Bændablaðið - 24.09.2020, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 43
safni greinum kaniltrjáa og geri sér
hreiður úr þeim hátt í trjám eða klett-
um. Hann segir einnig að menn skjóti
örvum í hreiðrin og dragi þau niður
til að komast yfir kanilinn.
Sé mark takandi á Grikkjanum
Heródótus frá Halíkarnassus, uppi
484 til 425 f. Kr., sem kallaður er
faðir sagnfræðinnar, þá vissi enginn
hvar kanill óx eða var ræktaður
en Heródótus vissi að kanilsins
var gætt af stórum fuglum og að
söfnun hans fór fram með furðu-
legum hætti. Í íslenskri þýðingu
Stefáns Steinssonar á Rannsóknum
Heródótusar segir um uppruna og
söfnun kanils: „Hvaðan hann kemur
og í hvaða landi hann er ræktaður
kunna menn ekki skil á. Þó virðist í
orði kveðnu svo sem hann blómgist,
segja einhverjir, á lendum þar sem
Díonýsus óx úr grasi. Stórir og
miklir fuglar eru sagðir bera með
sér stöngla þá sem við lærðum af
Föníkum að kalla kanil. Fuglarnir
bera þá upp í hreiður sem er kleprað
með leðju utan á þverhnípta kletta.
Þeir eru öldungis ókleifir mönnum.
Við þessu eiga arabar kænskubragð.
Þeir bryðja dauða uxa, asna og
fleiri burðardýr í gróf spað, flytja
á vettvang og leggja nærri klettun-
um. Sjálfir færa þeir sig langt frá.
Fuglarnir fljúga ofan og færa kjötið
upp í hreiðrin. Þau valda ekki því-
líkum þunga og falla til jarðar. Í því
koma arabarnir og tína þau. Þannig
er kanil safnað og hefur flust með
þeim til annarra landa.“
Hiatus
Rómverski rithöfundurinn Pliny
eldri, uppi 23 til 79 e. Kr., dregur
lýsingu Heródótusar í efa og segir
hana uppspuna araba til að halda
verði kanils háu. Hann segir að
kanill sé ræktaður í Eþíópíu og
fluttur sjóleiðina um Rauðahaf til
Egyptalands og að það megi finna
kanililminn af fragtbátunum löngu
áður en þeir koma til hafnar. Að hans
sögn kostaði eitt rómverskt pund,
eða 327 grömm, af kanil 1500 denarí
eða rómverska silfurpeninga sem
voru viðurkennd mynt á hans tíma.
Upphæðin jafngilti ríflega fjögurra
ára launum dagverkamanns. Sagan
segir að Neró keisari, uppi 37 til
68 e.Kr., hafi brennt jafngildi
ársnotkunar íbúa Rómaborgar af
kanil við útför eiginkonu sinnar,
Poppaeu Sabína, árið 65. Sabína lést
35 ára að aldri og var Neró þriðji
eiginmaður hennar. Pliny sagði
að kanill hafi verið notaður til að
bragðbæta vín.
Diocletian, uppi 244 til 311 og
Rómarkeisari frá 286 til 305, reyndi
að hemja verðbólgu í ríki sínu og
halda verðlagi stöðugu. Hann sendi
frá sér rit sem kallast Edictum
de Pretiis Rerum Venalium eða
Siðfræði verðlagningar á vöru. Ritið
hefur ekki varðveist í heild en að
því sem varðveist hefur má lesa að
keisarinn taldi eðlilegt verð á einu
rómversku pundi af kanil vera 125
denaríur en þá aflaði verkamaður
sér um 25 silfurpeninga í laun á dag.
Uppruni kanils var lengi óþekkt-
ur á Vesturlöndum því austurlenskir
kaupmenn gættu leyndamálsins um
uppruna hans eins og sjáaldur augna
sinna enda byggt hátt verð kanils
á leyndadómsfullum og óræðum
uppruna hans.
Franski riddarinn Sieur de
Joinville, af Champagne, uppi 1224
til 1317, var í fylgdarliði krossferð-
ar Lúðvíks IX Frakklandskonungs
til Egyptalands 1248. Eftir heim-
komuna stóð Joinville á því föstum
fótum að hann hefði fyrir satt að
kanill væri veiddur í net við upptök
Nílarfljóts.
Uppruninn skýrist
Persneski læknirinn, stjörnu-
fræðingurinn og rithöfundurinn Abu
Yahya Zakariya' ibn Muhammad
al-Qazwin, uppi 1203 til 1283, var
fyrstur til að benda á í riti árið 1270
að kanill væri ræktaður á Srí Lanka.
Rúmum tveimur áratugum síðar
segir Ítalinn John frá Montecorvino,
uppi 1247 til 1328, það sama í bréfi.
Um aldamótin 1500 sigldi
Portúgalinn Ferdinnad Magallan,
uppi 1480 til 1521, fyrir hönd
Spánverja í leit að kryddi til
Filippseyja og fann plöntu af ætt-
kvísl kanils sem seinna fékk latínu-
heitið C. mindanaense og var um
tíma verðmæt verslunarvara fyrir
Portúgala.
Hollendingar náðu fótfestu á
Srí Lanka árið 1638 og tveimur
árum síðar hafði Hollenska
Austurindíafélagið tögl og hagldir
á ræktun og verslun með kanil á
eyjunni. Samkvæmt lýsingu eins
hollensks skipstjóra óx svo mikið
af kanil á eyjunni að það mátti finna
lyktina af því margar sjómílur frá
landi, stæði vindur af eyjunni.
Árið 1658 komust Hollendingar
til valda á Srí Lanka og tóku yfir
kryddverslunina þar.
Árið 1767 hóf Brown lávarður hjá
breska Austur Indíafélaginu ræktun
og verslun með kanil á Srí Lanka og
á nokkrum árum varð félagið stærsti
ræktandi og höndlari kanils í heimi.
Bretar náðu undirtökum á eyjunni
1796 og boluðu Hollendingum frá
völdum.
Nafnaspeki
Latneska ættkvíslarheitið Cinna-
momum er komið úr grísku
κιννάμωμον sem er borið fram
kinnámōmon og síðar kínnamon sem
aftur er upprunnið í hebresku ןומניק
og borið fram qinamon og gamalt
heiti plöntunnar. Tegundarheitið
verum þýðir sannur en cassia mun
komið úr hebresku q'tsīʿāh, og þýðir
að rífa börkinn af eða að afbarka tré.
Enska heitið Cinnamon er dregið
af latneska heitin Cinnamomum en
á ensku þekkjast einnig heitin canel
og canell sem líkjast frönsku heitun-
um canelo og cannalle sem dregin
eru af latneska orðinu cannella sem
þýður göng eða rör og vísar til þess
hvernig börkurinn vindur upp á sig
þegar hann þornar.
Arabar segja darchini, Kínverjar
kenel kui og á Mandarín rou gui.
Þjóðverjar kalla kryddið zimmet eða
zimt og Norðmenn kaneel eða kanil.
Í íslensku þekkjast heitinn kanill og
kanel.
Nef Guðs
Kanill kemur talsvert við sögu í
Gamla testamentinu og ekki annað
að sjá en að ilmur þess sé Guði
þóknanlegur. Í annarri Mósebók
30:23-33 ávarpaði Drottinn Móse
og sagði: „Taktu þér hinar ágætustu
ilmjurtir, fimm hundruð sikla af fljót-
andi myrru, helmingi minna, eða tvö
hundruð og fimmtíu sikla, af ilmandi
kanel, tvö hundruð og fimmtíu sikla
af ilmandi kalmus og fimm hundruð
sikla miðað við þyngd helgidóms-
sikils af kassía og eina hín af ólífu-
olíu. Úr þessu skaltu gera heilaga
smurningarolíu, ilmsmyrsl, að hætti
smyrslagerðarmanna. Þetta skal
verða heilög smurningarolía. Með
henni skaltu smyrja samfundatjaldið,
örk sáttmálstáknsins, borðið ásamt
öllum áhöldum þess, ljósa stikuna
ásamt áhöldum hennar, reykelsisalt-
arið, brennifórnaraltarið ásamt öllum
áhöldum þess og kerið ásamt stétt
þess. Þú skalt helga þau svo að þau
verði háheilög, sérhver sem snertir
þau verður heilagur.
Þú skalt einnig smyrja Aron og
syni hans og vígja þá til að þjóna sem
prestar fyrir mig.
Þú skalt ávarpa Ísraelsmenn og
segja: Þetta skal vera mér heilög
smurningarolía frá kyni til kyns.
Henni má ekki dreypa á hörund
nokkurs manns og þið megið ekki
búa til neitt annað með sömu aðferð,
hún er heilög og skal vera ykkur
heilög. Sérhver, sem gerir sams konar
smyrsl og fær það óvígðum manni,
skal upprættur úr þjóð sinni.“
Í Síraksbók 24:15 segir: „Af
mér lagði angan líkt og af kanel
og ilmviði, sætan ilm eins og af
valinni myrru og galban, ilmkvoðu
og marnögl, eins og af reykelsisilmi
sáttmálatjaldsins.“
Samkvæmt Esekíl 27:19-21 var
kanill verslunarvara á tímum Gamla
testamentisins. „Frá Úsal fékkstu
smíðajárn, kanel og reyr fyrir vörur
þínar. Dedan átti viðskipti við þig
með söðuláklæði. Arabía og allir
höfðingjarnir frá Kedar versluðu í
umboði þínu og greiddu þér með
lömbum, hrútum og geitum.“
Í 4:12-14 Ljóðaljóðanna ber
karlkyns ljóðmælandinn laut ástkonu
sinnar saman við garð með mörgum
unaðs- og dýrum ilmjurtum. „Lokaður
garður er systir mín, brúður, byrgður
brunnur, innsigluð lind. Laut þín sem
garður af granateplum,með gómsæta
ávexti, henna og nardus, nardus og
saffran,ilmreyr og kanel ,myrru
og alóe og allar dýrustu ilmjurtir.“
En í Orðskviðunum 7:16-17 segir:
„Ég hef búið rúm mitt ábreiðum,
marglitum ábreiðum úr egypsku líni.
Myrru, alóe og kanel hef ég stökkt á
hvílu mína.“
Nytjar
Í hundrað grömmum af kanil eru um
59 kalóríur og mulinn kanill er um
11% vatn, 85% kolvetni, 4% prótein
og 1% fita. Auk þess sem kanill
inniheldur talsvert af kalsíum, járni
og K-vítamíni.
Af plöntunni eru það aðallega
börkurinn og berin sem notuð eru til
matargerðar.
Kanill er mest notað sem krydd
við matargerð og þá aðallega
börkurinn og aldinin og þykir það
víða gott á kjúkling og lambakjöt
og út á grjónagraut með sykri. Á
Vesturlöndum er kanill mest notaður
í bakstur og til að bragðbæta áfenga
drykki eins og gin og jólaglögg.
Angan og bragð kanils kemur
úr olíu sem er um 0,5 til 1% af
plöntunni og það sagt blóðhreinsandi,
verkjastillandi, sótthreinsandi og
bæta meltinguna. Kanilreykelsi og
kanilolía var sagt lostaörvandi og í
eina tíð voru kanilstönglar reyktir
í hallæri.
Kanill á Íslandi
Í blöðum frá 1900 má sjá í
auglýsingum þar sem boðinn er
kanill til sölu og hugsanlegt að
hann hafi verið álíka vinsæll hér á
landi sem krydd og salt og pipar. Í
Ljósmæðrablaðinu 5. tölublaði 1959
segir að dúsa fyrir ungbörn hafi verið
vinsæl í Danmörku langt fram á 19.
öld og þegar börn hafi hvorki viljað
brjóst né pela hafi læknar ráðlagt
mæðrum að gefa þeim dúsu með
graut með kanil og sykri.
Kanill er líklega staðalbúnaður í
flestum eldhúsum landsins í dag en
óvíst hvort það sé eins mikið notað
til matargerðar og það á skilið. Cinnamomum verum er sígrænt tré sem nær um 15 metra hæð.
Börkur kaniltrés. Afberkjuð kaniltré.
Ceylin-kanill er unninn úr Cinna-
momum verum og þykir bera af kanil
sem unnin er úr öðrum tegundum
innan ættkvíslarinnar.
Kanilbörkur tilbúinn til vinnslu.
Blöðin oft ilmsterk, gagnstæð,
ljósrauð í fyrstu en verða dökkgræn
með tímanum, glansandi, þykk og
leðurkennd, egg- eða lensulaga,
oddmjó og heilrennd.