Bændablaðið - 24.09.2020, Síða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2020 47
Söfnunarstaður Flutningsaðili Sími Ullarpokar fást hjá Sími
Mosfellsbær Ístex hf. Völuteig 6 566-6300 Ístex hf. Völuteig 6 566-6300
Borgarnes Magnús Kristjánsson 832-1557 KB. Búrekstrardeild 430-5500
Snæfellsnes Velverk. Ystu Görðum 894-7257 Ragnar og Ásgeir Grundarfirði 430-8100
Búðardalur Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Saurbær Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Króksfjarðarnes Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Barðaströnd Biggi Upp ehf 691-4995 Barði Sveinsson Innri-Múla 456-2019
Þingeyri Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364
Flateyri Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364
Ísafjarðardjúp Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364
Hólmavík Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt 892-4646
Bitrufjörður Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt 892-4646
Borðeyri Strandafrakt 892-4646 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325
Hvammstangi Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325
Blönduós Ullarþvottastöð 483-4290 Lífland Blönduósi 540-1155
Sauðárkrókur Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Eyri 455-4610
Akureyri Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi Oddeyrargötu 460-3350
Húsavík Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi-Húsavík. Trausti 458-8980
Mývatn Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi-Húsavík. Trausti 458-8980
Kópasker Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Þórshöfn Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Vopnafjörður Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Egilsstaðir Sverrir Þór Sverrisson 865-0240 Landstólpi 480-5610
Höfn Biggi Upp ehf 691-4995 KASK Höfn Hornafirði 470-8222
Kirkjubæjarklaustur Biggi Upp ehf 691-4995 N1 - Kirkjubæjarklaustri 487-4628
Vík Biggi Upp ehf 691-4995 Ragnar S. Þorsteinsson 864-9628
Hvolsvöllur Þórður Jónsson 893-2932 Þórður Jónsson 893-2932
Flúðir Biggi Upp ehf 691-4995 Fóðurblandan Selfossi 570-9840
Selfoss Biggi Upp ehf 691-4995 Fóðurblandan Selfossi 570-9840
Móttökustaðir fyrir ull og afhending umbúða 2020/21
Vinsamlega gætið að því að hafa aðeins 20-25 kg í hverjum ullarpoka!
www.istex.is og www.ullarmat.is
Á FAGLEGUM NÓTUM
Staða í ullarmálum vegna COVID-19
Það hefur skapast mjög skrýtin og
snúin staða í ullarmálum vegna
COVID-19. Mörg ullarvinnslu-
fyrirtæki hafa víða um heim verið
lokuð síðan í lok mars eða hafa
verið að vinna á litlum afköstum.
Ullarbirgðir hafa því safnast
saman um allan heim og algjört
verðhrun hefur orðið á ull. Norilia,
sem safnar saman og vinnur
norska ull, setti alla ullarflokka
í 0 kr.
Sá hluti íslenskrar ullar sem nýtist
ekki beint í vinnslu Ístex hefur verið
fluttur út. Hér er aðallega um að
ræða annan flokk (H2), þriðja flokk
(H3), mislitan annan flokk (M2),
heilsársull og snoð. Þessi ull er að
mestu notuð í gólfteppaband. Þetta
er iðnaðargeiri sem hefur átt mjög
erfitt á COVID-19 tímum. Það er því
ljóst að erfið staða er komin upp með
þann hluta íslenskrar ullar sem hefur
farið í útflutning.
Þá hefur jafnframt dregist saman
sala á ullariðnaðarbandi sem notað
er í framleiðslu á ullarflíkum fyrir
ferðamenn. Eitthvað sem fer vonandi
aftur í gang þegar ferðafólk kemur
aftur til Íslands.
Það er því ljóst að Ístex verður
að lækka verulega verð í þessum
útflutningsflokkum af ull.
Í vinnslu á Lopa vantar lambsull
og sauðaliti, það verð mun því
haldast óbreytt frá fyrra ári. Þá eru
ákveðin tækifæri í svartri vetrarull
og mislitri lambsull.
Flutningar á ull
Stefnt er að því að sækja ull til bænda
eins og vant er. Ístex mun þó þurfa að
draga úr kostnaði við þvott. Það mun
þýða minnkuð afköst sem gæti þýtt
að á ákveðnum tímapunktum í vetur
þurfi að dreifa álaginu og seinka
móttöku. Aðstæður eru mismunandi
hjá bændum. Því biðjum við þá sem
eiga betra með þetta en aðrir að hafa
samband við Ístex. Þá erum við sér-
lega þakklátir þeim sem búa innan
100 km frá Þvottastöð Ístex og geta
komið með ull í lok október/byrjun
nóvember, þannig að hægt sé að ná
nægu magni til að byrja þvott fyrr.
Það er mikilvægt að bændur skrái
ullina sína strax inn á Bændatorg
strax eftir rúning. Þannig skilast
greiðslur hraðar til bænda og auð-
veldara er að skipuleggja ullarsöfn-
un. Allar frekari upplýsingar má
finna á Ullarmat.is.
Prjónarar og sængur til hjálpar
Staða Ístex er þó sérstök þar sem fé-
lagið hefur mismunandi tekjulindir.
Eftirspurn í Lopa handprjónaband
hefur það sem af er ári verið með
ólíkindum bæði hérlendis og er-
lendis. Prjónarar hafa verið afar
duglegir við prjónaskap. Bulla mætti
með það að Lopi sé líklega ferskari
en lambakjöt kominn til neytanda.
Nú eru báðar kembivélar félagsins
á fullu í handprjónabandvinnslu og
hafa kvöldvaktir verið settar á við
dokkun og pökkun til að hafa við
eftirspurn.
Ístex hefur þróað sérþvegna ull
sem hentar vel í sængur, kodda og
ýmiss konar fatnað. Félagið hefur
sjálft byrjað að selja sængur, yfir-
dýnur og kodda með þessari ull á
Lopidraumur.is. Jafnframt hefur
slík sérmeðhöndluð ull verið í próf-
unum hjá erlendum og innlendum
hönnuðum og framleiðendum. Það
er skemmtilegt að geta sagt frá
því að um 30 tonn voru seld beint
til erlendra sængurframleiðenda í
ágústlok. Þeim, sem eru áhugasöm
um þessa ull og sængur, er velkom-
ið að koma í heimsókn til Ístex og
skoða. Þá verða nokkur af þessum
efnum til sýnis á Hönnunarsafni
Íslands næstu vikurnar.
Lokaorð
Íslenska ullin er og verður áfram
mikilvæg. Þá hefur Lopi verið eins
konar hornstykki í því íslenska vöru-
úrvali og hönnun sem ferðamönnum
hefur staðið til boða. Jafnframt því
að skapa mörgum atvinnu. Hins
vegar hafa Íslendingar prjónað sig
út úr erfiðari tímum en þessum. Nú
skiptir samvinna og sköpun góðra
hluta miklu máli.
Sigurður Sævar Gunnarsson
Framkvæmdastjóri Ístex
Ullarverð 2021 - kr/kg Áætlun ANR (birt með fyrirvara)
Flokkur
Haustull
H-Lamb 515 kr/kg 914 kr/kg 1.429 kr/kg
H-1 Flokkur 370 kr/kg 823 kr/kg 1.193 kr/kg
H-2 Flokkur 40 kr/kg 549 kr/kg 589 kr/kg
H-3 Gróft Flokkur 20 kr/kg 549 kr/kg 569 kr/kg
H-2 Lamb (lítið gölluð) 415 kr/kg 823 kr/kg 1.238 kr/kg
M-Svart 370 kr/kg 731 kr/kg 1.101 kr/kg
M-Grátt 370 kr/kg 731 kr/kg 1.101 kr/kg
M-Mórautt 370 kr/kg 731 kr/kg 1.101 kr/kg
M-2 Flokkur 0 kr/kg 183 kr/kg 183 kr/kg
M-2 Lamb 370 kr/kg 275 kr/kg 645 kr/kg
Vetrarull
Heilsársull 20 kr/kg 549 kr/kg 569 kr/kg
Snod 20 kr/kg 549 kr/kg 569 kr/kg
M-Svart 60 kr/kg
M-Grátt 60 kr/kg
M-Mórautt 60 kr/kg
M-2 Flokkur 0 kr/kg 183 kr/kg 183 kr/kg
2020 SamtalsVerð frá Ístex
Sigurður Sævar Gunnarsson.
Bænda 56-30-300
Akureyri · Sími 465 1332
www.buvis.is
Vorum að fá vandaðar
gripaflutningakerrur
Bensínknúnir
staurahamrar
frá Petrol Post
með Honda mótor
Verð kr. 369.000.- án vsk.
16” dekk
Heildar burðargeta 3.5 tonn
Verð kr. 1.678.000.- án vsk.