður Oddsson.
UTAN ÚR HEIMI
Fjölskyldubúskapur á undir högg að sækja