Bændablaðið - 22.10.2020, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 49
Prjónuð peysa fyrir börn með
laskalínu úr DROPS Merino
Extra Fine.
Stykkið er prjónað ofan frá og
niður með garðaprjóni, köðlum og
vösum.
DROPS Design: Mynstur me-062-bn
Stærðir: 6/9 (12/18) mánaða 2 (3/4) 5/6 (7/8) ára
Garn: DROPS Merino Extra Fine (fæst í
Handverkskúnst)
300 (300) 350 (350) 400 (450) g litur á mynd: gráblár
nr 23
Prjónar: Kaðlaprjónn og hringprjónn 60 cm, nr 4
eða sú stærð sem þarf til að fá 21L x 28 umferðir
= 10x10 cm.
Tölur: 5 (6) 6 (6) 7 (7) stykki.
Garðaprjón (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
Hnappagat: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri
kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá
réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1
sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og
prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga)
er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist
gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar kragi í
hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4 (5) 5
(5) 6 (6) næstu hnappagötum með ca 4 (4) 4½ (4½)
5 (5½) cm millibili.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð
frá réttu.
Laskalína: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 og
A.2 mynstur (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út
um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn
slétt svo ekki myndist gat.
ÚRTAKA (á við um ermar): Allar úrtökur eru gerðar
frá réttu. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin í stykki
þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju
eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var
prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar
til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman
(= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón
(= alls 2 lykkjur færri).
Affelling: Til að koma í veg fyrir að affellingarkantur-
inn verði stífur þegar fellt er af, er
hægt fella af með grófari prjónum.
Ef kanturinn er enn stífur, er hægt
að slá uppá einu sinni uppá prjóninn
á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt
því sem fellt er af (uppslátturinn er
felldur af eins og venjuleg lykkja).
PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á
STYKKI:
Peysan er prjónuð ofan frá og niður,
fram og til baka á hringprjóna frá
miðju að framan.
Ermar eru prjónaðar fram og til
baka á hringprjóna og saumaðar
saman í lokin. Vasarnir eru prjónaðir
fram og til baka á hringprjóna og
saumaðir á.
KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 68 (72)
80 (80) 88 (92) lykkjur (meðtaldar 4
kantlykkjur að framan í hvorri hlið
við miðju að framan) á hringprjóna
nr 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón
- sjá útskýringu að ofan og aukið út
4 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð
= 72 (76) 84 (84) 92 (96) lykkjur.
BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu
þannig – munið eftir hnappagati á kanti að framan
– sjá útskýring að ofan: Prjónið 10 (11) 13 (13) 15
(16) lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki),
A.1 (= 6 lykkjur), prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni,
A.2 (= 6 lykkjur) (= vinstri ermi), prjónið 12 (14) 18
(18) 22 (24) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.1
yfir næstu 6 lykkjur, prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni,
A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= hægri ermi), prjónið 10
(11) 13 (13) 15 (16) lykkjur í garðaprjóni (= hægra
framstykki). Prjónið 1 umferð frá röngu.
Aukið út fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan –
hvoru megin við A.1 og A.2 þannig:
Aukið út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum, síðan
í 4. hverri umferð alls 9 (10) 11 (12) 13 (14) sinnum
= 184 (196) 212 (220) 236 (248) lykkjur. Athugið
prjónfestuna. Þegar allar útaukningar hafa verið
gerðar, mælist stykkið ca 11 (12) 13 (14) 15 (16) cm
frá uppfitjunarkanti.
Prjónið e.t.v. áfram með garðaprjóni og köðlum án
útaukningar þar til stykkið mælist 11 (12) 13 (14)
15 (16) cm.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bak-
stykki og ermar þannig: Prjónið 28 (30) 33 (34) 37
(39) lykkjur í garðaprjóni (= framstykki), setjið næstu
40 (42) 44 (46) 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið
upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 48 (52) 58 (60) 66
(70) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), setjið næstu
40 (42) 44 (46) 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið
upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 28 (30) 33 (34) 37
(39) lykkjur í garðaprjóni (= framstykki).
FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116 (124) 136 (140)
152 (160) lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið
mælist 16 (18) 20 (23) 26 (29) cm frá þar sem fram-
og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af ERMAR:
Setjið 40 (42) 44 (46) 48 (50) lykkjur af þræði í
annarri hlið á hringprjón 4. Fitjið upp 4 lykkjur í lok
2ja næstu umferða (= 4 nýjar lykkjur í hvorri hlið á
stykki) = 48 (50) 52 (54) 56 (58) lykkjur (meðtalin
1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki). Prjónið garðaprjón
fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um
1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið
lykkjum svona í 8. (10.) 12. (14.) 14. (14.) hverri
umferð alls 7 (7) 7 (7) 8 (8) sinnum = 34 (36) 38
(40) 40 (42) lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón
þar til ermin mælist 17 (20) 24 (29) 32 (35) cm frá
skiptingu. Fellið af. Prjónið hina ermina alveg eins.
VASI: Fitjið upp 14 (14) 16 (16) 18- (18) lykkjur á
hringprjón nr 4. Prjónið garðaprjón fram og til baka
þar til stykkið mælist 7 (7) 8 (8) 9 (9) cm. Fellið af.
Prjónið annan vasa alveg eins.
FRÁGANGUR:
Saumið saman ermasauma innan við 1 kantlykkju.
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í
vinstra framstykki. Saumið vasana ca 3 (3) 3 (4) 4 (4)
cm upp frá neðri kanti og ca mitt í hvort framstykki.
Prjónakveða,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Haustpeysa á börn
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 9 3 1 6 5
6 1 7 2 9
5 4 8
8 9 3 1 7
3 2 6
6 4 1 5 2
6 3 9
4 2 7 5 3
5 2 8 6 7 4
Þyngst
9 8 1 5
5 3
1 3 2 7 6
6 5 3 2 9
4 2 6
8 2 1 5 7
7 6 9 4 1
1 7
3 8 4 7
5 7
7 5 2 9
6 1 7 4
8 4 3 9 5 2
2 3 8 5 4 6
3 7 8 2
1 6 4 3
9 1
6 9
1 7 4 9 3
6 3 5
5 8 9
5 2
4 6 2
7 4 6
2 7 8 6 5
4 1
Fjallganga með pabba
var klikkuð
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Halldóra Björg er 12 ára dama frá
Bolungarvík. Hún á tvo bræður
sem eru 22 og 17 ára. Henni finnst
gaman að vera með vinum sínum
og synda.
Nafn: Halldóra Björg Pétursdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Bolungarvík.
Skóli: Grunnskólinn í Bolungarvík.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði og íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Svín
og hundur.
Uppáhaldsmatur: Núðlur og taco.
Uppáhaldshljómsveit: Engin spes.
Uppáhaldskvikmynd: Harry potter.
Fyrsta minning þín? Þegar ég datt
og fékk gat á hökuna.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, ég æfi sund.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Læknir eins og frændi
minn.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Fjallganga með pabba
mínum og frænkum sem tók 5 tíma.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
í vetur? Leika í snjónum.
Næst » Halldóra skorar á Óskar
Ingimar Ómarsson að svara næst.