Bændablaðið - 22.10.2020, Síða 49

Bændablaðið - 22.10.2020, Síða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 49 Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með garðaprjóni, köðlum og vösum. DROPS Design: Mynstur me-062-bn Stærðir: 6/9 (12/18) mánaða 2 (3/4) 5/6 (7/8) ára Garn: DROPS Merino Extra Fine (fæst í Handverkskúnst) 300 (300) 350 (350) 400 (450) g litur á mynd: gráblár nr 23 Prjónar: Kaðlaprjónn og hringprjónn 60 cm, nr 4 eða sú stærð sem þarf til að fá 21L x 28 umferðir = 10x10 cm. Tölur: 5 (6) 6 (6) 7 (7) stykki. Garðaprjón (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. Hnappagat: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar kragi í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4 (5) 5 (5) 6 (6) næstu hnappagötum með ca 4 (4) 4½ (4½) 5 (5½) cm millibili. Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Laskalína: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 og A.2 mynstur (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Allar úrtökur eru gerðar frá réttu. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin í stykki þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón (= alls 2 lykkjur færri). Affelling: Til að koma í veg fyrir að affellingarkantur- inn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin. Vasarnir eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna og saumaðir á. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 68 (72) 80 (80) 88 (92) lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón - sjá útskýringu að ofan og aukið út 4 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 72 (76) 84 (84) 92 (96) lykkjur. BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig – munið eftir hnappagati á kanti að framan – sjá útskýring að ofan: Prjónið 10 (11) 13 (13) 15 (16) lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki), A.1 (= 6 lykkjur), prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 6 lykkjur) (= vinstri ermi), prjónið 12 (14) 18 (18) 22 (24) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.1 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= hægri ermi), prjónið 10 (11) 13 (13) 15 (16) lykkjur í garðaprjóni (= hægra framstykki). Prjónið 1 umferð frá röngu. Aukið út fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan – hvoru megin við A.1 og A.2 þannig: Aukið út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9 (10) 11 (12) 13 (14) sinnum = 184 (196) 212 (220) 236 (248) lykkjur. Athugið prjónfestuna. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 11 (12) 13 (14) 15 (16) cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið e.t.v. áfram með garðaprjóni og köðlum án útaukningar þar til stykkið mælist 11 (12) 13 (14) 15 (16) cm. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bak- stykki og ermar þannig: Prjónið 28 (30) 33 (34) 37 (39) lykkjur í garðaprjóni (= framstykki), setjið næstu 40 (42) 44 (46) 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 48 (52) 58 (60) 66 (70) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), setjið næstu 40 (42) 44 (46) 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 28 (30) 33 (34) 37 (39) lykkjur í garðaprjóni (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116 (124) 136 (140) 152 (160) lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 16 (18) 20 (23) 26 (29) cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af ERMAR: Setjið 40 (42) 44 (46) 48 (50) lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjón 4. Fitjið upp 4 lykkjur í lok 2ja næstu umferða (= 4 nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki) = 48 (50) 52 (54) 56 (58) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8. (10.) 12. (14.) 14. (14.) hverri umferð alls 7 (7) 7 (7) 8 (8) sinnum = 34 (36) 38 (40) 40 (42) lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón þar til ermin mælist 17 (20) 24 (29) 32 (35) cm frá skiptingu. Fellið af. Prjónið hina ermina alveg eins. VASI: Fitjið upp 14 (14) 16 (16) 18- (18) lykkjur á hringprjón nr 4. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 7 (7) 8 (8) 9 (9) cm. Fellið af. Prjónið annan vasa alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið saman ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið vasana ca 3 (3) 3 (4) 4 (4) cm upp frá neðri kanti og ca mitt í hvort framstykki. Prjónakveða, mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is Haustpeysa á börn HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 4 9 3 1 6 5 6 1 7 2 9 5 4 8 8 9 3 1 7 3 2 6 6 4 1 5 2 6 3 9 4 2 7 5 3 5 2 8 6 7 4 Þyngst 9 8 1 5 5 3 1 3 2 7 6 6 5 3 2 9 4 2 6 8 2 1 5 7 7 6 9 4 1 1 7 3 8 4 7 5 7 7 5 2 9 6 1 7 4 8 4 3 9 5 2 2 3 8 5 4 6 3 7 8 2 1 6 4 3 9 1 6 9 1 7 4 9 3 6 3 5 5 8 9 5 2 4 6 2 7 4 6 2 7 8 6 5 4 1 Fjallganga með pabba var klikkuð FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Halldóra Björg er 12 ára dama frá Bolungarvík. Hún á tvo bræður sem eru 22 og 17 ára. Henni finnst gaman að vera með vinum sínum og synda. Nafn: Halldóra Björg Pétursdóttir. Aldur: 12 ára. Stjörnumerki: Tvíburi. Búseta: Bolungarvík. Skóli: Grunnskólinn í Bolungarvík. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Stærðfræði og íþróttir. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Svín og hundur. Uppáhaldsmatur: Núðlur og taco. Uppáhaldshljómsveit: Engin spes. Uppáhaldskvikmynd: Harry potter. Fyrsta minning þín? Þegar ég datt og fékk gat á hökuna. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, ég æfi sund. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Læknir eins og frændi minn. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Fjallganga með pabba mínum og frænkum sem tók 5 tíma. Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í vetur? Leika í snjónum. Næst » Halldóra skorar á Óskar Ingimar Ómarsson að svara næst.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.