Bændablaðið - 22.10.2020, Qupperneq 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 33
Nú ná náttúrulegir birkiskógar yfir
um 1,5% af flatarmáli Íslands, eða
155 þús. hektara. Ræktaður skógur
er á um 43 þús. hekturum þannig
að skógar Íslands þekja samtals um
2% landsins, eða tæp 4% láglendis.
Í dag er opinber stefna um að
byggja upp skógarauðlind og nota til
þess a.m.k. 5% af láglendi landsins
til að efla byggð í sveitum og auka
timburframleiðslu. Gera má ráð fyrir
að skógrækt vaxi einnig fiskur um
hrygg á næstu árum vegna kolefn-
isbindingar til að vinna gegn lofts-
lagsbreytingum og skógarbændur
geta tekið þátt í því átaki. Á Héraði
er skógarþekja láglendis komin í
um 20% og viðarmagn nytjaskóg-
anna eykst ár frá ári. Áætlað er að
standandi viðarmagn bændaskóga
á Héraði verði orðið um 292 þús.
rúmmetrar árið 2024. Það þýðir að
æ stærra hlutfall þess skógar sem er
fellt verður að verðmætum timbur-
afurðum eins og borðviði sem leið-
ir þá til minni innflutnings á þeirri
vöru.
Hálf öld er skammur
tími í lífi skógar
Mjór er mikils vísir og lerki-
plönturnar átta þúsund sem plantað
var fyrir hálfri öld á Víðivöllum ytri í
Fljótsdal eru orðnar að gildum trjám
sem er flett í borðvið. Það er við hæfi
að á sama bæ hefur verið byggt upp
fyrirtæki sem sérhæfir sig í að vinna
skógarafurðir. Fljótsdalsáætlun
hefur þannig sannað gildi sitt og sýnt
fram á að skógrækt sem búgrein er
raunhæfur kostur á Íslandi líkt og í
Norður-Noregi.
En hálf öld er skammur tími í lífi
skógar og kynslóðin sem gróðursetur
lifir sjaldnast að sjá afrakstur erf-
iðisins. Þeir víðsýnu bændur sem
árið 1970 lögðu lönd undir fjarlæga
draumsýn um nytjaskóga hafa kvatt
en yngri kynslóðir tekið við þessari
náttúruauðlind nýrra tíma. Að líkind-
um verður það þriðja kynslóðin sem
nýtur mestu ávaxtanna þegar haldið
verður upp á aldarafmæli bænda-
skógræktar eftir önnur fimmtíu ár. Þá
verða „skínandi fagrir skógar, skreyt-
andi hlíð og fjöll“ eins og Hákon
Aðalsteinsson heitinn, skógar bóndi
á Húsum í Fljótsdal, komst að
orði í kvæði sínu um framtíðarsýn
skógarbóndans. Það er við hæfi að
ljúka greininni á síðasta erindi þess
kvæðis.
Þýtur í bjarkarblöðum
blærinn um sumardag.
Hljómar í hjörtum glöðum
heillandi sálmalag.
Framtíðarsýn ég sé.
Læt ég um landið óma
lúðursins fögru hljóma
engill í eigin tré.
Skúli Björn Gunnarsson
Félag skógarbænda á Austurlandi
PIR og steinullar yleiningar
Stuttur afgreiðslutími
YLEININGAR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Haldið var upp á 25 ára afmæli bændaskógræktar í Víðivallaskógi um
Jónsmessu 1995. Í skóginum var sett upp sýning á gróðursetningaráhöldum
o.fl. Þorsteinn Sigurðsson læknir stendur með staf sinn á svipuðum stað
og aldarfjórðungi áður. Mynd / Skúli Björn/Myndasafn Skógræktarinnar
Á 25 ára afmælinu var líka sýnd viðarvinnsla, t.a.m. framleiðsla viðarkurls og
girðingarstaura auk þess sem ný færanleg flettisög var tekin til kostanna.
Mynd / Skúli Björn/Myndasafn Skógræktarinnar
Það gafst ærið tilefni til að syngja hinn hátt rómaða söng skógarmanna
„skógarmannaskál“ á aldarfjórðungsafmælinu. Í forsöngskórnum f.v.: Sigur-
geir Þorgeirsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra, Hákon Aðalsteins-
son, skógarbóndi og veislustjóri, Jónas Magnússon, bóndi á Uppsölum, Sig-
urður Blöndal, fv. skógræktarstjóri, Gunnar Guttormsson frá Hallormsstað,
Níels Árni Lund, deildarstjóri landbúnaðarráðuneytis og Friðjón Jóhannsson
músíkant. Mynd / Skúli Björn/Myndasafn Skógræktarinnar
Veisluaðstaða fyrir yfir hundrað manns var unnin úr heimafengnu timbri og
smíðuð í rjóðri elstu lunda Víðivallaskógar. Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri
Héraðsskóga, að halda tölu eftir að hafa opnað samkomuna með því að fella
tré. Mynd / Skúli Björn/Myndasafn Skógræktarinnar
Hákon Aðalsteinsson, skáld og
skógarbóndi á Húsum, stýrði veisl-
unni á 25 ára afmælinu með styrkri
hendi.
Veislurjóðrið tekur vel á móti gestum aldarfjórðungi síðar. Mynd / Bjarki Jónsson
Útdráttarvél skógarbænda að störfum í 50 ára gömlum lundum. Mynd / Bjarki
Jónsson