Bændablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 202054
Hingað til hef ég verið að skrifa
um eitt mótorhjól í Bændablaðið
á ári, en vegna COVID-ástandsins
er bílasala að dragast saman en
aukning er í sölu mótorhjóla. Um
heim allan var mikil aukning í
mótorhjólasölu fyrstu sex mánuði
ársins en misjöfn á milli landa,
eða frá 8 til 24% miðað við síðasta
ár.
Aukningin er mest í svokölluðum
ferðahjólum sem eru jafnvíg á
malbik og möl og var söluaukning
hér á landi um 26,7% fyrstu 6
mánuðina (miðum okkur oft við
Noreg, en þar var aukningin fyrstu
6 mánuðina 14,8%). Til að fylgja
eftir tíðarandanum tók ég nýtt
ferðamótorhjól sem hentar til aksturs
bæði á malbiki og á vegslóðum til
prófunar frá versluninni NITRO,
sem selur m.a. fjórhjól, snjósleða,
mótorhjól og ýmislegt annað.
Hvað er SWM?
Smá sagnfræði um ítalska vöru-
merkið/mótorhjóla framleiðandann
SWM, það eru mótorhjól sem eiga
töluverða sögu. Stutta útgáfan af
sögunni er sú að eftir að hafa notið
margra ára velgengni í evrópskum
motocross-keppnum á áttunda og
níunda áratugnum fór SWM að
lokum á hausinn. Fyrirtækið var
endurvakið árið 2014 af fyrrverandi
Husqvarna-verkfræðingi og fjár-
festum. Með nýju fjármögnuninni
gat SWM yfirtekið gamla ítalska
Husqvarnaverksmiðju, búnað og
vinnuafl, eftir að KTM keypti
Husqvarna af BMW.
Hjólið sem ég prófaði heitir:
SWM Superdual X, 600cc, 53
hestöfl, vatnskælt, DOHC, 4
ventla eins strokka ævintýrahjól
(byggist mikið á Husqvarna 2011/12
TE630). Á því er 6 gíra kassi og 18
lítra bensíntankur (kemst um 300+
km á tank, eyðir um 5,5–6 lítrum
á hundraðið). Þyngdin er 169 kg.
Annar flottur eiginleiki er 21/18
tommu dekkjastærðirnar sem gefur
mikinn valkost á dekkjavali.
Aksturseiginleikar og
fjöðrun með betra móti
Til að fá sem fjölbreyttasta prófun á
hjólinu tók ég það inn í bíl upp Árnes
og keyrði upp í Landmannalaugar
og til baka. Með þessari leið er
hægt að fá alla þá vegi og slóða
til að prófa hjólið 100%. Einn var
þó galli á prófuninni, hjólið var
aðeins keyrt 2 km þegar ég lagði
af stað og taldi ég mig samvisku
minnar vegna og væntanlegs
eiganda skylt að tilkeyra mótorinn
létt fyrstu 100 km. Það að keyra
hjólið svona mjúkt gaf mér kost
á að fikta í fjöðruninni sem mér
fannst í stífara lagi í byrjun. Eftir
smá stund datt ég niður á þessa fínu
stillingu sem hentaði mér fullkom-
lega. Framdempararnir eru frekar
óþekktir í mótorhjólum (vel þekktir
demparar í fjallareiðhjólum), 210
mm. fjöðrun sem auðvelt er að stilla.
Afturdemparinn er betur þekktur í
mótorhjólum og er stilltur vinstra
megin undir sæti, en slaglengd aft-
urfjöðrunar er 220 mm.
Mótorhjól sem kemur fullbúið
með öllu á hlægilegu verði
Fyrstu hjólin eru á tilboði sem ekki
hefur sést hér á landi lengi (eða
aldrei). Verðið er 1.590.000 og er
hjólið með handahlífum, „krassvörn“
á hliðum (bæði uppi og niðri), led
ljóskösturum, Givi hliðartöskum og
farangursgrind að aftan. Þá er vind-
hlíf sem tekur vindinn vel og ABS
bremsur frá Brembo, sem hægt er
að taka af að aftan. Það er að segja
að hægt er að taka ABS læsivörn-
ina af á afturhjólið sem gefur manni
möguleika á að keyra hjólið eins og
motocrosshjól í þröngum beygjum
og á lausu yfirborði. Hjólbarðarnir
eru það sem kallast 50/50 og henta
jafnt fyrir malbik og malarvegi.
Prufuaksturinn
Eins og áður sagði var tekið lítið
á hjólinu fyrstu 100 km, en tíminn
notaður til að finna tog vélarinnar
og snerpu ásamt fjöðrunarstillingu
hvernig hjólið virkaði sem
best. Malarvegslóðinn upp í
Landmannalaugar var með miklu
lausi yfirborði og vegur þurr og
griplítill. Á leiðinni til baka var tekið
aðeins meira út úr vélinni og naut
ég mín vel þegar ég var búinn að
átta mig á hvernig ég ætti að nota
snúning vélar og gírkassann til hins
ýtrasta. Þrátt fyrir laust yfirborð
var hreinlega hægt að moka hjólinu
áfram í gegnum hlykkjótta kaflann
neðst á Landmannaleið.
Hjólið reyndist vel í þessum 180
km prufuakstri og örfáar athuga-
semdir að trufla mig.
Ég er frekar lágvaxinn og kominn
á sjötugsaldur og þá er 89 sentímetra
sætishæð í hærra lagi. Mér fannst
vanta snúningshraðamæli og hita-
mæli í mælaborðið og þegar ég
keyrði standandi á hjólinu var
stilliskrúfan fyrir afturdemparann
að trufla mig þar sem vinstri kálfinn
á mér var að snerta stilliskrúfuna
(lítið mál að færa stilliskrúfuna innar
svo að hún fari ekki í fótinn, sem
þeir í NITRO gerðu eftir ábendingar
mínar).
Nánari upplýsingar um hjólið er
hægt að nálgast á Facebook-síðu
NITRO (virðist sem heimasíðan
www.nitro.is liggi niðri þegar þetta
er skrifað).
VÉLABÁSINN
SWM Superdual X 650 mótorhjól
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Smá sull í Dómadal. Myndir / HLJ
SWM 650.
Finnst mikill kostur að geta tekið ABS kerfið af afturhjólinu.
Stilliskrúfan fyrir afturdemparann
var að trufla mig þegar ég keyrði
hjólið standandi.
Eftir að ég skilaði hjólinu breyttu
þeir í NITRO afstöðu stilliskrúfunnar.
GIVI töskur er hægt að opna á tvo
vegu, efst eins og hér eða alla
hliðina.
Vindhlífin er stór og gefur gott skjól
fyrir ökumann.