Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 45 Allir þekkja ævintýrið um nýju fötin keisarans eftir H. C. Ander­ sen. Þegar keisarinn gekk út á götu í nýju fötunum hrópaði lýðurinn hvað nýju fötin keisarans séu glæsi­ leg og sitji vel. Enginn vildi láta á því bera að hann sæi ekkert. En lítið barn hrópaði upp yfir sig: „En keisarinn er ekki í neinum fötum.“ Málið varðar Áhættumat erfða­ blöndunar sem fyrst var gefið út af Hafrannsóknastofnun árið 2017, starfshópur um stefnumótun í fisk­ eldi lagði til að notað væri sem stjórnsýslutæki og Alþingi staðfesti í lögum um fiskeldi árið 2019. Lítil fagleg gagnrýni Það eru margir í spori litla drengsins en fáir þora að stíga fram og gera athugasemdir. Undirritaður hefur ákveðið að stíga fram þar sem honum blöskrar vinnubrögðin í aðdraganda og setningu laga um fiskeldi þar sem m.a. áhættumat erfðablöndunar var lögfest. Um vinnubrögðin hefur verið fjallað í sjö greinum í Morgunblaðinu. Í greinaflokki í Bænda blaðinu hefur verið fjallað um áhættumat erfðablöndunar og er búið að birta átta greinar og er þetta níunda og jafnframt síðasta greinin. Áhættumat erfðablöndunar gengur út á að tryggja fjárhagslega hagsmuni laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu er­ lendra aðila en hefur mjög takmarkað ef nokkuð með umhverfisvernd að gera. Af skiljanlegum ástæðum stíga forustumenn laxeldisfyrirtækja ekki fram með gagnrýni enda er það þeirra hagur að áhættumati erfðablöndunar verði viðhaldið. Fjárhagslegur ávinningur ræður för Það er ljóst að kostnaður laxeld­ isfyrirtækja vegna umhverfis mála er minni hér á landi en t.d. Noregi og er það óheppilegt. Uppbygging greinarinnar hefur miðast við að ná sem mestum fjárhagslegum ávinningi til handa fyrirtækjum í meirihlutaeigu erlendra aðila. Stefnumótun greinarinnar byggist á að tryggja sérhagsmuni fyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila á kostnað umhverfismála og minni íslenskra fiskeldisfyrirtækja og samfélaga eins og farið hefur verið inn á í greinum í Morgunblaðinu. Mikilvægt er að þegar horft er fram á veginn að haft verði að leiðarljósi að laxeldi í sjókvíum starfi í sem mestri sátt við aðra hagsmunaaðila og sitt nærsamfélag. Til að svo geti orðið þarf mikla hugarfarsbreytingu hjá þeim sem hafa leitt þróun fisk­ eldis á Íslandi á síðustu árum. Úttekt á áhættumatinu Í umsögnum við fiskeldisfrum­ varpið voru gerðar fjölmargar athuga semdir við áhættumat erfða­ blöndunar og varð það til þess að sett var sérstakt ákvæði til bráða­ brigða ,,… að rýna aðferðafræði sem Hafrannsóknastofnun notar við mat á burðarþoli og við gerð áhættumats“. Þann 23. mars 2020 skipaði ráðherra síðan nefnd sem skilaði af sér skýrslu sem lögð var fram á Alþingi þann 25. ágúst. Þrír sérfræðingar skrifuðu skýrsluna og komu með kurteislegar en þó alvarlegar athugasemdir við aðferðafræði áhættumats erfða­ blöndunar sem í meginatriðum eru í takt við þær athugasemdir sem gerðar hafa verið í fyrri greinum. Stuðst verður við niðurstöður og ábendingar í skýrslu nefndarinnar í öðrum greinum sem skrifaðar verða og tengjast ekki endilega beint áhættumati erfðablöndunar. Í því sambandi fjalla um atriði sem nefndin fékk ekki upplýsingar um s.s. grunngögn um litlar viðkvæmar veiðiár sem virðist eiga að fórna hér á landi. Breytingar á áhættumatinu Eins og fram kemur í fyrri greinum eru gerðar fjölmargar athugasemdir við áhættumat erfðablöndunar enda að óbreyttu ónothæft og getur beinlínis verið skaðlegt íslenskum laxastofnum. Endurskoðað áhættu­ mat erfðablöndunar var kynnt þann 19. mars 2020 en þar kemur m.a. eftirfarandi fram: ,,Með myndbandsupptökubún­ aði sem verður staðsettur nálægt árósum veiðiáa verður hægt að telja fiska, leggja mat á fjölda lúsa og greina hvort fiskur er af eldisupp­ runa. Í sambandi við þann búnað verði gerð viðbragðsáætlun vegna stórra sleppinga úr sjókvíum, sem er mikilvægt að sé til staðar svo bregðast megi við ef mikið magn eldislaxa sleppur. Lögum sam­ kvæmt er það á forræði Fiskistofu en mat á miklum neikvæðum áhrifum slíkra sleppinga er á hendi Hafrannsóknastofnunar. Þá þarf að vera til búnaður til að skilja frá strokulaxa í slíkum tilfellum, eða aðrar aðferðir við að fjarlægja strokulaxa úr ám.“ Hér er um að ræða grundvallarbreytingu á þeirri aðferðafærði sem lagt var upp með í áhættumati erfðablöndunar. Í fyrstu útgáfu áhættumatsins frá 2017, var lagt upp með að horfa á, gera ekkert strax, fyrr en skaðinn er skeður. Hafrannsóknastofnun á eftir að skilgreina hvað er átt við með stórum sleppingum þegar farið verður í aðgerðir að fjarlægja eldis­ lax úr veiðiám. Jafnframt á eftir að koma fyrir búnaði við myndbands­ upptökubúnaðinn til að hægt verði að skilja frá eldislaxinn. Úthlutun framleiðsluheimilda Áhættumat erfðablöndunar er notað til að úthluta framleiðslu­ heimildum til eldis á frjóum laxi og hefur nú verið úthlutað tvisvar sinnum og spáð er í framhaldi út­ hlutanna: • Fyrsta úthlutun: Strax á árinu 2017 lagði Hafrannsókna­ stofn un til 71.000 tonna eldi á frjóum laxi og byggðu þeir útreikningar að stórum hluta á röngum forsendum í reikni­ líkaninu, sem fyrst og fremst byggist á því að gengið er út frá of fáum veiðiám með laxa­ lykt og of mikilli dreifingu á eldislaxi í veiðiár. • Önnur úthlutun: Mikill þrýstingur hefur verið á að auka framleiðsluheimildirn­ ar. Það kemur síðan á óvart að framleiðsluheimildir á frjóum laxi eru auknar strax um vorið 2020 og áfram er stuðst við rangar forsendur í reiknilíkani áhættumats erfðablöndunar. Framleiðsluheimildir voru auknar upp í 106.500 tonn, eða um 35.000 tonn. • Þriðja úthlutun: Áfram verð­ ur haldið með að þrýsta á að auka framleiðsluheimildir og þegar farin verður sú leið að grípa strax til aðgerða við stærri slysasleppingar skapast svigrúm til að auka heimild­ ir enn frekar, en að óbreyttu verður áfram stuðst við rangar forsendur í reiknilíkaninu. • Fjórða úthlutun: Þegar komið er að þeim tímapunkti að norsku leiðinni verður fylgt, þ.e.a.s. fjarlægja allan sjáan­ legan eldislax úr veiðivatni fyrir hrygningu, verður hægt að auka framleiðsluheimild­ ir mikið og þá jafnframt er áhættu mat erfðablöndunar búið að missa tilgang sinn. Áhættumat erfðablöndunar verður óþarft Þegar að fjórðu úthlutun kemur mun engin þörf vera á áhættumati erfðablöndunar og niðurstaðan sú að það var aðeins notað til að úthluta framleiðsluheimildum til laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila. Umhverfissóðunum verður gert skylt að fjármagna aðgerðir við tiltekt eftir um­ hverfisslys og þannig norska leiðin virkjuð. Laxeldisfyrirtæki í meirihlutaeigu erlenda aðila fengu framleiðsluheimildir ódýrt, enda sömdu þeir leikreglurnar sjálfum sér og sínum til fjárhagslegs ávinn­ ings á kostnað nærsamfélagsins og íslenskra fiskeldisfyrirtækja. Það getur því vart talist ósanngjarnt að laxeldisfyrirtæki í meirihluta­ eigu erlendra aðila taki til eftir sig og fjármagni tiltekt eftir um­ hverfisslys eins og er almennt viðhaft hér á landi. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegs- fræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA Valtra T234 D Valtra N134 A Valtra N114 EH5 Valtra N154 EA Eigum nokkrar Valtra dráttarVélar á tilboðsVErði! FISKNYTJAR&NÁTTÚRA Valdimar Ingi Gunnarsson Áhættumat erfðablöndunar í nýju föt keisarans Fóðurprammi við sjókvíar á Vestfjörðum. Bænda 8. október
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.