Bændablaðið - 22.10.2020, Page 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 29
Fiskislóð 30
101 Reykjavík
561 4110
Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
561 4210
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Sjáðu úrvalið á
nesdekk.is
B
irt m
eð
fyrirvara um
m
ynd
a- o
g
textab
reng
l.
Skoðaðu nýju heimasíðuna
okkar á nesdekk.is
Þar getur þú fundið réttu dekkin sem henta þér best
og gengið frá kaupunum.
POWER IS NOTHING WITHOUT CONTROL
Toyo Pirelli Nankang InterstateLaufen Maxxis Mastercraft
verður í samræmi við aðrar vörur
á grænmetismarkaðinum. Já, við
eigum nóg land til að rækta allan
þann hvítlauk sem Íslendingar vilja.“
Hestamennska og ferðaþjónusta
„Hörður er uppalinn í Breiðholti
og kynntist konunni sinni strax í
barnaskóla. „Við eigum fimm börn
sem enn búa öll hjá okkur. Eftir
menntaskóla fór ég í háskólanám
til Bandaríkjanna þar sem ég lærði
fjölmiðla- og stjórnmálafræði og tók
svo meistaranám í alþjóðaviðskipta-
fræðum í Heidelberg, Þýskalandi.
Strax sem ungur maður hafði ég
mikinn áhuga á sveitinni og réð
mig strax 12 ára sem hestasvein
að Ögmundarstöðum í Skagafirði.
Það var þó ekki fyrr en við Þórunn
fórum að búa saman að ég byrja
í hestamennsku af fullum krafti.
Konan mín hefur verið viðloðin
hestamennsku alla tíð.
Eftir námið starfaði ég hjá
Icelandair í Skandinavíu en árið
1999 stofnaði ég mitt fyrsta fyrir-
tæki sem var internet ferðaskrifstofa
í Svíþjóð. Það var í frumkvöðlaum-
hverfinu í Stokkhólmi sem ég fann
mína köllun sem frumkvöðull
og hef starfað sem slíkur síðan. Í
Skandinavíu starfaði ég bæði innan
ferða-, tækni- og fjármálageirans.
Eftir að ég flutti til Íslands hef ég
meðal annars komið að stofnun
Hvalasafnsins á Granda, fjármála-
fyrirtækisins Faktoria og ferðafyr-
irtækisins MrIceland sem ég hef
starfað við undanfarin ár. Á vegum
ferðafyrirtækisins fór ég með fólk
í fjallgöngur og jóga en svo einnig
hestaferðir. Ég fékk marga frábæra
gesti til mín sem hvöttu mig til að
tengja meira saman jóga og hesta-
mennskuna, sem ég gerði og varð til
þess að ég fór að bjóða upp á ferðir
þar sem við fórum bæði í innra jafnt
sem ytra ferðalag.“
Eins og ég hafi alltaf verið hér
„Það var í raun tilviljun að við festum
kaup á jörðinni Efri-Úlfsstöðum en
skyldmenni konunnar minnar eru
hér víða í kring og við þekktum
svæðið því vel. Þó að heimilið
okkar sé enn í Mosfellsdalnum þá
starfa ég hér á Efri-Úlfsstöðum og
held að það sé ljóst að okkur var
ætlað að vera hérna í Landeyjunum
– stundum finnst mér eins og ég hafi
alltaf verið hérna.“
Útplöntun hvítlauksgeira á akrinum á Efri-Úlfsstöðum. Agnar Páll Pálsson á traktor og Hörður Bender fylgist með.
Í fyrstu atrennu slíkrar ræktunar er hjálp frá fjölskyldunni ómetanleg við
það að brjóta upp hvílauksgeirana fyrir útplöntunina. Hér eru Ragnhildur
Bender og Karl Kristján Bender.
Ásta Kristjánsdóttir lét ekki sitt eftir liggja.
Vélina til útplöntunarinnar keypti Hörður frá Póllandi, en hún er að hans sögn
afar skilvirk og þarf mannshöndin lítið að koma þar til aðstoðar.